Fréttablaðið - 05.11.2022, Side 14

Fréttablaðið - 05.11.2022, Side 14
Þetta félag hefur verið mjög vel rekið undan- farna áratugi og okkur fannst þetta spennandi. Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims Íbúum í Reykjavík fjölgaði um tæp þrjú þúsund árið 2021 sem er mesta fjölgun á einu ári í sögu borgarinnar. Á sama tíma fjölgaði íbúðum í Reykjavík um 1.252 og það stefnir í ámóta aukningu í ár. helgisteinar@frettabladid.is S K I PU L AG S M Á L Á k y nninga r- fundi um uppbyggingu íbúða sem haldinn var í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur í gær kynnti borgar- stjóri Reykjavíkur, Dagur B. Egg- ertsson, áform um framtíðarbygg- ingarsvæði og áherslur varðandi borgarhönnunarstefnu. Í fyrra fjölgaði Reykvíkingum um tæplega þrjú þúsund sem er mesta fjölgun á einu ári í sögu borgarinnar. Rætt var um að skapa f jöl- breyttan og sveigjanlegan hús- næðismarkað sem myndi tryggja öllum íbúum borgarinnar þak yfir höfuðið á viðráðanlegu verði og var áhersla lögð á þéttingu byggðar. Dagur B. Eggertsson sagði hins vegar að það væru vaxtaákvarð- anir Seðlabankans sem skiptu öllu máli og skýrðu alla þessa þenslu og kólnun sem sést á fasteigna- markaði. Á sama tíma þyrfti að leita að stefnu í húsnæðismálum sem skýrðist meira af jafnvægi frekar en sveiflum. „Við getum ekki alltaf verið að stíga svona rosalega á bensíngjöfina og svo rosalega á bremsuna,“ sagði Dagur. Jan Vapaavuori, fyrrverandi borgarstjóri Helsinki og húsnæðis- málaráðherra Finnlands, var einn af ræðumönnum fundarins og kynnti í stuttu máli húsnæðis- stefnu Finna. Jan sagði Helsinki vera gott dæmi um jafnvægi þegar kæmi að húsnæðismálum og benti á nauðsyn þess að viðhalda stöðug- leika þegar kæmi að bæði markaðs- frjálshyggju og reglugerð stjórn- valda. „Ef eftirspurn eykst umfram framboð er tilhneiging hjá mark- aðnum til að hagnast á því ástandi og í Helsinki voru áætlanir um það að byggja mikið af litlum íbúðum til að mæta þeirri eftirspurn. Aftur á móti vildum við ekki að mið- bærinn myndi einungis bjóða upp á smærri íbúðir og gripu stjórnvöld þar með inn í,“ sagði Jan. Hann bætti við að til að sporna við aðskilnaði á húsnæðismark- aðnum samþykkti borgarstjórn Helsinki reglugerð sem tryggði að 25 prósent af öllum nýjum íbúðum í hverju einasta hverfi borgarinnar skyldu vera tileinkuð félagslegum íbúðum. Guðmundur Hrafn Arngríms- son, formaður Samtaka leigjenda, spurði, í tengslum við stefnu Reykjavíkurborgar um fjölbreyti- leika, fyrir hvern væri verið að byggja. „Á þessu ári hefur rúmlega helm- ingur allra íbúða farið til fjárfesta og þeirra sem eiga íbúðir fyrir, það þýðir að einungis minnihlutinn er að ná að kaupa þetta húsnæði sem heimili. Það er ljóst að verktakar og fjárfestar eru að maka krókinn í meira mæli en áður þekktist og allt undir formerkjum meirihlutans um að útvega hagkvæmt og ódýrt húsnæði fyrir viðkvæma hópa borgarinnar,“ sagði Guðmundur. n Reykvíkingum hefur aldrei fjölgað jafn mikið og í ár Dagur B. Eggertsson borgarstjóri vill að húsnæðisstefna borgarinnar einkennist frekar af jafnvægi en sveiflum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Guðmundur Hrafn Arn- grímsson, for- maður Samtaka leigjenda bth@frettabladid.is FASTEIGNIR Fasteignasali á höfuð- borgarsvæðinu, Páll Pálsson, segir að von sé á 20.000 nýjum íbúðum inn á markaðinn á næstu sextíu mánuðum. Páll segir 200–300 nýbygginga- íbúðir þessa dagana auglýstar til sölu á netinu. Algengt verð sé á bil- inu 800.000–850.000 á fermetrann. „Af þeim eignum í nýbyggingum sem seldar hafa verið á árinu er meðalfermetraverð nú um 730.000 krónur,“ segir Páll. Hann segir að samkvæmt taln- ingu Samtaka iðnaðarins og Hús- næðis- og mannvirkjastofnunar séu 8.113 eignir í byggingu en á mis- munandi byggingarstigum. Búist sé við um 1.200 nýjum eignum á mark- aðinn á þessu ári, 3.200 á næsta ári og 3.200 árið 2024. „Þá er stefnt að því að reisa 20.000 íbúðir á næstu fimmárum,“ segir Páll. Ríflega 75 prósent íbúða í bygg- ingu eru á höfuðborgarsvæðinu, innan Reykjavíkur og Kópavogs eru um 4.400 í byggingu, 1.370 í Hafnarfirði, 1.500 í Árborg og 980 á Akureyri. n Tveir tugir þúsunda íbúða í pípunum kristinnhaukur@frettabladid.is SJÁVARÚTVEGUR Útgerðarfélagið Brim fjárfesti nýlega í hlutabréfum í danska félaginu Polar Seafood Den- mark, fyrir 12 milljarða króna. Eign- ast Brim þar með helming í félaginu. „Þetta félag hefur verið mjög vel rekið undanfarna áratugi og okkur fannst þetta spennandi,“ segir Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims. Fyrirtækið var stofnað árið 1984 en nýlega urðu kynslóðaskipti þegar tveir af eigendunum ákváðu að selja sína hluti. Polar Seafood Denmark er sölu- og dreifingarfyrirtæki með vinnslu fyrir neytendapakkningar í Dan- mörku. Þar hafa aðallega verið unnar sjávarafurðir frá Græn- landsmiðum af ýmsum toga og hjá fyrirtækinu starfa nú í kringum 500 manns. Guðmundur bendir á að fyrirtækið sé mjög umsvifamikið í kaldsjávarrækju á heimsmarkaði. „Okkur hefur alltaf fundist Danir góðir í að selja, hanna og kynna vörur. Það er mikil hefð fyrir því í Danmörku, svo sem ýmis húsgögn og Lego,“ segir hann. Þá sé heimurinn sífellt að gera meiri kröfur um að milliliðum sé fækkað í framleiðslukeðjunni. „Brim er veiði- og framleiðslufyrir- tæki en við viljum komast nær neyt- andanum,“ segir Guðmundur. n Keyptu helming í dönsku félagi á tólf milljarða króna sigurjon@frettabladid.is UMHVERFISMÁL Ungir umhverfis- sinnar sækja Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP27, í annað sinn, en hún er haldin í Egyptalandi í ár. Tinna Hallgríms- dóttir, forseti Ungra umhverfis- sinna, segist spennt fyrir ráðstefn- unni og að það þýði ekkert annað en að mæta með bjartsýnina að leiðarljósi. Ráðstefnan er haldin árlega, en Tinna segir hana vera til þess að hægt sé að komast að samkomu- lagi um hvernig eigi að að útfæra og raungera þau loftslagsmarkmið og aðgerðir sem aðildarríkin hafa komið sér saman um. „Það er mjög mikilvægt að hafa þennan vettvang á hverju ári,“ segir Tinna. „Við höfum fundað með sendinefnd Íslands fyrir ráðstefn- una og munum halda því áfram á meðan á henni stendur. Við reynum að hafa áhrif og koma okkar sjónar- miðum á framfæri, sem vonandi smitast inn í samningaviðræður. Það sem við sáum fyrir ráðstefn- una var að skýrsla Umhverfisstofn- unar Sameinuðu þjóðanna sýndi að við eigum mjög langt í land með að ná markmiði Parísarsáttmálans um tvær gráður, hvað þá eina og hálfa gráðu,“ segir Tinna og vísar í markmið ríkja sem skrifuðu undir Parísarsáttmálann, um að meðal- hitastig jarðar hækki ekki meira en tvær gráður. „Núverandi markmið ríkja stefna okkur í 2,8 gráður, þannig að við verðum að þrýsta á fullnægjandi loftslagsmarkmið og loftslags- stefnu,“ segir Tinna og bætir við að þetta sé kjörinn vettvangur til þess. „Svo verðum við líka að muna að COP er ekki bara það sem gerist á COP, heldur verða ríki að innleiða það sem þau segjast ætla að gera þegar heim er komið,“ segir Tinna. n Fara bjartsýn á loftslagsráðstefnuna 75 prósent íbúða í byggingu eru á höfuðborgarsvæðinu. Tinna Hallgríms- dóttir, forseti Ungra umhverfissinna Við getum ekki alltaf verið að stíga svona rosalega á bensíngjöf- ina og svo rosalega á bremsuna. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri 12 Fréttir 5. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.