Skessuhorn - 07.09.2022, Qupperneq 24
WWW.SKESSUHORN.IS
14
Led húsnúmer · Falleg húsnúmer í öllum stærðum og gerðum
· Sérsmíðum á öll hús, fjölbýli og fyrirtæki
Led húsnúmerin er einnig hægt að
skoða og versla hjá Skómeistaranum í Smáralind
· Ledlýsing sem endist og eyðir litlu rafmagni
· Hægt að fá í lituðu áli
· Verið velkomin á facebooksíðu okkar: Ledhúsnúmer
· Best að panta í gegnum facebooksíðuna okkar
· Einnig hægt að hringja í síma 775 6080
Led húsnú er
Falleg húsnúmer í öllum stærðum og gerðum
· Sérsmíðum númer á öll hús og fjölbýli
Best er að panta í gegnum facebooksíðuna okkar: ledhúsnúmer
Einnig hægt að hringa í sími 775 6080
· Ledlýsing sem endist og eyðir litlu rafmagni
· Hægt að fá í lituðu áli eða ryðfríu stáli
· Verið velkomin á facebooksíðu okkar: Led húsnúmer
Led húsnúmerinn er einnig hægt að
skoða og versla hjá Skómeistaranum í Smáralind
Barnamenningarhátíð Vesturlands
verður haldin í þriðja skiptið nú í
haust en hátíðin er á vegum Sam
taka sveitarfélaga á Vesturlandi.
Á síðasta ári fór hún fram á Akra
nesi en í ár tekur Snæfellsbær við
keflinu. Heimir Berg Vilhjálms
son, markaðs og upplýsingafulltrúi
Snæfellsbæjar, segir alla velkomna á
hátíðina en viðburðir verða í boði
út septembermánuð. ,,Hátíðin var
haldin á Akranesi í fyrra, þá var búið
að fresta henni í einhver ár vegna
Covid. Nú verður hátíðin hjá okkur
í Snæfellsbæ. Hún byrjar í dag, mið
vikudaginn 7. september, og mun
standa út mánuðinn. Vettvangur
hátíðarinnar er allur Snæfellsbær,
bæði á skólatíma og utan skóla,“
segir Heimir um hátíðina sem hefur
verið lengi í undirbúningi.
Að börnin upplifi eitt-
hvað með sínu fólki
Megin markmið hátíðarinnar segir
Heimir að sé að efla menningar
starf fyrir börn og ungmenni og
bæta aðgengi þeirra að menningu.
,,Við viljum að börnin geti öll tekið
þátt í skipulögðu menningarstarfi
og erum að reyna að bæta aðgengi
þeirra að allskonar menningu svo
þau geti tengst nýrri iðju og prófað
eitthvað nýtt. Nokkrir viðburðir
eru á skólatíma og verða þess vegna
kannski ekki eins sýnilegir íbúum
og aðrir. Svo eru viðburðir utan
skóla hvatning til að börnin upplifi
eitthvað með sínu fólki, þá t.d. er
tilvalið fyrir foreldra, ömmur og afa
að taka þátt í menningarstarfi með
börnunum. Það verður hægt að
kíkja á alls kyns sýningar, fara í bíó,
leikhús og fleira skemmtilegt en við
reynum að hafa viðburði fyrir alla,“
segir Heimir.
Gleðiþema
Dagskráin er unnin út frá hug
myndum barnanna en stjórn
hátíðarinnar hefur reynt að virkja
alla íbúa til þátttöku. ,,Við erum
að reyna að virkja heimafólk og
viljum að þátttaka barnanna og ung
mennanna sé uppistaðan, að þau
taki þátt í virku menningarstarfi.
Við fórum t.d. í skólana og fengum
hugmyndir frá krökkunum til að
móta dagskrána og fengum ótrúlega
margar skemmtilegar hugmyndir
sem við höfum reynt að koma inn
í dagskrá hátíðarinnar. Snæfells
bær er ríkur af menningarlífi og
það er mjög gaman að geta tengt
samfélagið og börnin með þessum
hætti. Þema hátíðarinnar er gleði
en við ætlum bara að hafa gaman.
Viðburðirnir verða því fjölbreyttir
og um allan bæ; í Staðarsveit, á
Búðum, Hellissandi, Rifi, Ólafsvík,
í tónlistarskólanum, grunnskólum
og leikskólum. Við reynum svo að
tikka í öll menningarformin; tón
list, myndlist, dans, kvikmyndir og
fleira svo allir geti fundið eitthvað
við sitt hæfi. Til dæmis verður frá
bært þriggja daga námskeið í fyrstu
vikunni sem heitir Krakkaveldi og
er styrkt af Barnamenningarsjóði.
Það kemur hingað í gegnum sam
tök sem heita List fyrir alla. Það
byrjar í skólanum og heldur svo
áfram í Frystiklefanum fyrir þá sem
hafa áhuga. Svo erum við með dans
smiðju í íþróttahúsinu í Ólafsvík,
en hér er enginn danskennsla og
við viljum nýta tækifærið og kynna
ýmislegt sem stendur börnum ekki
til boða hér.
Rappsmiðja með
Reykjavíkurdætrum
Á dagskrá verður m.a. boðið upp
á Rappsmiðju með Reykjavíkur
dætrum og ball fyrir ungling
ana með DJ Dóru Júlíu. ,,Svo
verður skemmtilegur fjölskyldu
dagur í félagsheimilinu Klifi þar
sem við fáum góða gesti og gerum
margt skemmtilegt saman með
börnunum. Þjóðgarðurinn Snæ
fellsjökull verður með viðburð,
það verður svo listanámskeiðið á
vegum Listfellsnes, bíósýningar,
sundlaugarpartý fyrir unglingana
og stuttmyndasamkeppni á vegum
Northern Wave Film Festival fyrir
öll börn á Vesturlandi. Fyrsti við
burður hátíðarinnar er hins vegar
samstarfsverkefni Ingu myndlistar
kennara og Bjarna og Ragnheiðar,
en það er listafólk sem keypti hús
hérna á Hellissandi sem áður hét
Blómsturvellir og eru að breyta
því í gallerí sem heitir Himinbjörg.
Þau taka á móti krökkum og mála
með þeim. Hátíðin stendur í rúmar
þrjár vikur þannig að það verður
margt í boði. Það ættu allir að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi,“ segir
Heimir Berg. sþ
Barnamenningarhátíð Vesturlands að hefjast