Fréttablaðið - 01.11.2022, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 01.11.2022, Blaðsíða 16
Guðmundur Hilmarsson gummih @frettabladid.is Á alþjóðlegum degi græn- kera, sem er í dag, ætla Samtök grænkera á Íslandi að gera sér glaðan dag og halda pálínuboð (potluck) á Hallveigarstöðum, Túngötu 14, klukkan 18. Samtök grænkera á Íslandi ætla á alþjóðlegum degi grænkera að afhenta hvatningarverðlaun til framúrskarandi einstaklinga og fyrirtækja sem hafa aukið valkosti grænkerakosta og/eða vakið fólk til vitundar um hugmyndafræðina að baki grænkeralífsstíls með störfum sínum. „Við ætlum að fagna þessum alþjóðlega vegandegi með pálínu- boði. Þetta er góð samverustund þar sem allir koma með einn veganrétt á borðið og við njótum matarins saman. Í leiðinni er þetta góð leið fyrir grænkera að hittast og kynnast. Síðan munum við afhenda hvatningarverðlaun árs- ins. Við kjósum alltaf um einstak- ling og fyrirtæki á aðalfundi sem okkur finnst hafa skarað fram úr í þessum málefnum,“ segir Valgerð- ur Árnadóttir, formaður Samtaka grænkera á Íslandi, en ekki hefur verið hægt að halda pálínuboð frá því fyrir heimsfaraldurinn. Hefur vaxið ofboðslega mikið Samtök grænkera á Íslandi voru stofnuð árið 2013. Skráðir með- limir og félagar í samtökunum eru um 570 að sögn Valgerðar. „Svo erum við með Vegan Ísland-hóp- inn á Facebook og í honum eru tæplega 25 þúsund manns. Þetta hefur vaxið of boðslega mikið og hratt eins og sést bara á vöruúr- vali í verslunum og á veitinga- stöðum. Það er alls staðar hægt að fá góðan vegan mat og umræðan í samfélaginu um þetta málefni orðin upplýstari. Við leggjum okkur fram um að upplýsa af hverju við tökum þetta skref hvort sem það er fyrir umhverfið, dýrin eða heilsuna,“ segir Valgerður. Valgerður segir að aðalbaráttu- Viljum ekki að dýr þurfi að þjást  að óþörfu Valgerður Árnadóttir er formaður Sam- taka grænkera á Íslandi sem ætla að gera sér glaðan dag á alþjóðlegum degi grænkera. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI Ég hef alltaf verið dýravinur. Mín hugsjón er að skaða ekki dýr. Við eigum að bera virðingu fyrir þeim og jörðinni. Valgerður Árnadóttir málið sé að berjast fyrir rétt- indum og velferð dýra. „Við erum ásamt öðrum dýraverndunarsam- tökum á Íslandi mjög upptekin af því sem gengur á núna með MAST (Matvælastofnun) og hvernig þau eru að bregðast hlutverki sínu gagnvart dýrum. Það er okkur hugleikið. Við viljum ekki að dýr þurfi að þjást að óþörfu og við viljum að það séu strangar reglu- gerðir og viðurlög við því að van- rækja eða misþyrma dýrum. Þetta er skyni bornar verur sem eiga betra skilið en að það sé komið fram við þær eins og vörur,“ segir Valgerður. Er f lóran alltaf að aukast hvað varðar grænkerafæði? „Úrvalið er alltaf að aukast vegna þess að vegan fæði er í eðli sínu umhverfisvænna en dýraafurðir. Þá eru auðvitað fyrirtæki, um leið og þau reyna að stíga skrefið til umhverfis- vænni framleiðslu, að sjá tækifæri í því að framleiða grænkerafæði í auknum mæli sem er mjög gott mál. Við höfum verið að þrýsta á stjórnvöld að gera betur, bæði að leggja meira í að rækta græn- meti, styrkja bændur til að skipta yfir í það eða að rækta meira af grænmeti, kornvörum og jafnvel væri hægt að fara út í baunarækt eða rækta þörunga til að fá nær- ingarefni. Við fáum þau úr fiski en það er hægt að fá þau beint úr þörungum sem eru ræktaðir á mjög sjálf bæran máta. Það er hröð þróun og meiri vakning um þessi mál,“ segir Valgerður. Hætti að borða kjöt tólf ára Sjálf fór Valgerður út í að verða grænkeri fyrir tæpum átta árum þegar hún tók þátt í veganúar. „Fram að þessu hafði ég verið fiskæta. Ég hætti að borða kjöt þegar ég var tólf ára en hélt áfram að borða fisk. Mín vegferð er löng. Ég hef alltaf verið dýravinur. Mín hugsjón er að skaða ekki dýr. Við eigum að bera virðingu fyrir þeim og fyrir jörðinni,“ segir Valgerður sem hefur verið í forsvari fyrir Samtök grænkera í rúm tvö ár. „Ég fór fljótlega inn í samtökin þegar ég varð vegan fyrir átta árum og hef verið í stjórn síðan þá. Ég var varaformaður og fram- kvæmdastjóri áður en ég tók við formennskunni. Ég er því búin að vera mjög virk í samtökunum í átta ár. Við erum með mjög lýðræðislega stjórn. Þótt ég sé for- maður að heitinu til þá vinnum við að öllum málefnum saman. Þetta er alfarið í sjálfboðastarfi. Við fáum ekki krónu fyrir okkar störf. Við byggjum okkar félag upp á styrkjum og það eru félags- gjöld einu sinni á ári. Við höfum fengið styrki frá umhverfisráðu- neytinu, Landsbankanum og fleirum og þá sækjum við styrki til fyrirtækja í veganúar-átakinu sem er í janúar ár hvert,“ segir Valgerður. n elin@frettabladid.is Þeir sem forðast kjöt og fisk eru í minni hættu en aðrir á að fá alvar- lega hjartasjúkdóma samkvæmt nýlegri rannsókn. Þeir þurfa þó að auki að forðast reykingar og óheil- brigðan lífsstíl. Plöntufæði hefur aukist mikið og umhverfisvernd er stór þáttur í því. Þeir sem svöruðu sögðu ástæðuna ýmist vera dýra- vernd eða loftslagsbreytingar. Læknaneminn Jarle Sæby Dybvik, ásamt fræðimönnunum Metta Svendsen og Dagfinn Aune hjá Imperial College í London, hafa rannsakað áhrif grænmetisfæðis á hjarta- og æðasjúkdóma. Þau skoð- uðu gögn úr þrettán stórum rann- sóknum þar sem grænmetisætum annars vegar og kjöt- og fiskætum hins vegar var fylgt eftir í mörg ár. Grænmetisæturnar borðuðu hvorki sjávarfang né kjöt af dýrum. Hins vegar mátti fólkið borða bæði egg og mjólkurvörur. Alls voru 850 þúsund þátttak- endur í rannsóknunum. Um 115 þúsund þeirra fengu hjarta- eða æðasjúkdóma á tímabilinu, yfir 14 þúsund fengu heilablóðfall. Niðurstöðurnar sýndu að græn- metisæturnar voru að meðaltali í 15% minni hættu á að fá hjarta- og æðasjúkdóma almennt, sem þykja umtalsvert færri tilfelli en hjá kjöt ætum. Hins vegar fundu vísindamenn engin ákveðin tengsl á milli mataræðis og heilablóðfalls. Þessar niðurstöður falla vel að fyrri rannsóknum en frekari rannsóknir eru nauðsynlegar til að öðlast betri þekkingu á tengslum mataræðis og heilablóðfalls, skrifar Aune og samstarfsmenn hans í European Journal of Nutrition. Sama gildir um tengsl hjarta- sjúkdóma og vegan fæðis, það er mataræðis sem inniheldur engar dýraafurðir. Gögnin sýna svipaðar niðurstöður með vegan þegar kemur að hjartasjúkdómum. Þá benda vísindamenn á að græn- metisætur séu oftar meðvitaðri um heilsuna en aðrir, noti ekki tóbaki og drekki minna áfengi ásamt því að hreyfa sig meira. Allt getur þetta verið skýring. Reykingar eru stór áhættuþáttur í hjarta- og æða- Fá síður hjarta- og æðasjúkdóma Heilbrigður lífsstíll skiptir sköpum varðandi áhættu á alvarlegum sjúk- dómum. Mataræði getur sömuleiðis skipt miklu máli. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY sjúkdómum. Grænmetisætur sem reykja geta því aukið hættu sína á að fá hjartasjúkdóma. Vísinda- menn vilja sjaldnast fullyrða neitt um niðurstöður en sannarlega segja þeir að heilsusamlegt líferni, svo sem hreyfing og góður lífsstíll dragi úr líkum á alvarlegum sjúk- dómum. Þá má geta þess að fólk sem hættir að borða mat úr dýraríkinu er oft með lakari vítamínstöðu en kjötætur. Mikilvægast er inntaka joðs, það er vegna þess að vegan fólk forðast mjólkurvörur. Þá þarf að huga að inntöku á selen og sinki. Vegan fólk hefur lægra kólestról en alætur. Það þarf hins vegar að huga vel að inntöku vítamína og bæti- efni. B-12 er þar á meðal og járn. n 4 kynningarblað 1. nóvember 2022 ÞRIÐJUDAGURVEGAN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.