Skessuhorn - 07.09.2022, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2022 3
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
Virka daga 10-17
Laugardaga 11-15
Hjarta heimilisins
Við hönnum innréttingar að þínum þörfum
2000 — 2022
Hafrafellslón
barmafullt og
svæðið vaktað
Almannavarnir fylgjast þessa dagana
grannt með stöðu Hafrafellslóns
við rætur Langjökuls. Fyrir tveimur
árum hljóp úr lóninu og margfald
aðist þá vatnsmagnið í Hvítá á einni
nóttu. Náið hefur verið fylgst með
lóninu síðustu daga ekki síst sökum
þess að úrkoma og jökulbráðnun
vegna hlýinda höfðu í síðustu viku
aukið vatnsmagnið í Hvítá. Óttuð
ust menn að hlaup úr Hafrafellslóni
á sama tíma gæti orðið varhugavert.
Bergþór Kristleifsson á Húsa
felli flaug yfir svæðið síðast
liðinn fimmtudag og gaf Skessu
horni góðfúslegt leyfi til birtingar
mynda sem hann tók við það tæki
færi. Hann segir lónið á yfirfalli til
norðurs núna ofan í Flosaskarð, en
það hafi ekki alltaf verið tilfellið.
Mannvirki séu ekki í beinni hættu
komi flóð í ána nema þá mögulega
brúin sem er fyrir ofan Húsafell,
en vatnsyfirborðið náði nánast upp
undir brúargólfið í hlaupinu árið
2020. Ef og þegar hlaup verði úr
lóninu væri hentugast ef það yrði á
tíma þar sem ekki væri fyrir í henni
hlýindaflóð sem bætist annars við
vatnsmagnið. Veðurstofan fylgist
grannt með framvindu mála en er
þó ekki með mælitæki við lónið
sjálft sem þó væri árangursríkast að
mati Bergþórs. Hann nefndi líka
þann möguleika að rjúfa og lækka
þar með yfirfallið sem gæti haft
góð áhrif á stöðuna.
gj/ Ljósm. Bergþór Kristleifsson
Yfirfallið til norðurs í Flosaskarð.
Séð yfir lónið til vesturs.
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
Sími: 860-0708 • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Bílás, Smiðjuvöllum 17, 301 Akranes www.bilas.isbilas@bilas.is 431 2622 Við tökum vel á móti þér...
Mikið úrval af nýjum og notuðum bílum
Það kostar ekkert að skrá bílinn hjá okkur
Bjóðum gott pláss á bílaplani Bíláss fyrir sölubíla
Við erum umboðsmenn fyrir bílaumboðin Öskju og Heklu
Mikil sala
og gott kaffi
Við erum með bílinn fyrir þig!