Fréttablaðið - 01.11.2022, Side 36
Fólk er mikið að túra
og er rosa upptekið og
því þurftum við vett-
vang sem var stöðugur
og viðvarandi.
OKKAR VINSÆLA
LAGERSALA
VERÐUR OPNUÐ Á MORGUN
Í HOLTAGÖRÐUM
VÖRUR FRÁ EFTIRTÖLDUM VERSLUNUM
EINFALT OG ÞÆGILEGT
2.000.- KR • 3.000.- KR • 4.000.- KR • 5.000.- KR 7.000.- KR • 9.000.- KR • 12.000.- KR • 15.000.- KR • 20.000.- KR
lagersalantc lagersalantc Holtagarðar
AFSLÁTTUR
60-
80%
Á
MORGUN
kl.12:00
Kim Wagenaar er einn
stofnenda MMF á Íslandi,
sem stendur fyrir Music
Management Forum. Sam-
hliða því hefur hún hleypt
af stokkunum Shesaid.so,
Íslandsdeild alþjóðlegra
hagsmunasamtaka kvenna í
tónlistarbransanum.
ninarichter@frettabladid.is
Hollenski umboðsmaðurinn Kim
Wagenaar hefur verið búsett á
Íslandi í nokkur ár. Á þeim tíma
hefur hún skapað sér nafn í íslenskri
tónlistarsenu sem fulltrúi tónlistar-
fólks og umboðsmaður. Hún hefur
meðal annars unnið fyrir Damien
Rice og Ólaf Arnalds, ásamt fjölda
annarra.
Music Managers Forum, sem
skammstafast MMF, eru stærstu
samtök umboðsmanna tónlistar-
fólks í heiminum. Samtökin miða að
því að vera upplýsingaveita og sam-
félag fyrir umboðsmenn í faginu.
Opnunarhóf Íslandsdeildarinnar
er í dag á KEX hostel klukkan 18.00
og eru allir velkomnir. Í fréttatil-
kynningu á síðu viðburðarins segir:
„Með því að stofna sjálfstæða deild á
Íslandi með fyrirmynd og stuðningi
Bretlandsdeildarinnar verða með-
limirnir hluti af alþjóðlegu sam-
félagi á sama tíma og þeir styðja við
sívaxandi samfélag umboðsmanna
á Íslandi. Þá ljá samtökin íslenskum
listamönnum rödd, hér á landi og
víðar.“
Kim útskýrir að í núverandi
umhverfi séu umboðsmenn tón-
listarfólks á Íslandi að vinna sem
Samtök umboðsmanna
og Íslandsdeild Shesaid.so
Hollenski umboðsmaðurinn Kim Wagenaar ásamt tíkinni Zoe. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
sjálfstæðar eyjar og ekki sé sam-
félag utan um fagið með tilheyrandi
stuðningi. Hugmyndin að stofnun
Íslandsdeildar MMF kom til í upp-
hafi árs þegar ÚTÓN stóð fyrir
samráðsfundi umboðsmanna. „Í
framhaldinu ákváðum við að halda
reglulega umboðsmannafundi,“
segir Kim. „En fólk er mikið að túra
og er rosa upptekið og því þurftum
við vettvang sem var stöðugur og
viðvarandi,“ segir hún.
Að stofnun MMF standa, auk
Kim, þeir Nick Knowles frá KxKn
Management og Árni Þór Árnason,
umboðsmaður Ólafs Arnalds.
Auk MMF stendur Kim að stofn-
un Shesaid.so á Íslandi. Um er að
ræða alþjóðleg samtök kvenna í tón-
listariðnaði á Íslandi. Kim vinnur að
verkefninu í samstarfi við Hrefnu
Helgadóttur, Önnu Jónu Dungal og
Kelechi Amadi.
Að sögn Kim er mikil þörf á
almennu m samráðsvett vang i
kvenna og kynsegin fólks í tón-
listariðnaði, ekki eingöngu sem
snýr að tónlistarfólki heldur einnig
tæknifólki, fjölmiðlafólki og þeim
sem standa að umboðsmennsku. n
16 Lífið 1. nóvember 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 1. nóvember 2022 ÞRIÐJUDAGUR