Fréttablaðið - 05.11.2022, Qupperneq 8
Það eru mál eins og
þetta flóttamannamál
sem er skeinuhættara
ríkisstjórninni en
formannsskipti i
Sjálfstæðisflokknum.
Eiríkur
Bergmann,
prófessor við
Háskólann á
Bifröst
Samfylkingin fékk
mörg föst skot og það
er ekki annað að sjá en
að Bjarni sjái þar
and stæðing sem rétt sé
að gefa gaum.
Grétar Þór
Eyþórsson,
prófessor við HA
Mjólk
er góð
helgisteinar@frettabladid.is
AKUREYRI Vi nabæja s a m st a r f
Akureyrar við rússnesku borgina
Múrmansk var ekki tekið fyrir á
bæjarráðsfundi Akureyrarbæjar á
fimmtudag. Vinabæjasamstarfið
var undirritað árið 1994 í von um
að stuðla að auknum viðskiptum í
sambandi við slipp, en ekkert varð
úr þeim áformum.
Norska borgin Tromsö ákvað í
október að slíta vinabæjasamstarfi
sínu við Múrmansk í mótmælaskyni
við stríðið í Úkraínu. Í kjölfar þeirrar
ákvörðunar greindi Ásthildur Sturlu-
dóttir, bæjarstjóri Akureyrarbæjar,
frá því að málið yrði líklega tekið
fyrir á næsta bæjarráðsfundi. n
Múrmansk verður
áfram vinabær
Akureyrar
bth@frettabladid.is
ALÞINGI Fyrsti varaþingmaður
Sjálfstæðisflokksins sem tekur sæti
á Alþingi ef Bjarni Benediktsson
tapar í formannskjörinu á sunnudag
og hættir á þingi, líkt og Bjarni hefur
gefið út, er Arnar Þór Jónsson, sem
fór fram í fimmta sæti í Kraganum
í síðustu þingkosningum.
„Ég hef ekki velt þessu fyrir mér,“
sagði Arnar Þór spurður út í stöð-
una.
„Nei, ég mun ekki greiða atkvæði
eftir mínum eigin hagsmunum
heldur minni eigin samvisku,“ segir
hann, spurður hvort hann hafi hags-
muni af því að greiða Guðlaugi Þór
Þórðarsyni atkvæði sitt.
„Ég tel að þeir hafi báðir margt til
síns ágætis og vona að baráttan fari
drengilega fram,“ segir Arnar Þór.
Mikil spenna er á fundinum og
talið tvísýnt hvort Guðlaugur Þór
eða Bjarni hefur betur. n
Arnar Þór inn
ef Bjarni hættir
Arnar Þór Jónsson, fyrsti varaþing-
maður Sjálfstæðisflokksins.
Tveir prófessorar í stjórn-
málafræði nefna sama punkt
þegar spurt er hvað hafi vakið
mesta athygli í setningarræðu
Bjarna Benediktssonar í gær.
Hann hafi varið miklu púðri í
Samfylkinguna.
bth@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Athygli vekur, að sögn
tveggja prófessora í stjórnmála-
fræði, hve Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðisf lokksins og
fjármálaráðherra, gerði Samfylk-
ingunni hátt undir höfði sem höfuð-
andstæðingi flokksins.
Eiríkur Bergmann, prófessor
við Háskólann á Bifröst, hlustaði á
setningarræðu Bjarna á Landsfundi
Sjálfstæðisflokksins í Laugardals-
höllinni í gær en Bjarna var mjög vel
fagnað með miklu lófaklappi bæði
fyrir og eftir ræðu.
Spennandi dagar eru fram undan
hjá Bjarna og landsfundarfull-
trúum þar sem formannsslagur er
milli Guðlaugs Þórs Þórðarsonar og
Bjarna. Bjarni varði litlu púðri með
beinum orðum en sitthvað lá undir
orðum hans að mati stjórnmála-
fræðiprófessora.
Eiríkur Bergmann segir að ræða
Bjarna hafi reynt að svara gagn-
rýnisröddum Guðlaugs Þórs í kosn-
ingabaráttunni.
„Hann tekur inn fólkið í f lokkn-
um, hinn almenna flokksmann inn
í umræðuna, sem gæti verið svar við
gagnrýni Guðlaugs um að Bjarni
hafi ekki sinnt grasrótinni nægilega
vel,“ segir Eiríkur.
Þá segir Eiríkur að Bjarni hafi lagt
áherslu á atvinnulíf og að flokkur-
inn sé stjórnmálaflokkur athafna-
fólks og frumkvöðla, auk skýrrar
fullveldisafstöðu.
„En hann gerði Samfylkingunni
ansi hátt undir höfði, fannst mér,
gerir hana að höfuðandstæðingi
Sjálfstæðisflokksins. Það er athygl-
isvert,“ segir Eiríkur.
Eiríkur segir einnig að Bjarni hafi
í ræðu sinni ekki tekið utan um þá
öldu mótmæla sem risið hefur í
landinu vegna brottflutnings flótta-
manna.
„Einhverjir hafa sagt að breyting-
ar á forystu Sjálfstæðisflokksins geti
haft áhrif á lífvænleika stjórnarinn-
ar, sem ég tel ofmælt, en það eru mál
eins og þetta flóttamannamál sem
er skeinuhættara ríkisstjórninni
en formannsskipti i Sjálfstæðis-
flokknum,“ segir Eiríkur.
Grétar Þór Eyþórsson, stjórn-
Prófessorar segja athyglisvert hversu
mikið Bjarni ræddi Samfylkinguna
Bjarni Benediktsson talaði vel um ríkisstjórnarsamstarfið í ræðu sinni í gær þótt sumir spái að innflytjendamálin geti
reynst stjórninni erfið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
málafræðiprófessor við Háskólann
á Akureyri, segir um þann hluta
ræðu Bjarna sem varði formanns-
kjörið beint eða óbeint, að Bjarni
hafi fyrst og fremst lagt áherslu á
að koma því að hve vel hafi tekist
í ríkisstjórninni, hversu vel sam-
starfið hefði gengið þrátt fyrir mála-
miðlanir.
„Við þær aðstæður þar sem svo vel
gengur séu breytingar ekki skyn-
samlegar. Hann er í raun að halda
því á lofti hversu góður formaður
hann sé. Guðlaugur fær til að mynda
hrós,“ segir Grétar Þór.
Þá segir Grétar Þór áhugavert að
Bjarni hafi boðið Viðreisnarfólkið
velkomið heim, en líkt og Eiríkur
segir Grétar vekja einna mesta
athygli hve stór hluti ræðu Bjarna
hafi hverfst um Samfylkinguna.
„Samfylkingin fékk mörg föst
skot og það er ekki annað að sjá en
að Bjarni sjái þar andstæðing sem
rétt sé að gefa gaum,“ segir Grétar
Þór. „Þetta er athyglisvert er horft er
til smæðar flokksins eins og staðan
er í dag.“ n
gar@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Samkvæmt nýrri könn-
un sem Prósent hefur sent frá sér
segjast fleiri líklegri en ólíklegri til að
kjósa Sjálfstæðisflokkinn með Guð-
laug Þór Þórðarson sem formann
fremur en Bjarna Benediktsson,
sem verið hefur formaður flokksins
frá árinu 2009.
Af þeim sem svöruðu sögðust
samtals 36 prósent af þeim 1.072
sem tóku afstöðu vera líklegri til að
kjósa Sjálfstæðisflokkinn undir for-
ystu Guðlaugs Þórs en Bjarna. Sextán
prósent sögðust hins vegar vera ólík-
legri til að kjósa Sjálfstæðisflokkinn
með Guðlaug Þór við stjórnvölinn.
Þá sögðust alls 48 prósent hvorki lík-
legri né ólíklegri til að kjósa flokkinn
með Guðlaug sem formann.
Kjósa frekar Sjálfstæðisflokk
með Guðlaug sem formann
Værir þú líklegri eða ólíklegri
til að kjósa Sjálfstæðisflokkinn
undir forystu Guðlaugs Þórs
Þórðarsonar heldur en undir
forystu Bjarna Benediktssonar?
Allir svarendur
16%
36%
48%
n Ólíklegri
n Líklegri
n Hvorki né
Af þeim sem segjast vera Sjálf-
stæðismenn segist fjórðungur vera
líklegri til að kjósa f lokkinn með
Guðlaug sem formann og annar
fjórðungur líklegri.
Spurt var: Værir þú líklegri eða
ólíklegri til að kjósa Sjálfstæðis-
f lokkinn undir forystu Guðlaugs
Þórs Þórðarsonar heldur en undir
forystu Bjarna Benediktssonar?
Netkönnun Prósents byggir á
1.341 svari úr 2.600 manna úrtaki
meðal könnunarhóps fyrirtækisins
sem í eru einstaklingar átján ára og
eldri. Svarhlutfallið var þannig 51
prósent. Gögnum var safnað frá
1. til 4. nóvember 2022. „Gögn eru
vigtuð til að úrtak endurspegli álit
þjóðarinnar. Tekið er tillit til kyns,
aldurs og búsetu,“ segir í skýringum
Prósent. n
6 Fréttir 5. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ