Fréttablaðið - 05.11.2022, Qupperneq 26
Allt bendir
til þess að
íhalds- og
afturhald-
söflum
vaxi enn
fiskur um
hrygg
Þegar ég labbaði inn á
Kex hostel á þriðju-
daginn var bara æðis-
leg orka og ég hef
fundið þessa orku
síðan.
Hrefna Helgadóttir
Pünk
Veit inga st aðu r inn P ü nk v ið
Hverfisgötu er einstaklega fallega
hannaður og ekki er maturinn
síðri. Við mælum sérstaklega með
djúpsteikta Pünk kjúllanum sem
gljáður er í chilli-hvítlaukssmjöri
og borinn fram með hrásalati. Svo
er um að gera að fá sér desert og þá
mælum við með Krazy Kókonut
sem bráðnar í munni.
Jólabasar Hringsins
Hinn víðfrægi Jólabasar Hringsins
verður haldinn á Grand Hóteli
sunnudaginn 3. nóvember klukk-
an 13. Til sölu verða handgerðir
munir, prjónavörur og bakkelsi og
þá markar basarinn upphaf jóla-
kortasölu Hringsins. Allt fé sem
safnast rennur í Barnaspítalasjóð
Hringsins. n
n Í vikulokin
Ólafur
Arnarson
Við mælum með
Við hin,
þessi
heppnu,
fáum að
vera hér.
Njóta
mannrétt-
inda og
öryggis.
BIRNADROFN@FRETTABLADID.IS
Kvikmyndir, bókmenntir, fjallgöngur og
kosningar eru allt þættir sem fjallað er um
í blaði helgarinnar. Allt eru þetta þættir
sem við getum notið og minna okkur á
þau réttindi sem við höfum. Við, fólkið
sem reyndumst svo heppin að fæðast hér á Íslandi,
eða fá að búa hér.
Fréttir vikunnar hafa minnt okkur á að ekki eru
allir svo heppnir. Fimmtán manns var vísað frá
Íslandi til Grikklands þar sem ekkert bíður þeirra
nema hryllingur og hætta. Við hin, þessi heppnu,
fáum að vera hér. Njóta mannréttinda og öryggis,
fara í fjallgöngur og bíó og lesa bækur. Á meðan eru
þau á götunni í Grikklandi.
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra segist halda
að hér hafi „bara verið framkvæmd brottvísun sem
var fullkomlega eðlileg.“ Er það einhvern tíma þann-
ig að brottvísun sé fullkomlega eðlileg? Sér í lagi
þegar um ræðir börn eða fólk sem þarf á sérstakri
aðstoð að halda?
Dómsmálaráðherra virðist samviskulaust geta
skýlt sér á bak við þessi rök sín, af umræðunni að
dæma er þjóðin ekki sammála. Stöðvum brottvís-
anir! n
Í skugga brottvísana
Hrefna segir Airwaves í ár svipa til hátíðarinnar eins og hún var í upphafi.
MYND/SUNNA BEN
Hrefna Helgadóttir er verk-
efnastjóri markaðs- og kynn-
ingarmála hjá Útón. Hún er
mikill aðdáandi Airwaves-
hátíðarinnar og veit fátt
skemmtilegra en að fara á
tónleika.
ninarichter@frettabladid.is
„Við hjá Útón erum samstarfsaðili
Senu, sem rekur Airwaves,“ segir
Hrefna Helgadóttir verkefnastjóri
hjá Útón, sem hefur í mörg horn að
líta þessa helgina.
„Það eru 25 erlendir blaðamenn
á landinu og 40 „speakerar“. Við
höfum ekki upplýsingar um fjölda
ferðamanna á landinu en stjórn-
endur Senu ákváðu að setja hátíð-
ina upp á nýtt þannig að hún gengi
vel fyrir alla sem að henni koma,“
segir Hrefna.
Hún útsk ý rir að með þeim
hætti hafi hátíðin að vissu leyti
verið hugsuð upp á nýtt til þess
að tengjast rótum hátíðarinnar
og menningunni sem þeim fylgdi.
„Hátíðin er bara á þessum „ico-
nic“ tónleikastöðum og mér finnst
það skemmtileg ákvörðun. Þó að
mér finnist Harpa æðisleg býr það
til aðra stemningu að vera með
þetta í bænum og labba á milli,“
segir Hrefna og vísar til þess þegar
hátíðin fór fram í tónlistarhúsinu
við höfnina. Hún kveðst gríðarlega
ánægð með framkvæmdina í ár.
„Þetta er Airwaves sem ég man
eftir síðan ég var unglingur. Ég var í
Fríkirkjunni í gær og ég heyrði gell-
una við hliðina á mér segja: Það er
betra að vera kalt að labba svo að
maður sé ekki að kafna inni,“ segir
Hrefna og skellihlær.
„Ég var í einhverjum pínkulitlum
jakka í gær hlaupandi á milli. Mér
finnst þetta ógeðslega skemmtileg
orka og við hjá Útón erum ótrúlega
stolt af þessari vinnu,“ segir hún.
Í fyrra var Airwaves af lýst með
skömmum fyrirvara. „Þetta var
bara mánuði fyrir hátíð. Allt þetta
bransafólk sem við vorum búin að
bóka, við hringdum í þau og sögð-
um: Það er búið að aflýsa Airwaves.
En þau sögðu bara: Nei, ég vil koma
til Íslands,“ segir Hrefna og hlær.
Því þurftu starfsmenn hátíðar-
innar í samvinnu við Útón að leysa
málið og það hratt. „Allt í einu
þurftum við að vippa upp dagskrá
en ekki með vörumerkið Iceland
Airwaves. Við hentum í Bransa-
veislu og leystum málið. Það sem
var svo gaman er að þetta voru
alþjóðlegir fagaðilar að koma í
beinum tengslum við bransann á
Íslandi,“ segir hún.
„Þetta var í fyrsta sinn í fyrra.
Það var ekki spurning að gera þetta
aftur. Við vorum með vinnustofur
og viðburði. Þegar ég labbaði inn
Ánægð með Airwaves í ár
á Kex hostel á þriðjudaginn var
bara æðisleg orka og ég hef fundið
þessa orku síðan. Allir eru faglegir
og komnir til að fræðast. Allir eru
opnir og til í að spjalla og auð-
mjúkir,“ segir Hrefna.
Að sögn Hrefnu hefur viðhorf
hennar til tónleika breyst og ást
hennar á forminu eflst.
„Ég finn hvað ég hafði saknað
þess að fara á tónleika. Ég er komin
á þann stað að þetta er eigin-
lega bara heilagt fyrir mér,“ segir
Hrefna. „Allir að einbeita sér að
sama punkti, en núna er ekki einu
sinni hægt að fara í matarboð án
þess að allir séu í símanum. Ég elsk-
aði tónleika fyrir en núna er þetta
bara eins og að fara í kirkju.“ n
Á þriðjudaginn verða kosningar í
Bandaríkjunum. Repúblikanar virð-
ast ætla að ná meirihluta í fulltrúa-
deild Bandaríkjaþings og tvísýnt er
með öldungadeildina.
Joe Biden bar sigurorð af Donald
Trump í forsetakosningunum fyrir
tveimur árum og Demókratar náðu
meirihluta í fulltrúadeildinni. Í öld-
ungadeildinni varð hnífjafnt, sem
þýðir að atkvæði varaforseta Banda-
ríkjanna er oddaatkvæðið sem
tryggir Demókrötum meirihluta.
Joe Biden er einn reynslumesti
stjórnmálaskörungur Bandaríkj-
anna. Hann verður áttræður eftir
hálfan mánuð og engum dylst að
farið er að hægja á kappanum. Hér á
Íslandi væri jafn lúinn reynslubolti
og Biden kominn í hvíld á dvalar-
heimili eða, eftir atvikum, orðinn
ritstjóri Morgunblaðsins.
En, aftur að Bandaríkjunum. Völd
Bidens verða mjög skert á síðari
hluta kjörtímabilsins, gangi það
eftir að Repúblikanar nái meirihluta
í fulltrúadeildinni, hvað þá ef öld-
ungadeildin fellur þeim líka í skaut.
Bandaríkin eru á krossgötum. Í
tíð Donalds Trump afsöluðu þau sér
forystuhlutverki meðal lýðræðis-
þjóða. Biden hefur reynt að endur-
heimta forystuhlutverkið en virðist
tæplega hafa það afl sem til þarf.
Verkefnið er ekki einfalt. Banda-
rískir kjósendur virðast í stórum
stíl afneita þeim frjálslyndu og
umburðarlyndu viðhorfum sem
annars staðar á Vesturlöndum eru
talin táknmynd nútímaréttarríkis.
Íhaldssamur meirihluti Hæsta-
réttar Bandaríkjanna hefur þegar
afnumið þau helgu réttindi kvenna
að ráða yfir eigin líkama og margt
bendir til þess að rétturinn muni
Evrópsk lýðræðisríki verða að snúa bökum saman
næst beita sér gegn sjálfsögðum
mannréttindum samkynhneigðra
og annars hinsegin fólks.
Allt bendir til þess að íhalds- og
afturhaldsöf lum vaxi enn fiskur
um hrygg vestan hafs og á þessari
stundu virðist nær víst að næsti
forseti komi úr röðum íhaldsarms
Repúblikanaflokksins.
Þá mega minnihlutahópar í
Bandaríkjunum aldeilis fara að
vara sig. Þá er líka eins gott fyrir
evrópskar lýðræðisþjóðir að snúa
bökum saman. Þá verður Evrópa að
standa á eigin fótum í öllu tilliti. n
24 Helgin 5. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐHELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 5. nóvember 2022 LAUGARDAGUR