Fréttablaðið - 05.11.2022, Síða 6
Jón
Gunnarsson
dómsmálaráðherra
var í brennidepli
eftir að ákvörðun
var tekin um að
vísa fimmtán
hælisleitendum
úr landi. Brott-
vísunin var gerð í skjóli nætur og
reyndi lögregla að byrgja fjöl-
miðlum sýn en Jón sagði eftir ríkis-
stjórnarfund í gær að brottvísunin
hefði verið eðlileg.
Heather
Millard
kvikmynda-
framleiðandi
frumýndi kvik-
myndina Band
hér á landi í vik-
unni. Leikstjór-
inn breski kom
til Íslands í eitt verkefni árið 2009
en heillaðist af landinu og er í dag í
fyrirtækjarekstri. Hún segir rólegt
lífið á Íslandi æðislegt og nýtur sín
best með íslenska vatnið, ýmist við
að drekka það eða í sundi.
Birgir
Ármannsson
forseti Alþingis
vakti athygli
í vikunni er
hann neitaði að
afhenda Við-
skiptablaðinu
og fleiri greinar-
gerð setts ríkisendurskoðanda um
starfsemi Lindarhvols ehf., félags á
vegum fjármálaráðuneytisins sem
fór með eignir sem ríkið eignaðist
eftir hrunið. Birgir sagði í samtali
við Fréttablaðið að ástæða þess að
hann afhendir ekki greinargerðina
sé sú að athugasemdir hafi borist
frá Ríkisendurskoðun og stjórn
Lindarhvols. n
n Þrjú í fréttum
15
hælisleit-
endum var
vísað úr landi
í vikunni og voru fluttir
til Grikklands.
160
prósenta
fjölgun varð
á starfsfólki
Seðlabankans frá alda-
mótum, úr 113 í 294.
42
hjörtu hafa
Íslendingar
gefið frá alda-
mótum en 24 hafa
fengið hjartaígræðslu.
5.
árið í röð
voru engin
banaslys hjá
sjómönnum á síðasta
ári.
197
milljón-
ir voru
greiddar
til þolenda ofbeldis hér á
landi á síðasta ári.
n Tölur vikunnar
BJÓÐUM UPP Á 37”-40”
BREYTINGAPAKKA
EIGUM NOKKRA BÍLA TIL
AFHENDINGAR Í NÓVEMBER
ÍSBAND UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16
R A M
BÍLL Á MYND: RAM 3500 LARAMIE CREW CAB MEÐ 37” BREYTINGU, KASTARAGRIND OG LJÓSKÖSTURUM
Mikið samband er milli
ofbeldis, áfalla og fíknar.
Fjöldi þolenda reynir sjálfs-
víg. Bæta þarf í meðferðar-
starf í fangelsum.
bth@frettabladid.is
OFBELDI Stígamót hafa þjónustað
yfir 10.000 einstaklinga frá því að
samtökin tóku til starfa, langmest
konur. Í fyrra var metár hvað varðar
fjölda brotaþola, að sögn verkefnis-
stjóra sem flutti erindi á málstefnu
SÁÁ í vikunni. Um 200 manns eru
nú á biðlista hjá Stígamótum.
Eygló Árnadóttir, verkefnis-
stýra fræðslu og forvarna hjá Stíga-
mótum, rakti á málstefnunni að
baráttan gegn kynferðisof beldi
væri í fullum gír. Algengustu brotin
á skjólstæðingum væru nauðgun og
sifjaspell væri í öðru sæti. 79,8 pró-
sent þolenda kæra ekki ofbeldið til
lögreglu af ýmsum ástæðum.
Fram kom að algengar afleiðingar
sem brotaþolar burðast með jafnvel
áratugum saman eru kvíði, skömm,
sektarkennd, brotin sjálfsmynd.
„Þriðjungur okkar fólks hefur
reynt að svipta sig lífi,“ sagði Eygló.
32,7 prósent nota áfengi sem flótta
vegna afleiðinga ofbeldis. 70 prósent
þolenda eru að reyna að vinna úr
ofbeldi sem þau urðu fyrir 17 ára og
yngri, sem er til marks um hve brot
gegn börnum eru algeng hér á landi.
Í f lestum tilvikum fengu börnin
sem brotið var á enga aðstoð. Oft
var farið gegnum barnavernd en
sjaldnast rætt um kynferðisofbeldi,
að sögn Eyglóar. Afleiðingar verða
ýktari eftir því sem lengra líður
án meðhöndlunar. „Því yngra sem
fólk er við fyrsta kynferðisbrot, því
alvarlegri verða af leiðingarnar,“
sagði Eygló.
Tengsl áfalla og fíknisjúkdóma
voru eitt af leiðandi stefum á mál-
stefnunni. Kom fram sú ósk að í
meðferðarstarfi hjá SÁÁ yrði í aukn-
um mæli hugað að ábyrgð gerenda.
Rætt var að takmörkuð meðferð-
arúrræði stæðu til boða fyrir fanga
á Íslandi. Aðeins er boðið upp á
meðferðargang í einu fangelsi, fyrir
karla á Litla-Hrauni. Engar konur
í afplánun eiga þess kost að vera í
virkri meðferð á vegum hins opin-
bera.
Guðmundur Ingi Þóroddsson,
formaður Afstöðu, félags fanga,
gagnrýndi skort á stuðningi við
meðferðarúrræði í fangelsum. Taldi
hann að refsiharka einkenndi hug-
myndfræði gagnvart föngum með
fíkn, ólíkt áherslum á Norðurlönd-
unum. Hjá sálfræðingi á vegum
Fangelsismálastofnunar kom fram
að það væri til vansa að geta ekki
boðið upp á aðstöðu til að afeitra
fólk.
Megintilgangur málstefnunnar
fólst í viðleitni til að auka sam-
starf þess fjölda ólíkra stofnana og
samtaka sem starfa að málum sem
tengjast fíknisjúkdómum.
Fram kom hjá Valgerði Rúnars-
dóttur, yfirlækni SÁÁ, að margt gott
hefði áunnist í merðferðarstarfi en
aldrei mætti sofa á verðinum. Það
sem vekur einna mestar áhyggjur
undanfarið, að sögn Valgerðar, er
hátt hlutfall notenda ópíóíða og tíð
dauðsföll. Aldrei hafa f leiri í með-
ferð á Vogi verið án atvinnu en nú,
um 70 prósent. n
Metár í fyrra hjá Stígamótum í fjölda
brotaþola og tíðar sjálfsvígstilraunir
Sláandi tölur voru birtar um samband áfalla og fíknar á málstefnu SÁÁ. MYND/GRÍMUR KOLBEINSSON
Þriðjungur okkar fólks
hefur reynt að svipta
sig lífi.
Eygló Árnadóttir,
verkefnisstýra
hjá Stígamótum
4 Fréttir 5. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ