Fréttablaðið - 05.11.2022, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 05.11.2022, Blaðsíða 30
einhverju í mínu lífi, hvort sem það er tilfinningalíf eða ytra líf, og byrja þar. En mjög fljótlega þegar ég byrja að skrifa þá tekur það skjótum og örum breytingum.“ Að því leyti segir Jón Kalman að allar bækur hans séu mjög persónu­ legar, hvort sem þær fjalla um Vest­ firði á 19. öld eða Reykjavík á 21. öld. Jón Kalman: „Það hefur kannski að einhverju leyti hjálpað mér að ég er með mjög gloppótt minni. Ég gæti aldrei skrifað sjálfsævisögu eða sjálfsævisögulegt verk, þannig að ég er alltaf á valdi skáldskaparins. Það eru stundum innri átök þegar maður skrifar, og mikill efi, en líka gleði, ekki síst vegna þess að það er stöðugt að koma eitthvað upp úr djúpunum sem mann óraði ekki fyrir að byggi innra með manni. Stundum veit maður ekkert hvaðan allt þetta kemur, allar þessar per­ sónur og öll þessi atvik.“ Gaf sögunni þrjár vikur Guli kaf báturinn fjallar um mið­ aldra rithöfund sem ferðast til Lundúna með brýnt erindi við Paul McCartney. Jón Kalman kveðst sjálfur vera mikill Bítlamaður og hefur áður skrifað um þá goðsagna­ kenndu hljómsveit í bókum sínum, meðal annars í Ýmislegt um risa­ furur og tímann. Jón Kalman: „Ég var byrjaður á annarri bók þegar þessi þröngvaði sér fram. Það hefur aldrei gerst áður, yfirleitt þegar ég er að skrifa bók þá kemst ekkert annað að. Framan af reyndi ég að ýta henni burt, vegna þess að mér fannst ég hafa skrifað um þetta áður. En þetta var það ákafur þrýstingur sem kom að innan að á endanum ákvað ég að gefa þessu tækifæri. Ég sagði við söguna: Ég gef þér þrjár vikur.“ Að þremur vikum liðnum fann Jón Kalman að hann var með eitt­ hvað alveg nýtt í höndunum og ákvað því að leggja hina söguna til hliðar og demba sér á kaf með Gula kafbátnum. Sigríður: „Það var mjög skemmti­ legt að verða vitni að þessum innri átökum þínum þegar þú varst að reyna að einbeita þér að hinni sögunni og svo skaut þessari alltaf upp. Þú bölvaðir hástöfum þegar kafbáturinn tróð sér inn í vinnuna.“ Jón Kalman: „Þetta er eitt af þessum dásamlegu dæmum um það hversu litlu við ráðum stundum sem höfundar yfir því sem við skrifum.“ Bækur vita meira en höfundar Sigríður, þú ert nú kannski ekki beint að skrifa um sjálfa þig en það hefur svolítið verið gantast með það að þínar bækur eigi það til að raun- gerast. Sigríður: „Ég held að maður sé alltaf að einhverju leyti að skrifa um sjálfan sig, raddirnar rísa upp úr djúpunum og hljóta að vera hluti af manni sjálfum, hvort sem það var planið eða ekki. Fólk spyr mig stundum svolítið skelkað hvað ég sé að skrifa um núna og ég svara því til að ég sé að skrifa um svartadauða og afleiðingar hans. En þetta eru allt saman löngu liðnir atburðir þannig að það er ekkert að óttast.“ Jón Kalman: „Ja, liðnir atburðir geta gerst á ný.“ Sigríður: „Já, það er vissulega rétt,“ segir hún og hlær. „En ég hef nú bara svarað því til að bækur viti meira heldur en fólkið sem skrifar þær. Ég held að eiginlega allar bæk­ urnar mínar, nema kannski þessi, séu sprottnar upp úr málum sem ég hef verið að vinna sem fréttamaður. Staðreyndirnar duga ekki alltaf til og þá getur skáldskapurinn verið svo of boðslega magnað tæki til að rannsaka heiminn og möguleikana sem eru fólgnir í samtímanum.“ Nærist á fréttamennskunni Nú spyr ég bara sem blaðamaður sjálfur, hvernig hefurðu tíma til að skrifa skáldsögur? Sigríður: „Maður vinnur ekki fulla vinnu sem fjölmiðlamaður og skrifar skáldsögu líka, það er mjög erfitt. Þegar ég skrifaði fyrstu bókina mína þá tók ég mér þriggja mánaða frí til að skrifa hana. Hún átti upphaflega bara að vera tilraun til að sjá hvort ég gæti það því frétta­ mannsstarfinu fylgir svo mikill athyglisbrestur. Ég bara hafði ekki hugmynd um hvort ég gæti yfirleitt setið við svona langtímaverkefni. En síðan hef ég tekið mér frí frá störfum til þess að skrifa og hef að mestu leyti verið í hlutastarfi hjá RÚV undanfarin ár. Yfirmenn mínir hafa sýnt mér mikinn skilning og þolinmæði.“ Sigríður hefur starfað sem frétta­ maður frá árinu 1999 og segist ekki vera viss um að hún gæti hreinlega lifað án blaðamennskunnar. Sigríður: „Það eru svo mikil for­ réttindi að fá að vinna á svona stórum og skapandi vinnustað með gáfuðu og skemmtilegu fólki. Ég nærist mikið á því. Það er líka gaman að fá að fjalla um atburði líðandi stundar en stundum rekur maður sig á að málin ná út fyrir veruleikann og fréttastofuna, og þá er gott að hafa annan vettvang til að vinna með þau. Staðreyndirnar einar duga ekki til þess að skilja heiminn. Ég held að maður þurfi alltaf að leita út fyrir þær og í skáld­ skapinn til þess að skilja heiminn og sjálfan sig.“ Barátta við dauðann Dauðinn er gegnumgangandi þema í Gula kafbátnum eins og í mörgum bókum Jóns Kalmans. Spurður um hvaðan öll þessi feigð stafi segir Jón Kalman dauðann vera staðreynd sem bíði allra. Jón Kalman: „Dauðinn hefur alltaf verið mér hugleikinn frá barn­ æsku, sjálfsagt út af því að ég missti móður mína ungur. Þannig að ég hef alltaf verið að glíma við hann. Framan af sem barn með ímyndun­ araflinu og draumum en síðan með skáldskapnum. Sumpart þá nota ég skáldskapinn sem vopn til þess að berjast við dauðann. Bæði til að sigra hann, þó ég viti að það er ekki hægt, en með því að berjast þá er maður á lífi, en líka til að átta mig á því hvað þetta þýðir. Hvað dauðinn þýðir fyrir okkur sem manneskjur og fyrir heiminn.“ Bókin er tileinkuð Eiríki Guð- mundssyni sem lést í sumar langt fyrir aldur fram, voruð þið nánir? Jón Kalman: „Já, við vorum mjög nánir. Við höfðum þekkst alveg síðan hann byrjaði í Háskólanum. Þá var ég búinn að vera þar í ein­ hvern tíma, ég er sex árum eldri. Við mynduðum strax mjög sterkan vinahóp sem hefur haldið saman síðan og gengið í gegnum margt. Smám saman urðum við Eiríkur afar nánir, ekki síst í gegnum skáld­ skap og tónlist. Það leið ekki sá dagur að við skrifuðumst ekki á um skáldskap, pólitík, lífið og dauðann. Við vorum sálufélagar.“ Dönsuðu fyrir Eirík Jón Kalman og Sigríður giftu sig síðla sumars við einfalda og fal­ lega athöfn. Þau slógu síðan upp heljarinnar balli í Iðnó en veislan var haldin í skugga sorgarinnar, daginn eftir að vinur þeirra Eiríkur Guðmundsson var borinn til grafar. Sigríður: „Þetta var sérkennilegur tími.“ Jón Kalman: „Mörg okkar sem vorum þarna í veislunni vorum líka í kirkjunni daginn áður. Vinir sem syrgðu hann mjög og ég held að við höfum öll dansað fyrir Eirík. Það eru sumir, meðal annars ég, sem hafa kannski aldrei dansað svona mikið. Þetta var svona hreinsun­ arathöfn. Gríðarleg gleði en inni í henni var harmur.“ Sigríður: „Það er svona með dauðann og gleðina, hún er eigin­ lega eina leiðin til þess að takast á við hann.“ Listin er langhlaup Hjónin hafa komið sér upp fallegu heimili á Bjarkargötu ásamt börn­ um sínum frá fyrri hjónaböndum og köttunum Tómasi Hagalín og Snældu Kalman. Sigríður lýsir þessu sem hálfgerðu listamannakollekt­ ífi en sonur Jóns Kalmans, Bekan Kalmansson, er tónlistarmaður og sendi nýlega frá sér „mixteipið“ Lykilinn á Soundcloud. Sigríður: „Þannig að afurðirnar eru eiginlega þrjár á þessu hausti.“ Verður keppni á heimilinu um hver er efstur á metsölulista? Jón Kalman: „Ég held það sé alveg óhætt að segja að það sé engin keppni á milli okkar. Eina keppnin hjá mér er að ég vonast til að Sigga seljist helmingi meira en ég og fái helmingi betri dóma.“ Sigríður: „Þetta eru náttúrulega frábær bókajól fram undan og ég veit að Guli kafbáturinn ber af.“ Jón Kalman: „Það er í þessu eins og öðru í lífinu að þetta er langhlaup. Það er auðvitað frábært ef viðtökurn­ ar eru jákvæðar þegar bókin kemur út. Það er bara virkilega gaman. En eftir eitt ár, hvað þá tíu ár, þá skiptir það ekki höfuðmáli. Það skiptir máli hvort það sem þú hefur fram að færa hafi eitthvað í sér sem talar við tím­ ana.“ n Jón Kalman og Sigríður Hagalín giftu sig síðla sumars við einfalda og fallega athöfn. Veislan var þó haldin í skugga sorgarinnar, daginn eftir að vinur þeirra Eiríkur Guðmundsson var borinn til grafar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Fólk spyr mig stundum svolítið skelkað hvað ég sé að skrifa um núna og ég svara því til að ég sé að skrifa um svarta- dauða og afleiðingar hans. Sigríður Hagalín Dauðinn hefur alltaf verið mér hugleikinn frá barnæsku, sjálfsagt út af því að ég missti móður mína ungur. Jón Kalman  28 Helgin 5. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.