Fréttablaðið - 01.11.2022, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 01.11.2022, Blaðsíða 36
Fólk er mikið að túra og er rosa upptekið og því þurftum við vett- vang sem var stöðugur og viðvarandi. OKKAR VINSÆLA LAGERSALA VERÐUR OPNUÐ Á MORGUN Í HOLTAGÖRÐUM VÖRUR FRÁ EFTIRTÖLDUM VERSLUNUM EINFALT OG ÞÆGILEGT 2.000.- KR • 3.000.- KR • 4.000.- KR • 5.000.- KR 7.000.- KR • 9.000.- KR • 12.000.- KR • 15.000.- KR • 20.000.- KR lagersalantc lagersalantc Holtagarðar AFSLÁTTUR 60- 80% Á MORGUN kl.12:00 Kim Wagenaar er einn stofnenda MMF á Íslandi, sem stendur fyrir Music Management Forum. Sam- hliða því hefur hún hleypt af stokkunum Shesaid.so, Íslandsdeild alþjóðlegra hagsmunasamtaka kvenna í tónlistarbransanum. ninarichter@frettabladid.is Hollenski umboðsmaðurinn Kim Wagenaar hefur verið búsett á Íslandi í nokkur ár. Á þeim tíma hefur hún skapað sér nafn í íslenskri tónlistarsenu sem fulltrúi tónlistar- fólks og umboðsmaður. Hún hefur meðal annars unnið fyrir Damien Rice og Ólaf Arnalds, ásamt fjölda annarra. Music Managers Forum, sem skammstafast MMF, eru stærstu samtök umboðsmanna tónlistar- fólks í heiminum. Samtökin miða að því að vera upplýsingaveita og sam- félag fyrir umboðsmenn í faginu. Opnunarhóf Íslandsdeildarinnar er í dag á KEX hostel klukkan 18.00 og eru allir velkomnir. Í fréttatil- kynningu á síðu viðburðarins segir: „Með því að stofna sjálfstæða deild á Íslandi með fyrirmynd og stuðningi Bretlandsdeildarinnar verða með- limirnir hluti af alþjóðlegu sam- félagi á sama tíma og þeir styðja við sívaxandi samfélag umboðsmanna á Íslandi. Þá ljá samtökin íslenskum listamönnum rödd, hér á landi og víðar.“ Kim útskýrir að í núverandi umhverfi séu umboðsmenn tón- listarfólks á Íslandi að vinna sem Samtök umboðsmanna og Íslandsdeild Shesaid.so Hollenski umboðsmaðurinn Kim Wagenaar ásamt tíkinni Zoe. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI sjálfstæðar eyjar og ekki sé sam- félag utan um fagið með tilheyrandi stuðningi. Hugmyndin að stofnun Íslandsdeildar MMF kom til í upp- hafi árs þegar ÚTÓN stóð fyrir samráðsfundi umboðsmanna. „Í framhaldinu ákváðum við að halda reglulega umboðsmannafundi,“ segir Kim. „En fólk er mikið að túra og er rosa upptekið og því þurftum við vettvang sem var stöðugur og viðvarandi,“ segir hún. Að stofnun MMF standa, auk Kim, þeir Nick Knowles frá KxKn Management og Árni Þór Árnason, umboðsmaður Ólafs Arnalds. Auk MMF stendur Kim að stofn- un Shesaid.so á Íslandi. Um er að ræða alþjóðleg samtök kvenna í tón- listariðnaði á Íslandi. Kim vinnur að verkefninu í samstarfi við Hrefnu Helgadóttur, Önnu Jónu Dungal og Kelechi Amadi. Að sögn Kim er mikil þörf á almennu m samráðsvett vang i kvenna og kynsegin fólks í tón- listariðnaði, ekki eingöngu sem snýr að tónlistarfólki heldur einnig tæknifólki, fjölmiðlafólki og þeim sem standa að umboðsmennsku. n 16 Lífið 1. nóvember 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 1. nóvember 2022 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.