Fréttablaðið - 05.11.2022, Side 74
Það höfðu nokkrir
í ættinni fengið
krabbamein og dáið en
ég á mest systur minni að
þakka að ég fór í skoðun
þar sem krabbameinið
fannst.
Stefán Stefánsson
Stefán Stefánsson greindist
með blöðruhálskrabbamein
í september árið 2019 og fór
í brottnám tveimur mán-
uðum síðar.
Frá því Stefán fékk bót meina sinna
hefur hann verið duglegur að
fræða karlmenn um krabbameinið
og hefur tekið þátt í starfi krabba-
meinsfélagsins Framfarar, sem er
með ráðgjöf og stuðning fyrir karla
með krabbamein í blöðruháls-
kirtli og aðstandendur, í samstarfi
við Félag þvagfæraskurðlækna,
Krabbameinsfélagið og Ljósið.
„Það höfðu nokkrir í ættinni
fengið krabbamein og dáið en ég á
mest systur minni að þakka að ég
fór í skoðun þar sem krabbameinið
fannst. Hún hreinlega skikkaði
mig og aðra til að fara í skoðun,“
segir Stefán.
„Systir mín greindist með
krabbamein. Hún náði sér en það
hvarf ekki. Hún greindist aftur og
fékk meinvörp og lést fyrir átta
árum síðan. Hún var baráttuglöð
og mikill skörungur og hún hélt
alltaf áfram að hamra á því þegar
hún var sjálf mikið veik að ég og
bræður mínir færum í skoðun,“
segir Stefán.
Stefán segist ekki hafa verið með
nein einkenni áður en hann leitaði
til læknis og lét kanna blöðru-
hálskirtilinn. „Ég bara dreif mig í
skoðun. Þótt systir mín væri fallin
frá þá vildi ég hlýða kalli hennar.
Faðir minn lést úr krabbameini,
ekki þó úr blöðruhálskrabba-
Á systur minni mikið að þakka
Stefán Stefáns-
son greindist
með blöðru-
hálskrabbamein
fyrir þremur
árum síðan.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
meini, en þá var þetta alltaf miklu
meiri feluleikur,“ segir Stefán.
Hefði ekki mátt bíða lengur
Stefán segir að þegar hann
greindist með krabbameinið hafi
það verið á byrjunarstigi. „Ég var
heppinn að fara í skoðun á þessum
tímapunkti því þegar ég greindist
var krabbameinið á frumstigi.
Ég hefði ekki mátt bíða lengur,
þá hefði þetta getað endað illa.
Læknirinn sem tilkynnti mér að ég
væri með krabbameinið sagði við
mig: Nú erum við með vandamál.
Hvernig leysum við það? Úr varð
að ég fór í brottnám. Ég fór hvorki í
geisla- né lyfjameðferð og ástæðan
fyrir því var hversu snemma þetta
greindist. Brottnámið átti sér stað
þannig að það voru gerð göt á
magann og tölvustýrð vél sá um að
fjarlægja meinið. Á síðustu fimm
árum hefur orðið gífurleg þróun
í aðgerðum og eftirliti og þessi
þróun mun halda áfram,“ segir
Stefán.
Varst þú f ljótur að ná þér eftir
aðgerðina?
„Það tók sinn tíma að ná sér
líkamlega. Ég var í ágætis æfingu
þegar ég greindist en menn tala oft
digurbarkalega um að taka þetta á
kassann. Það er mikið sjokk að fá
þær fréttir að þú sért með krabba-
mein. Ég heimsótti Ljósið sem er
endurhæfingar- og stuðningsmið-
stöð fyrir fólk sem hefur fengið
krabbamein og aðstandendur þess.
Það var hreint og beint stórkostlegt
að koma þangað. Aðstoðin, þekk-
ingin, hugurinn og andinn þar gaf
mér svo mikið,“ segir Stefán.
Margir eru einangraðir
Stefán segist hugsa til allra þeirra
sem ekki fara í skoðun og gera
það ekki nógu snemma. „Það sem
fór illa í mig var að vita af öllum
hinum sem ekki fara snemma í
skoðun. Ég hugsa til þess hversu
vel ég slapp frá þessu en er hugsi
yfir þeim sem ekki leggja í að fara
í skoðun. Ég fór að vinna fyrir
Krabbameinsfélagið Framför og
þar er verið að vinna eftir öllu sem
mig langaði að gera og miklu fleira
til. Við viljum ná til karlmanna,
þeir fari snemma í skoðun og fái
stuðning ef þeir greinast með
krabbamein. Margir eru einangr-
aðir og hafa ekki stuðning frá
maka eða fjölskyldu og við verðum
að ná til þeirra. Mín skilaboð
eru skýr. Menn eiga að drífa sig í
skoðun og það er ekki flókið. Við
vitum að það er margir sem eru
hræddir við að fara og óttast niður-
stöðuna en þá er mikilvægt að
styðja við bakið á þessum aðilum,“
segir Stefán. n
Við þökkum fyrir stuðninginn
Akureyri
Hofsós
Vesturfarasetrið Hofsósi
Siglufjörður
Aðalbakarinn ehf, Aðalgötu 26 -28
Efnalaugin Lind sf, Aðalgötu 21
Akureyri
Akureyrarkirkja, Eyrarlandsvegi
B. Hreiðarsson ehf, Þrastarlundi
Bílaleiga Akureyrar
Eining-Iðja, Skipagötu 14
Halldór Ólafsson, úr og skartgripir,
Glerártorgi
Hlíð hf, Kotárgerði 30
Keahótel ehf, Skipagötu 18
Lagnalind ehf, Móasíðu 9b
Ljósco ehf, Ásabyggð 7
Rafmenn ehf, Frostagötu 6c
Raftákn ehf - Verkfræðistofa,
Glerárgötu 34
Sigurgeir Svavarsson ehf,
byggingaverktaki, Njarðarnesi 4
Sjúkrahúsið á Akureyri, Eyrarlandsvegi
Tölvís sf, Kaupangi við Mýrarveg
Vélsmiðjan Ásverk ehf,
Grímseyjargötu 3
Dalvík
EB ehf, Gunnarsbraut 6
Híbýlamálun,málningarþjónusta ehf,
Reynihólum 4
Kussungur 2 ehf, Ásvegi 3
Tannlæknastofan Dalvík
Tréverk ehf, Dalvík, Grundargötu 8-10
Vélvirki ehf, verkstæði, Hafnarbraut 7
Ólafsfjörður
Árni Helgason ehf, vélaverkstæði,
Hlíðarvegi 54
JVB-Pípulagnir ehf, Aðalgötu 37
Húsavík
Fjallasýn Rúnars Óskarssonar
ehf-www.fjallasyn.is, Smiðjuteigi 7
Framsýn, stéttarfélag, Garðarsbraut 26
Tjörneshreppur, Ketilsstöðum
Trésmiðjan Rein ehf
Val ehf, Höfða 5c
Laugar
Framhaldsskólinn á Laugum, Reykjadal
Mývatn
Jarðböðin við Mývatn, Jarðbaðshólum
Vogar ferðaþjónusta, Vogum
Kópasker
Eyjafjarðar- og
Þingeyjarprófastsdæmi, Skinnastað
Bakkafjörður
K Valberg slf, Kötlunesvegi 19
Egilsstaðir
Bókráð, bókhald og ráðgjöf ehf,
Miðvangi 2-4
Klausturkaffi ehf, Skriðuklaustri
Múlaþing, Lyngási 12
Sigvaldi Ragnarsson,
Hákonarstöðum 3
Tréiðjan Einir ehf, Aspargrund 1
Seyðisfjörður
PG stálsmíði ehf, Fjarðargötu 10
Borgarfjörður
Fiskverkun Kalla Sveins og Álfacafé,
Vörðubrún, Borgarfjörður eystri
Reyðarfjörður
Félag opinberra starfsmanna á
Austurlandi, Stekkjarbrekku 8
Hárstofa Sigríðar ehf, Austurvegi 20a
Launafl ehf, Hrauni 3
Tærgesen, veitinga- og gistihús,
Búðargötu 4
Eskifjörður
Egersund Ísland ehf, Hafnargötu 2
Tandraberg ehf, Strandgötu 8
Neskaupstaður
Nestak ehf, byggingaverktaki,
Borgarnausti 6
Verkmenntaskóli Austurlands,
Mýrargötu 10
Djúpavogur
Hótel Framtíð ehf, Vogalandi 4
Höfn í Hornafirði
Málningarþjónusta Horna ehf,
Álaugarvegi 1
Rósaberg ehf, Háhóli
Þingvað ehf, byggingaverktakar,
Tjarnarbrú 3
Þrastarhóll ehf, Kirkjubraut 10
Selfoss
AB-skálinn ehf, Gagnheiði 11
Baldvin og Þorvaldur ehf
Bifreiðaverkstæðið Klettur ehf,
Hrísmýri 3
Bílverk BÁ ehf, bílamálun og
bílaréttingar, Gagnheiði 3
Eðalbyggingar ehf, Háheiði 3
Fræðslunetið - símenntun á
Suðurlandi, Tryggvagötu 13
Gesthús Selfossi, gistihús og
tjaldsvæði, Engjavegi 56
Guðmundur Tyrfingsson ehf,
Fossnesi C
Hjá Maddý ehf, Eyravegi 27
JÁ pípulagnir ehf, Suðurgötu 2
Jóhann Helgi og Co, heildarlausnir á
leiksvæðum, Vatnsholti 2
Kökugerð H P ehf, Gagnheiði 15
Málarinn Selfossi ehf
Motivo Miðbær ehf, Brúarstræti 3
Mömmumatur.is
Nesey ehf, Suðurbraut 7
Písl ehf, Grenigrund 13
Pylsuvagninn Selfossi við
brúarendann
Reykhóll ehf, Reykhóli
Tannlæknaþjónustan.is, s: 482 3333,
Reykjavík, Selfossi og Hellu
Vélsmiðja Suðurlands ehf, Gagnheiði 5
Hveragerði
Heilsustofnun NLFÍ - heilsustofnun.is,
Grænumörk 10
Hótel Örk, Breiðumörk 1c
Kjörís ehf, Austurmörk 15
Þorlákshöfn
Járnkarlinn ehf, Unubakka 12
Sveitarfélagið Ölfus, Hafnarbergi 1
Ölfus
Hraunsós ehf, Hrauni 1b
Laugarvatn
Ásvélar ehf, Hrísholti 11
Flúðir
B.R. Sverrisson ehf
Flúðasveppir ehf, Undirheimum
Fögrusteinar ehf, Birtingaholti 4
Gröfutækni ehf, Iðjuslóð 1
Íslenskt grænmeti ehf, Melum
Varmalækur ehf, Laugalæk
Hella
Freyðing ehf, Fagurhóli
Hestvit ehf, Árbakka
Hvolsvöllur
Krappi ehf, byggingaverktakar,
Ormsvöllum 5
Torf túnþökuvinnsla ehf, Borgareyrum
Kirkjubæjarklaustur
Skaftárhreppur, Klausturvegur 4
Vestmannaeyjar
Bíla- og vélaverkstæðið Nethamar ehf,
Garðavegi 15
Bragginn sf, bílaverkstæði, Flötum 20
Gröfuþjónustan Brinks ehf, Ásavegi 27
Ísfélag Vestmannaeyja hf, Tangagötu 1
Karl Kristmanns, umboðs- og
heildverslun, Ofanleitisvegi 15-19
Ós ehf, Strandvegi 30
Skipalyftan ehf, Eiðinu
Vinnslustöðin hf, Hafnargötu 2
8 5. nóvember 2022 LAUGARDAGURblÁi trefillinn