Fréttablaðið - 05.11.2022, Síða 34

Fréttablaðið - 05.11.2022, Síða 34
Álfrún Helga Örnólfsdóttir var aðeins átta ára þegar hún steig fyrst á svið í leik­ húsi. Hún hefur síðan þá leikið í fjölda leikverka og kvikmynda ásamt því að leikstýra í leikhúsi. Fyrsta kvikmynd í hennar leik­ stjórn, Band, er nú í kvik­ myndahúsum landsins. Ég var farin að suða um það strax og ég byrjaði að tala að fá að stíga á svið,“ segir leikkonan, handritshöfundurinn og leikstjórinn Álfrún Helga Örn­ ólfsdóttir. Hún kemur úr mikilli leiklistarfjölskyldu og var aðeins átta ára gömul þegar hún lék sitt fyrsta hlutverk í Þjóðleikhúsinu. „Ég var búin að fara með mömmu og pabba á allar sýn­ ingar í leikhúsinu, sama hvort þær voru fyrir börn eða fullorðna og ég fann strax að þarna leið mér vel. Ég elskaði að fara baksviðs og leiklistarbakterían helltist snemma yfir mig,“ segir Álfrún. „Draumurinn rættist svo þegar ég var átta ára og fékk hlutverk í Óvitunum. Ég þurfti alveg að fara í prufur og allt svoleiðis en ég vissi kannski frekar af þeim en aðrir af því að mamma vann í húsinu,“ segir hún, en móðir Álfrúnar er leikkonan Helga Jónsdóttir sem var fastráðin við Þjóðleikhúsið í tuttugu ár. Álfrún segist ekki hafa fundið fyrir ótta þegar hún tók að sér fyrsta hlutverkið svo ung að árum. „Mér leið bara ótrúlega vel í eigin skinni og ég held að þetta hafi verið gott fyrir mig. Ég var mjög virkt barn og í staðinn fyrir að ég væri ofvirk heima hjá mér að hendast uppi á hurðum þá var bara fínt að setja mig upp á svið og leyfa mér að syngja og dansa.“ Snemma atvinnuleikkona Álfrún varð snemma atvinnu­ leikkona. Hún lék í fjölda leik­ verka og k vikmynda þegar hún var barn og unglingur og talaði inn á Hinir krakkarnir skildu þetta ekki Á þessum tíma var það bara þannig, það var enginn að tala um einelti eða neitt svoleiðis. Ég gerði bara það sem ég gat til að lifa þetta af. fjöldann allan af teiknimyndum. Meðal annars lék hún í Söngva­ seiði, Fiðlaranum á þakinu, kvik­ myndinni Svo á jörðu sem á himni og Ráðagóðu stelpunni. Spurð að því hvernig hafi gengið að vinna svo mikið með grunn­ skóla segir hún það ekki hafa verið mikið mál í minningunni. „Ég vildi alltaf hafa mikið að gera og ef ég var ekki með eitthvað verk­ efni fyrir framan mig var ég alveg óþolandi,“ segir Álfrún. „Mér fannst fínt að vera að vinna mikið og svo bara lærði ég þegar ég hafði tíma og það gekk allt mjög vel. Eini ókosturinn var kannski sá að þetta var mjög skrítið fyrir hina krakkana og ég varð fyrir mikilli höfnun á tímabili,“ útskýrir Álfrún, sem ólst upp í Vesturbænum og fór í Vesturbæjarskóla og Hagaskóla. Enginn talaði um einelti „Þegar ég mætti ekki í skólann í þrjá mánuði og var svo kannski með rautt hár og permanent þegar ég kom til baka af því ég hafði verið að leika í bíómynd var það erfitt fyrir hina krakkana að skilja það. Þetta var verst þegar ég var svona ellefu ára en á þeim aldri geta krakkar verið eins og villidýr,“ segir Álfrún. „Þetta var mjög erfitt. Ég hafði bara verið vinsæl og svo allt í einu var vinahópurinn ekki opinn fyrir mér, þetta var algjör viðsnúningur og ég var útilokuð,“ segir hún. Álfrún sagði engum frá því sem var að gerast í skólanum heldur reyndi að komast í gegnum það sjálf. „Á þessum tíma var það bara þannig, það var enginn að tala um einelti eða neitt svoleiðis. Ég gerði bara það sem ég gat til að lifa þetta af og ég var of lítil til að setja þetta í samhengi. Lík­ lega var þetta einhverskonar afbrýðisemi.“ Álfrún æfði ballett og þar átti hún vini, eins í leikhúsinu. „Ég held að það hafi bjargað mér, ég átti vini og leið vel, bara ekki í skólanum.“ „Þetta hafði að sjálfsögðu áhrif á mig og ég á til dæmis mjög erfitt með að taka höfnun, sem er frekar erfitt þegar maður er leikari og er alltaf að koma sér í aðstæður þar sem eru miklar líkur á því að manni sé hafnað,“ segir Álfrún og brosir. „En það er mitt lífstíðarverk­ efni að vinna í því og læra á það.“ The PPBB Undanfarin ár hefur Álfrún fært sig meira yfir í handritaskrif og leikstjórn. Hún leikstýrir verkinu Bara smástund, sem nú er sýnt í Borgarleikhúsinu og í gær var kvik­ myndin Band í leikstjórn Álfrúnar frumsýnd. Um er að ræða fyrstu kvikmyndina sem hún leikstýrir en myndin er heimildarmynd um hljómsveit Álfrúnar, Sögu Sigurðar­ dóttur og Hrefnu Lindar Lárus­ dóttur, The Post Performance Blues Band (The PPBB). Hljómsveitina stofnuðu Álfrún, Saga og Hrefna ásamt fleiri konum þegar þær stunduðu saman meist­ aranám í sviðslistum við Lista­ háskóla Íslands. „Við áttum okkur allar draum um að vera í hljómsveit svo við stofnuðum hana bara.“ Hljómsveitin var upphaf lega gjörningur með það að markmiði að rannsaka spennufall sem hug­ tak. „Okkur langaði að rannsaka spennufallið sem kemur þegar maður er búinn að vera uppi á sviði eða að gera eitthvað sem gefur manni rosalega mikið adrenalín og kikk, svo kemur maður niður og þá fær maður allt í einu svona blús, post performance blues,“ útskýrir Álfrún. Hálfgerð grínmynd „Innblásturinn kemur frá öllu sem er frekar erfitt og leiðinlegt en við reynum að gera það skemmtilegt, finnum kraft og húmor í því,“ segir hún. Spurð að því hvort að um grín­ mynd séð að ræða segir Álfrún að vel megi líta á það þannig. „Ef maður hugsar um gaman­ myndir þá snúast þær oft um hvað maður getur komið persónunni í mikil vandræði, því meiri vand­ ræði því fyndnara,“ segir hún. „Bandinu okkar gekk ekki vel og ég er fertug móðir með tvö börn sem á fínan listferil að baki og ég hugsaði með mér: Meika ég að standa uppi á sviði með fimm manns í salnum? Dey ég eða fæ ég hláturskast?“ segir Álfrún hlæj­ andi. „Svo hugsaði ég með mér að ef það væri myndavél þarna og þetta væri sena í bíómynd þá væri þetta sjúklega fyndið. Svo ég ákvað bara að gera heimildarmynd." Band hefur verið sýnd á kvik­ myndahátíðum víðs vegar um heiminn og fengið afar góðar við­ tökur. „Ég var mjög stressuð fyrir fyrstu sýninguna og efaðist um allt á meðan ég horfði og varð svaka­ lega hissa þegar fólk fór að hrósa myndinni og þakka mér fyrir eftir á. Núna held ég að ég sé komin yfir mesta sjokkið og er bara ótrú­ lega spennt að sýna Íslend­ ingum myndina,“ segir Álfrún. n Birna Dröfn Jónasdóttir birnadrofn @frettabladid.is Álfrún hefur verið leik- kona frá því hún var átta ára gömul. Hún hefur undanfarið unnið meira við hand- ritaskrif og leikstjórn en segist njóta þess til jafns við að leika. fréttablaðið/ ernir Álfrún, Saga og Hrefna skipa The Post Per- formance Blues Band. Mynd/Saga Sig. Bandinu okkar gekk ekki vel og ég er fertug móðir með tvö börn sem á fínan listferil að baki og ég hugsaði með mér: Meika ég að standa uppi á sviði með fimm manns í salnum? Dey ég eða fæ ég hláturskast? 32 Helgin 5. nóvember 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.