Fréttablaðið - 05.11.2022, Síða 47
Umsóknarfrestur er til og með 17. nóvember nk.
Upplýsingar veita Elín Dögg Ómarsdóttir,
elin@hagvangur.is, og Inga Steinunn Arnardóttir,
inga@hagvangur.is.
Við leitum að hornsteinum
framtíðarinnar
Eignarhaldsfélagið Hornsteinn auglýsir tvö spennandi störf hjá framsæknu
fyrirtæki með skýra framtíðarsýn. Leitað er að kröftugum einstaklingum
sem vilja slást í hóp öflugs teymis sem vinnur að því að móta umhverfis
vænni byggingariðnað.
Öryggisstjóri
Við leitum að öflugum og umbótasinnuðum öryggisstjóra sem starfar þvert
á dótturfyrirtæki Hornsteins til að tryggja að allir komist heilir heim eftir
vinnudaginn. Mikil áhersla er lögð á fræðslu og forvarnarstarf sem miðar
að því að efla öryggismenningu.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Þróun og eftirfylgni öryggis, heilbrigðis og vinnuumhverfismála
• Uppbygging og ábyrgð öryggisstjórnunarkerfis
• Ráðgjöf, þjálfun og fræðsla til stjórnenda, starfsfólks og verktaka
• Skráningar, markmið, úrbætur og eftirfylgni
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun og reynsla sem nýtist í starfi
• Þekking á vottunarferlum er æskileg
• Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og metnaður
• Framúrskarandi samskiptafærni
• Umbótasinnuð hugsun
• Góð íslensku og enskukunnátta
Sölustjóri byggingalausna hjá BM Vallá
Vilt þú byggja til framtíðar með okkur? Um er að ræða nýtt og spennandi
starf sem viðkomandi hefur tækifæri til að þróa áfram. Ef þú vilt láta til þín
taka í ráðgjöf og sölu á sviði mannvirkjagerðar þar sem áhersla er lögð á
umhverfisvænni lausnir þá viljum við heyra í þér.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Sala og ráðgjöf á húseiningum, steypu, framleiðslu og endursöluvörum
• Tilboðs, samninga og reikningagerð
• Samskipti við viðskiptavini, framleiðsludeildir, hönnuði, birgja og verktaka
• Greining og öflun nýrra viðskiptatækifæra
• Gerð sölu og markaðsáætlana
Menntunar- og hæfniskröfur
• Tækni og/eða iðnmenntun sem nýtist í starfi
• Þekking og reynsla úr byggingariðnaði
• Þjónustulund, frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
• Góð almenn íslensku og enskukunnátta
hagvangur.is
Eignarhaldsfélagið Hornsteinn ehf. á og rekur
þrjú dótturfélög sem starfa við öflun hráefna,
framleiðslu, sölu og þjónustu á byggingarmarkaði
og við mannvirkjagerð. Fyrirtækin eru Björgun,
BM Vallá og Sementsverksmiðjan og hafa þessi
félög rótgróna sögu á Íslandi. Umhverfismál
og sjálfbær nýting auðlinda er rauður þráður í
starfseminni og er markvisst unnið að lausn um
sem hafa jákvæðari umhverfisáhrif.
Hjá fyrirtækjunum starfa um 200 manns
á starfsstöðvum víða um land.
Hornsteinn leggur mikla áherslu á að skapa gott
vinnuumhverfi, jafnrétti og er jafnlaunastefna
órjúfanlegur hluti af launastefnu fyrirtækisins. Við
hvetjum öll kyn til að sækja um starfið en hægt er
að sækja um á hagvangur.is.
Umsóknir og
nánari upplýsingar
á hagvangur.is
ATVINNUBLAÐIÐ 5LAUGARDAGUR 5. nóvember 2022