Fréttablaðið - 05.11.2022, Síða 43
Framkvæmdastjóri
Samorka óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra.
Samorka óskar eftir að ráða reyndan leiðtoga í starf fram
kvæmda stjóra. Leitað er að einstaklingi sem býr yfir góðri
samskiptafærni, frumkvæði og hefur það sem þarf til að starf
rækja jákvæðan vettvang um starfsemi orku og veitufyrirtækja.
Starfsfólk Samorku er fimm talsins og eru aðildarfélögin
um 50 orku og veitufyrirtæki um allt land. Samtökin eru
aðilar að Samtökum atvinnulífsins.
Stefna Samorku er að starfrækja trúverðugan, fræðandi
og jákvæðan vettvang um starfsemi og hagsmuni orku
og veitufyrirtækja og að samtökin njóti trausts almennings
og stjórnvalda sem leiði til farsællar þróunar í orku og
veitumálum á Íslandi.
Samorka er samstarfsvettvangur aðildarfyrirtækja og faglegur
vettvangur þeirra í félags, kynningar og fræðslumálum.
Það eru spennandi tímar framundan í orku-
og veitu málum við að tryggja áfram heilnæmt
drykkjarvatn, umhverfisvænar fráveitur, heitt
vatn og rafmagn fyrir heimilin, atvinnulífið
og orkuskiptin.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja
um starfið.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Thelma Krístín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 5111225.
Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og henni þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf.
Umsóknarfrestur er til og með 20. nóvember 2022.
Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
• Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri
• Ábyrgð á starfsemi Samorku gagnvart stjórn
• Innleiða og framfylgja stefnu og ákvörðunum
stjórnar/aðalfundar
• Stuðla að og bera ábyrgð á góðum tengslum
við aðildarfyrirtæki og rækta félags og fræðslustarf
• Samskipti og upplýsingagjöf til stjórnvalda, fjölmiðla
og almennings
Hæfniskröfur:
• Stjórnunarreynsla
• Þekking á starfsumhverfi orku og veitufyrirtækja er kostur
• Þekking á umhverfismálum og nýtingu náttúruauðlinda
er æskileg
• Góðir samskipta og samstarfshæfileikar
• Góð hæfni í íslensku og ensku og færni í að tjá sig
í ræðu og riti
• Kunnátta í Norðurlandamáli er kostur
Nánari upplýsingar um samtökin má finna á: www.samorka.is
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára