Fréttablaðið - 05.11.2022, Side 38
Ég fann líka að
vatnslitirnir hent-
uðu vel til að mála lands-
lagsmyndir og hafið í
allri sinni fjölbreytni.
Vatnslitamyndir móta sig
gjarnan sjálfar og öðlast eigið
líf í höndum málarans. Nú
stendur yfir fjórða samsýn-
ing Vatnslitafélags Íslands í
Gallerí Göngum við Háteigs-
kirkju íi Reykjavík.
starri@frettabladid.is
Fjórða samsýning Vatnslitafélags
Íslands hófst 20. október í Galleríi
Göngum við Háteigskirkju í Reykja-
vík og stendur til sunnudagsins 20.
nóvember. Eins og á fyrri sam-
sýningum félagsins eru fjölbreytt
verk til sýnis en að þessu sinni
sýna 45 listamenn samtals 58 verk.
„Sýningarnefndin auglýsti í lok maí
eftir myndum meðal félagsmanna.
Alls bárust 176 myndir frá 63 félags-
mönnum sem þýðir að flestir sem
sendu inn myndir sendu þrjú verk,“
segir Derek Mundell, formaður
Vatnslitafélags Íslands.
Sýningarnefnd skipaði þriggja
manna dómnefnd fagmanna
utan félagsins, en með reynslu
af vatnslitamálun og kennslu í
faginu, til að velja inn myndir á
sýninguna. Í þetta skipti skipuðu
dómnefndina Louise Harris, Sigga
Björg Sigurðardóttir og Vicente
Garcia Fuente frá Spáni. „Dóm-
nefndin fékk myndirnar sendar án
höfundarnafna og þeim var raðað
af handahófi. Sýningarnefndin
fól þeim að velja verkin með það
að markmiði að verkin mynduðu
góða heild og að þau sýndu vel þá
fjölbreytni sem vatnsleysanleg efni
á pappír geta kallað fram.“
Vinsældir vatnslitunar aukist
Derek segir margt heillandi við
Ófyrirsjáanlegir litir sem fanga best andartökin
45 listamenn
sýna 58 verk
á samsýning-
unni í Galleríi
Göngum. MYND/
AÐSEND
Ég tel vatnsliti
vera besta mið-
ilinn til að fanga
andartök, segir
Derek Mun-
dell, formaður
Vatnslitafélags
Íslands.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
vatnslitun. Vinsældir hennar hafi
einnig aukist mikið hér á landi
undanfarin ár og telur hann að
félagið hafi spilað stórt hlutverk
þar. „Ég tel vatnsliti vera besta
miðilinn til að fanga andartök og
þá uppgötvun gerði ég þegar ég
var að fást við módelmálun. En ég
fann líka að vatnslitirnir hentuðu
vel til að mála landslagsmyndir
og hafið í allri sinni fjölbreytni,
þegar birtuskilyrðin eru sífellt að
breytast.“
Þá er frumlitunum leyft að
renna og blandast í vatnsfilmunni
á pappírnum. „Allar tilraunir til
að hafa fulla stjórn á litaflæðinu
og stýra hverjum pensildrætti
geta eyðilagt myndina. Í mínum
huga felst listin í viðkvæmu jafn-
vægi þess að stjórna litunum í
vatninu á pappírnum og að vinna
með vatninu.“
Af því leiðir svo að vatnslitir eru
að nokkru leyti ófyrirsjáanlegir,
myndirnar móta sig sjálfar og öðl-
ast eigið líf í höndum málarans,
að sögn Dereks. „Stöku sinnum
tekst svo vel til að vatnið, litirnir
og pappírinn blandast með þeim
undrum sem aðeins vatnslita-
verk geta kallað fram og þá getur
listamaðurinn verið ánægður með
verk sitt.“
Fjölbreytt starfsemi
Vatnslitafélag Íslands var stofnað
í febrúar 2019 og í því eru um
230 félagsmenn. Félagið er frjálst
félag vatnslitamálara og áhuga-
fólks um vatnslitamálun á Íslandi.
„Tilgangur þess er að efla stöðu
vatnslitamálunar og stuðla að
samvinnu félagsmanna á því sviði.
Félagsstarfið felst meðal annars í
vikulegum málunarstundum sem
öllum félagsmönnum er frjálst að
sækja, helgarnámskeiðum með
innlendum og erlendum meist-
urum, fræðslufundum um list, og
árlegri samsýningu félagsins.“
Fram undan er áframhaldandi
starf við að efla félagið og hvetja
um leið vatnslitamálara til að
koma saman reglulega til að
skapa og skiptast á hugmyndum
og tækni. „Í vetur fáum við list-
fræðinga og listamenn til að
fræða okkur og það verður haldið
grunnnámskeið fyrir félaga með
íslenskum kennara. Við erum
einnig að undirbúa heimsókn
tveggja erlendra vatnslitamálara
sem munu kenna þrjú helgarnám-
skeið næsta sumar. Hægt er að
fylgjast með starfsemi félagsins
og skoðað verk eftir um 60 félaga á
vefsíðu félagsins, vatnslitafelag.is.“
Sýningin er í Galleríi Göngum
í Háteigskirkju og er opin virka
daga frá kl. 10-16 en frá kl. 13-15
um helgar. n
Nánari upplýsingar á vatnslita-
felag.is og á Facebook-síðu Vatns-
litafélags Íslands.
Berglind Gerða Sigurðar-
dóttir er sölustjóri hjá
KAVITA og hefur starfað í
heilsugeiranum í fjöldamörg
ár. Berglind býr í Grafarvogi
og á þrjú börn. Hún hefur
mikinn áhuga á almennri
heilsu, mataræði, hreyfingu
og fæðubótarefnum.
sandra@frettabladid.is
Berglind hefur stúderað fæðu-
bótarefni, steinefni og allt sem
tengist slíkum efnum í mörg ár.
Hún segir mikið leitað til sín til að
fá ráð varðandi slíkt.
„Þegar vinkonur mínar standa í
heilsurekkanum í búðinni og vita
ekki hvað þær eiga að velja hringja
þær í mig til að fá ráðgjöf,“ segir
Berglind.
„Það skiptir líka máli hvenær
dags á að taka inn fæðubótarefni
og það er umræða sem ég hef
mikinn áhuga á og er alltaf til í að
ræða.“
„Ég hef tekið vítamín í mörg ár
og er líklega búin að prófa meira
en flestir. Ég hef tekið mikið af
bætiefnum en einhverra hluta
vegna er C-vítamínið alltaf mitt
uppáhaldsefni. Mér finnst margir
gleyma C-vítamíninu, en það er
ótrúlega mikilvægt að muna eftir
þessu lykilvítamíni bæði út af
andoxunarefnum sem eru frábær
fyrir húðina og fyrir góðan svefn.
Ég legg til dæmis mikla áherslu á
að benda vinkonum mínum á að
taka C-vítamínið á kvöldin, þann-
ig virkar það langbest. Mér finnst
eins og sumir á mínum aldri haldi
að C-vítamín sé bara eitthvað sem
var trend í gamla daga og fólk jafn-
vel ekkert að spá í það, en þetta má
ekki gleymast.“
Hefur ofurtrú á C-vítamíni
Berglind segir að C-vítamín
sé mikilvægt næringarefni sem
gegnir hlutverki í viðhaldi vefja og
framleiðslu á tilteknum taugaboð-
efnum.
Berglind notar C-vítamín frá
GOOD ROUTINE á hverjum degi
og hefur alla tíð haft ofurtrú á C-
vítamíni.
„Munurinn á þessu C-vítamíni
og öðru C-vítamíni er bromelain.
Það er efni sem finnst í ananas og
hjálpar til við bólgur og styrkir
ónæmiskerfið. Það hefur líka
reynst vel fyrir tennur og tann-
hold.“
Berglind hefur alla tíð stund-
að mikla hreyfingu og hugað
vel að mataræði og almennri
heilsu. Berglind er sannfærð
um að sá lífsstíll stuðli að mun
sterkari andlegri heilsu og komi
í veg fyrir lífsstílssjúkdóma.
Berglind var því miður ein af
þeim sem lenti illa í Covid, varð
mjög lasin og lengi að eiga við
leiðinda eftirköst.
„Í bataferlinu áttaði ég mig á
því hvað það var mikilvægt að
fá heilsuna til baka. Þá kom skýrt í
ljós hvað það skiptir miklu máli að
velja réttan mat og fæðubótarefni
til að ná heilsu á ný,“ segir hún.
„Það sem mér finnst áhuga-
verðast við C-vítamínið er að ég
er alveg laus við alla fótaóeirð og
almenna óeirð í líkamanum þegar
ég er dugleg að taka C-vítamín.
Þar af leiðandi verður svefninn
miklu betri. C-vítamínið eykur
líka upptöku járns í líkamanum.
Þegar við erum undir miklu álagi
andlega eða líkamlega er mikil-
vægt að líkaminn fái C-vítamín. Ég
er ekki hrædd við að taka of mikið
af C-vítamíni því það er þannig
vítamín að líkaminn losar sig við
það ef maður tekur of mikið“
Framleiðum ekki C-vítamín
Þetta C-vítamín sem ég er að taka
er einstök vara sem veitir öfluga
vörn fyrir bæði ónæmiskerfið,
öndunarfærin og taugakerfið.
„Þetta er því tilvalin fæðubót
fyrir þá sem vilja verjast árstíða-
bundnum kvefpestum, bæta
C-vítamíni í daglegt mataræði
og taka inn góð andoxunarefni,“
útskýrir Berglind.
„Líkaminn getur ekki framleitt
C-vítamín sjálfur svo hann þarf að
fá það úr fæðu eða með fæðubót. C-
vítamínið í C-YOUR-IMMUNITY®
er í sínu náttúrulega formi sem
gerir það að verkum að upptakan
verður mun betri í líkamanum.“
Berglind upplýsir að Quercetin
og hesperidin séu náttúruleg efni
sem virka einstaklega vel saman
við að draga úr kvef- eða ofnæmis-
einkennum, styðja við bólgusvar
líkamans og draga úr virkni skað-
legra efnasambanda í líkamanum.
Eins og Berglind minntist á áður,
inniheldur varan einnig bromela-
in. Það tegund ensíms sem kemur
úr ananas og hefur eiginleika til
þess að styðja við ónæmiskerfið og
öndunarfærin. n
Vörurnar frá Good Routine fást í
Krónunni, Hagkaup, Fjarðakaup,
Lyf og heilsu, Apótekaranum og á
www.goodroutine.is
Mitt allra mest uppáhalds C-vítamín
Berglind Gerða Sigurðardóttir er sölustjóri hjá KAVITA og hefur starfað í
heilsugeiranum í fjöldamörg ár. MYNDIR/AÐSENDAR
C-vítamínið í
C-YOUR-IMMUN-
ITY® er í sínu nátt-
úrulega formi.
Munurinn á þessu
C-vítamíni og öðru
C-vítamíni er bromelain.
Það er efni sem finnst í
ananas og hjálpar til við
bólgur og styrkir ónæm-
iskerfið.
4 kynningarblað A L LT 5. nóvember 2022 LAUGARDAGUR