Fréttablaðið - 05.11.2022, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 05.11.2022, Blaðsíða 22
20 Íþróttir 5. nóvember 2022 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 5. nóvember 2022 LAUGARDAGUR Lionel Messi Fólkið í Argentínu á sér þann draum að Messi komi með Heimsmeistaratitilinn til Argentínu. Þá fer hann í hóp með Diego Maradona sem er goðsögn í augum allra í Argentínu. Messi er í hópi bestu leikmanna sögunnar og ferill hans fær kirsuberið ofan á ísinn takist honum að leiða Argentínu til sigurs í Katar. Messi verður 39 ára á næsta HM-móti og er því líklega að kveðja. 15 HM KARLA Í FÓTBOLTA DAGAR Í Heimsmeistaramótið í Katar fer af stað eftir 15 daga. Mótið verður spennandi og mörg lið gera til- kall til þess að vinna þetta stærsta mót fótboltans. Margar af hetjum fótboltans síðustu ár eru hins vegar að kveðja sviðið og margir þeirra eiga mögu- leika á að enda HM-feril sinn með titilinn eftirsótta í höndunum. hoddi@frettabladid.is Robert Lewandowski Framherjinn hefur verið í fremstu röð um langt skeið, eftir að hafa raðað inn mörkum í Þýskalandi með Dortmund og FC Bayern. Nú er hann mættur til Barcelona þar sem hann heldur áfram að skora. Pólverjar geta ekki bókað miða á HM og líklegt er talið að þessi 34 ára fram- herji sé að fara inn á sitt síðasta Heims- meistaramót. Luis Suarez Endalokin á ferli Suarez nálgast. Hann hefur undan- farið spilað í heimaland- inu en Úrúgvæ er með skemmtilegt lið þar sem Suarez leiðir línuna með Edinson Cavani sem einnig fer inn á sitt síðasta Heimsmeistaramót. Suarez hefur bitið andstæðinga sína á HM og varið á línu með hendi, litríkur karakter. Karim Benzema Besti knattspyrnumaður í heimi í dag fagnar 35 ára afmæli sínu degi eftir að Heimsmeistaramótinu lýkur. Hann er því að öllum líkindum að stíga inn á stærsta sviðið í síðasta sinn. Benzema var ekki í HM hópi Frakklands fyrir fjórum árum þegar liðið varð Heimsmeistari og mætir því hungraður til Katar. Luka Modric Þessi magnaði miðju- maður verður 41 árs gamall þegar HM fer fram í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada árið 2026. Hans síðasti dans á stóra sviðinu er því að eiga sér stað. Modric hefur átt ótrú- legan feril bæði með landsliði og félagsliði. Króatar fóru í úrslitin í Rússlandi en ekki er talið líklegt að liðið nái álíka árangri í ár. Cristiano Ronaldo Einn sá besti í sögunni er líklega að kveðja HM-sviðið. Það er þó ekki útilokað að Ronaldo reyni við mótið eftir fjögur ár en þá verður hann 41 árs, hann hefur talað þannig. Ronaldo vann Evrópumótið með Portúgal árið 2016 og gæti fullkomnað magn- aðan feril með sigri í Katar. Portúgal er með gott lið og er líklegt til afreka á mótinu. Stjörnurnar kveðja sviðið Manuel Neuer Fer líklega í sögubækurnar sem einn besti markvörður sögunnar en hann er nú 36 ára gamall. Það er jafnvel talið líklegt að Neuer hætti í þýska landsliðinu eftir mótið í Katar. Neuer hefur séð allar hliðar fótboltans á HM. Hann varð Heimsmeistari með Þýskalandi árið 2014 en upplifði líka erfiða tíma í Rússlandi þar sem Þjóðverjar komust ekki upp úr riðlakeppni. NÍSTANDI SÁR SAGA LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Virka daga 10–18 | Lau 11–17 | Sun 12–16 | www.forlagid.is Ólafur Ragnar ritar inngangskafla og milliþætti sem tengja bréfin saman. Í Bréfunum hennar mömmu opnar Ólafur Ragnar Grímsson bréfasafn fjölskyldu sinnar sem veitir einstæða innsýn í glímuna við berklaveikina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.