Fréttablaðið - 05.11.2022, Blaðsíða 35
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
LAUGARDAGUR 5. nóvember 2022
starri@frettabladid.is
Fimmtíu ára afmælisfögnuður
Einars Áskels verður haldinn í
dag, laugardag, í Bíó Paradís í
Reykjavík, en fögnuðurinn er hluti
af Alþjóðlegri barnakvikmynda-
hátíð í Reykjavík. Sýndar verða
þrjár myndir eftir bókunum um
Einar Áskel með lifandi talsetningu
Þórunnar Lárusdóttur leikkonu.
Myndirnar byggja á bókunum
Flýttu þér Einar Áskell, Engan asa
Einar Áskell og Svei-attan Einar
Áskell.
„Við fengum þá hugmynd að
sýna Einar Áskel á hátíðinni því
hann er 50 ára um þessar mundir.
Hugsa sér!“ segir Ása Baldursdóttir,
dagskrárstjóri Bíó Paradísar. „Rit-
höfundurinn Gunilla Bergström
var mjög nösk á hvernig börn eru og
lýsir þeim á næman og raunsannan
hátt. Þess vegna held ég að þessar
bókmenntir, og kvikmyndir, höfði
vel til barna og foreldra þeirra. Það
skapast nánd í sögunum sem sýna
ekki bara einfalda hluti heldur
einnig flókna. Sjónarhornið er líka
mikilvægt, það er sem sagt barns-
ins.“ Kvikmyndirnar eru svipað og
bækurnar ekki mjög textahlaðnar
og myndmálið fær að njóta sín
að sögn Ásu. „Upprunalega talið
mun heyrast óma aðeins undir, en
ekki þó þannig að það trufli. Þessi
sýning hentar því vel yngstu áhorf-
endunum og foreldrum þeirra.“
Fyrsta myndin hefst kl. 10 og
næstu byrja kl. 11 og 14. Ókeypis er
inn á myndirnar en nauðsynlegt er
að skrá sig fyrir miðum á tix.is. n
Afmælisfögnuður
fyrir Einar Áskel
Þrjár myndir um Einar Áskel verða
sýndar í Bíó Paradís í dag.
Einar Bárðarson stundar mikla hreyfingu í lífi sínu og starfi. Hann segist ekki geta verið ánægðari en hann er með árangur af Active Joints. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Active Joints breytti leiknum
Einar Bárðarson, framkvæmdastjóri Votlendissjóðs, segir mikinn létti að geta loks farið út
að hreyfa sig eftir að hann fór að taka inn Active Joints frá Eylíf. 2
HEILAÞOKA?
Fæst í helstu apótekum - www.celsus.is
AUKIN ORKA
OG FÓKUS