Fréttablaðið - 05.11.2022, Side 4

Fréttablaðið - 05.11.2022, Side 4
Við þurfum öll að geta búið saman. Sverrir Guðjónsson, íbúi í Grjótaþorpi Mikið um dýrðir Það vantar alltaf meira pláss Reiknaðu með meira plássi á rymi.is. Íbúar í miðbænum héldu málþing um hávaða á nóttunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Framkvæmdastjóri samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði segir að miðbærinn búi við fráflæðisvandamál, en íbúi í miðbænum segir að um hávaðaofbeldi sé að ræða. benediktarnar@frettabladid.is REYKJAVÍK Skemmtistaðaeigendur og íbúar miðborgarinnar hafa lengi staðið í deilum vegna hávaðans sem stafar frá næturlífi Reykjavíkur. Á fimmtudag fór fram málþing þar sem hávaðavandamálið var rætt, en meðal fundargesta voru íbúar mið- borgar, lögregla, borgarfulltrúar og einn veitingamaður. Sverrir Guðjónsson, íbúi í Grjóta- þorpi og einn þeirra sem héldu erindi á málþinginu, segir að það komi ekki til greina að flytja úr mið- bænum, þar sem hann hefur búið ásamt fjölskyldu sinni í yfir tuttugu ár. Hann lýsir framferði skemmti- staðanna sem hávaðaofbeldi. „Veitingastaðir, barir og skemmti- staðir hafa lagt áherslu á að þeir séu með öll leyfi. En þeir gleyma því að veitingaleyfið gefur ekki leyfi fyrir hávaða. Þau horfa algjörlega fram hjá því að það er verið að brjóta á okkur sem búum í nágrenninu,“ segir Sverrir. Að sögn Sverris var málþingið mikilvægt því bæta þurfi samskipti íbúa og skemmtistaðaeigenda. „Það var mikil samstaða á fundin- um og það kom ýmislegt fram sem varpaði ljósi á það sem er í gangi á þessum skemmtistöðum,“ segir Sverrir. Ef hann myndi flytja úr mið- bænum væri hann að samþykkja meint lögbrot skemmtistaðanna. „Við veljum að búa í bænum, ég og mín fjölskylda höfum búið hér í tuttugu og fimm ár. Þetta hefur ekki alltaf verið svona. Það er alls ekki eðlileg mótbára að segja fólki að flytja ef það þolir ekki ólöglegan hávaða sem heldur vöku fyrir þeim sem eiga heima í miðbænum,“ segir Sverrir. „Við þurfum öll að geta búið saman. Ég er viss um það að aðil- arnir sem eiga þessa skemmtistaði, þeir myndu ekki samþykkja það að fá hátalara í næsta garð við hliðina á sínu herbergi og geta ekki sofið. Þetta er svo fáránlegt,“ segir Sverrir. Aðalgeir Ásvaldsson, f ram- k væmdastjóri Samtaka f y rir- tækja á veitingamarkaði, fagnar allri umræðu um bættan rekstur skemmtistaða. Hann telur að vanda- málið liggi í fráf læðisvandanum vegna skorts á úrræðum fyrir fólk til að komast heim úr miðborginni. „Ég fagna allri umræðu og mér finnst að það sé undir okkar ábyrgð að taka mark á þessum kvörtunum sem eru síendurteknar,“ segir hann. Aðalgeir segir að langflestir staðir vinni eftir sínum rekstrarleyfum og að þeir séu fullkomlega innan síns réttar. „Það sem er kannski aðalmálið fyrir okkur er fráflæðisvandamálið, það skapar mikla togstreitu þegar fólk kemst ekki heim frá bænum, því það er verulegur skortur á val- möguleikum. Við hefðum viljað sjá meiri kraft settan í næturstrætó og það er skortur á leigubílum. Þegar fólk kemst ekki heim þá skapast átök og hávaði úti á götu,“ segir Aðalgeir. „Þetta er samvinnuverkefni og langtímaverkefni, enda eru engar skammtímalausnir í þessu. En við erum föst á því að staðir geta unnið eftir ramma leyfis síns og við stönd- um með því,“ segir Aðalgeir. n Íbúi telur hávaðann ofbeldi bth@frettabladid.is SAMFÉLAG Kristín Davíðsdóttir, hjúkrunarfræðingur á Landspítala, segir um núning milli lögreglu og Rauða krossins, að notendur þjón- ustu Frú Ragnheiðar beri ekkert traust til lögreglunnar. Í pistli sem Kristín birti á visir.is í gær vegna fréttar Fréttablaðsins um ráðstefnu SÁÁ, þar sem lögreglu- maðurinn Guðmundur Fylkisson sagði starfsfólk skaðaminnkunar- þjónustu Rauða krossins, Frú Ragn- heiði, þjónusta börn undir lögaldri án þess að lögregla væri látin vita og að týnd börn fengju þjónustu. „Ég hef unnið mikið og náið með þessum hópi undanfarin ár og leyfi mér að fullyrða það að það traust sem einstaklingar innan hópsins bera til lögreglunnar er afskaplega takmarkað, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Það að einstaklingar skuli frekar hringja í Frú Ragnheiði en neyðarþjónustu 112 þegar upp kemur neyðarástand segir í raun allt sem segja þarf.“ Flest þeirra segjast gera allt frekar en að hringja í lög- regluna, að sögn Kristínar. „Ég legg til að Guðmundur og félagar í lögreglunni hnýti frekar í yfirvöld og aðra hlutaðeigandi aðila sem eru ekki að veita þessum einstaklingum þá þjónustu sem þeir þurfa, frekar en að agnúast út í þá sem eru aðgengilegir og til staðar þegar leitað er til þeirra, án allra skuldbindinga og kostnaðar,“ segir Kristín. n Segir vanda að ekki sé borið traust til lögreglu Ég legg til að Guð- mundur og félagar í lögreglunni hnýti frekar í yfirvöld. Kristín Davíðsdóttir, hjúkrunarfræðingur á Landspítala Kristín Davíðsdóttir hjúkrunarfræð- ingur. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Góð stemning var í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi enda margt á seyði. Tónlistarhátíðin Airwaves er á fullu með óteljandi spennandi listamönnum og gestum hvaðanæva úr heiminum. Þá er jólabjórinn kominn í umferð og því var skilmerkilega fagnað á Dönsku kránni í Ingólfstræti. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI odduraevar@frettabladid.is HÆ LI S LE ITE N DU R Dreng u r f rá Afganistan sem kom til Íslands sem fylgdarlaust barn er á meðal þeirra sem vísað var úr landi í aðfaranótt fimmtudags. Talsmaður drengsins segir að niðurstaðan hefði verið önnur ef Útlendingastofnun hefði unnið hraðar. Drengurinn var sautján ára er hann kom til Íslands fyrir jól í fyrra að sögn Davor Purusic, tals- manns hans. Í mars hafi hann orðið átján ára og staða hans gjörbreyst. „Ef einstaklingur kemur til lands- ins, þá á hann ekki að gjalda þess að stjórnvöld taki langan tíma að ákveða umsóknina hans.“ n Varð fullorðinn og missti rétt sinn 2 Fréttir 5. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.