Fréttablaðið - 01.11.2022, Blaðsíða 38
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@
frettabladid.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrir@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078:
Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolbeinn@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
www.husgagnahollin.is
Sími: 558 1100
Jólakvöld
Upplifðu yndislega
jólastemningu með okkur.
Léttar veitingar og ljúfir
jólatónar. Skoðaðu
viðburðinn á facebook.
Skannaðu QR kóðann
Sjáumst hress
í höllinni!
Húsgagnahallarinnar
Reykjavík og Akureyri
Miðvikudag
kl. 1900–2200
Reykjavík Akureyri
Hátíð fyrir yngstu kvik-
myndaunnendurna stendur
nú yfir í Reykjavík en þar er
margt í boði, til að mynda
stuttmyndaröð um Einar
Áskel, dönsk hrekkjavöku-
mynd og báðar íslensku dans-
og söngvamyndirnar sem
Íslendingar hafa framleitt.
ninarichter@frettabladid.is
Barnakvikmyndahátíð í Bíó paradís
stendur nú yfir. Hátíðin er haldin í
níunda sinn og nýtur stuðnings
Kvikmyndamiðstöðvar og Reykja-
víkurborgar, ásamt fleirum.
Evrópa og hrekkjavakan í fókus
„Á hverju ári vinnum við með
þema. Þemað í ár er Evrópa, við
einbeitum okkur því að evrópskum
barna- og fjölskyldumyndum,“ segir
verkefna- og dagskrárstjóri hátíðar-
innar Lísa Björg Attensperger.
„Hátíðin er á hrekkjavöku og við
ætlum að sýna úrval hrekkjavöku-
mynda,“ segir hún og bætir við að
opnunarmynd hátíðarinnar sé til
dæmis danska fjölskyldumyndin
Horfin á hrekkjavöku. „Við vorum
með lifandi talsetningarf lutning
á opnunarmyndinni á laugardag
og fengum í lið með okkur nokkra
leikara til að talsetja myndina á
staðnum,“ segir Lísa. „Það var ótrú-
lega skemmtilegt og algjört fjör.
Fyrir þá sem misstu af þeim
viðburði en langar endilega að
verða vitni að lifandi talsetningu,
er boðið upp á aðra slíka sýningu
á laugardaginn. „Við ætlum að
vera með svona lifandi f lutning á
laugardaginn á myndum um Einar
Áskel, sem fagnar 50 ára afmæli í ár.
Þórunn Lárusdóttir leikkona ætlar
að lesa þær yfir,“ segir Lísa. „Það er
svona sögumaður og verður rosa-
lega skemmtilegt, og það elska allir
Einar Áskel,“ segir hún létt. Sýning-
arnar fara fram klukkan 10, 11 og
14 á laugardag og það er frítt inn, en
að sögn Lísu rjúka miðarnir hratt út.
Hægt er að tryggja sér miða á vef Bíó
Paradísar og á Tix.is.
Ekki allt talsett á hátíðinni
Barnakvikmyndahátíðin fór áður
fram að vori en var færð yfir á haust-
mánuði í fyrra vegna heimsfarald-
ursins. „Það var síðan svo ótrúlega
gaman og margt hægt að gera,“ segir
Lísa.
Sumar myndirnar eru með
íslenskum texta en ekki íslensku
Anna Frank, Apastjarna og
leiklesinn Einar Áskell
Lísa Björg
Attensperger,
dagskrárstjóri
Barnakvik-
myndahátíðar
tali. „Þegar við fáum inn efni þurf-
um við að hugsa hvernig við komum
því til skila, en börnin eru rosalega
vön að horfa á sjónvarpsefni á ensku
og vön að lesa enskan texta,“ útskýr-
ir Lísa. „Okkar stærsta áskorun er
að velja hvað við talsetjum og hvað
við textum, en börnin eru farin að
tala og lesa ensku rosalega ung. Við
þurfum ekkert endilega að talsetja
allt saman og börnunum finnst það
kannski hallærislegt stundum. Við
erum ekki talsetningarþjóð eins og
á mörgum öðrum stöðum,“ segir
hún.
Lísa bætir við að þrátt fyrir það
beri þeim að sýna íslenskt efni
líka. „Við erum að sýna Regínu frá
2001 og Abbababb, sem er önnur
dans- og söngvamyndin sem gerð
er á Íslandi. Það eru nefnilega bara
þessar tvær, og það eru 20 ár á milli
þeirra sem er alveg ótrúlegt,“ segir
Lísa.
Á föstudag verður hátíðarsýning
á Abbababb og munu leikarar úr
myndinni sitja fyrir svörum ungra
áhorfenda úr salnum. „Það verður
gaman fyrir krakkana enda eru þau
mörg sem hafa áhuga á leiklist.“
Pólsk fjölskyldumynd í boði
Þá verður pólsk fjölskyldumynd
í boði fyrir pólskumælandi kvik-
myndaaðdáendur. „Það er Detec-
tive Bruno sem fjallar um strák
sem er að leita að foreldrum sínum
og þarf að finna þau í gegnum vís-
bendingar. Hann fær með sér í
lið sjónvarpsstjörnuna Detective
Bruno.“ Myndin er sýnd á pólsku
með enskum texta og er hugsuð
fyrir pólskar fjölskyldur og pólsku-
mælandi samfélagið hér, auðvitað er
sýningin öllum opin.“
Almennt sýningarverð gildir
á barnakvikmyndahátíðinni en
barnaverð á bíómiða er 1.100 krón-
ur. „Þá eru ýmsir fríviðburðir og svo
er frítt á sýningu á heimildarmynd-
um eftir börn. Það er verkefni sem
var á vegum Skjaldbökunnar sem
var hluti af Skjaldborgarhátíðinni,
uppskeruhátíð heimildarmynda.“
Í heildina eru þrettán myndir í
fullri lengd á hátíðinni. Þá eru þrír
stuttmyndapakkar, þar á meðal
fyrrnefnd sýning á myndum um
Einar Áskel, kvikmyndin Apa-
stjarnan og teiknimynd fyrir eldri
börn sem byggð er á dagbókum
Önnu Frank. n
Það var mikið
um dýrðir á
opnunarhófi
hátíðarinnar
í Bíó Paradís
á dögunum.
MYND/SIGRÍÐUR
HERMANNSDÓTTIR
18 Lífið 1. nóvember 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ