Fréttablaðið - 05.11.2022, Page 80
Andi Joes
Biden
svífur
vissu-
lega yfir
vötnum
í þessum
kosn-
ingum en
það er ljóst
að skuggi
Donalds
Trump
liggur yfir
öllu land-
inu.
Á þriðjudaginn, 8. nóvem-
ber, ganga Bandaríkjamenn
að kjörborðinu. Kosið verður
um 35 þingsæti í öldunga-
deildinni, 435 þingsæti
í fulltrúadeildinni og 39
ríkisstjórastóla, þar af þrjá á
sjálfstjórnarsvæðum, ásamt
ýmsum öðrum embættum í
einstökum ríkjum og sýslum.
Allar líkur eru á því að
Repúblikanaflokkurinn
nái meirihluta í fulltrúa-
deildinni. Meirihluti
Demókrata í öldunga-
deildinni hangir síðan á bláþræði en
Demókratar eiga þá meiri möguleika
á að halda öldungadeildinni. Meiri-
hlutinn stendur og fellur með fjórum
ríkjum fyrir Demókrata: Arizona,
Georgíu, Pennsyl vaníu og Nevada.
Öldungadeildin skiptist þvert á
flokka í dag þar sem flokkarnir tveir
eru með 50 þingmenn hvor. Varafor-
seti Bandaríkjanna hefur kosninga-
rétt í öldungadeildinni og því gefur
Kamala Harris Demókrötum meiri-
hluta eins og er. Ef Demókratar tapa
þingmanni í Arizona, Georgíu eða
Nevada þurfa þeir að sækja þing-
mann í „rauðum“ ríkjum og ef þeir
ætla að eiga möguleika á því verður
það líklegast í Pennsylvaníu, Ohio
eða Wisconsin.
Með því að missa meirihluta í
fulltrúadeildinni geta Repúblikanar
auðveldlega hægt á stefnumálum
Joes Biden Bandaríkjaforseta en
það er þó meira áhyggjuefni fyrir
Demókrata að fulltrúadeildin hefur
nær óskorað vald til þess að setja á
fót rannsóknarnefndir. Flokkarnir
tveir hafa nýtt sér þetta óspart í
pólitískum tilgangi. Sem dæmi má
nefna réttarhöld Repúblikana yfir
Hillary Clinton í tengslum við árás-
ina á sendiráð Bandaríkjanna í Beng-
hazi eða réttarhöld Demókrata yfir
Trump í tengslum við aðkomu Rússa
að kosningum 2016.
Ef Demókratar tapa öldungadeild-
inni hins vegar geta Repúblikanar
stöðvað allar skipanir Bidens í emb-
ætti svo sem til dómara við alríkis-
dómstóla landsins.
Áhyggjur af efnahagnum aukast
Kjósendur í ár eru vissulega að velta
fyrir sér hefðbundnum kosninga-
málefnum, eins og áhyggjum af
glæpa tíðni og innflytjendamálum,
en hækkandi framfærslukostnaður
á hug og hjörtu f lestra kjósenda
samkvæmt könnunum í ár.
Rúmlega þriðjungur allra kosn-
ingabærra einstaklega setur efna-
hagsmálin í fyrsta sæti. Repúbl-
ikanar keppast hver af öðrum við
að kenna Biden og Covid-aðgerðum
Demókrata um verðbólguna í land-
inu.
Það eru vissulega blæbrigði
í þe s su en s ög u leg a he f u r
Repúblikana f lokknum gengið vel
í kosningum ef kjósendur eru með
hugann við efnahagsmálin.
Fyrir nokkrum mánuðum leit út
fyrir að Demókratar myndu ganga
tvíefldir til kosninga eftir að kjós-
endahópur þeirra vaknaði til lífsins
er Hæstiréttur Bandaríkjanna snéri
við dómafordæmi Roe gegn Wade
sem tryggði konum stjórnarskrár-
varinn rétt til þungunarrofs.
Um stund virtist reiði kvenna
yfir niðurstöðunni ætla að tryggja
Demókrötum sigur í þingkosn-
ingunum en það breyttist hratt
er kjósendur fengu að finna fyrir
verðbólgunni í veskinu á síðustu
vikum.
Nýleg skoðanakönnun The Wall
Street Journal sýnir að Repúblikan-
ar eru að fá mun meiri stuðning frá
kvenkyns kjósendum en búist var
við. Hvítar konur í úthverfum eru
þar fremstar í f lokki en þær eru nær
allar að færa sig frá Demókrötum
yfir til Repúblikana. Þær mynda
um 20 prósent allra kjósenda í
kosningunum í ár og telja spek-
ingar að þær séu lykilhópur til að
fylgjast með hvorum megin pend-
úllinn sveif last í öldungadeildinni.
Efnahagsáhyggjur skipta þær
mestu máli en í könnun WSJ kemur
fram að um 74 prósent kvenna telja
efnahag landsins vera að versna.
Fyrir einungis tveimur mánuðum
sögðu 59 prósent kvenna í sömu
könnun að efnahagurinn væri á
niðurleið.
Meirihluti Demókrata
hangir á bláþræði
Hvítar konur í úthverfum Banda-
ríkjanna áttu stóran þátt í sigri
Demókrata í fulltrúadeildinni árið
2018 þar sem f lokkurinn sótti um
40 þingsæti.
E f hv ít a r konu r y f i r ge f a
Demókrata í röðum í ár mun
Repúblikana flokkurinn vinna stór-
sigur í fulltrúadeildinni.
Í von um að snúa þessari þróun
við skrifuðu fjórir landsþekktir
kosningastjórar úr Demókrata-
f lokknum leiðara í frjálslynda
tímaritið American Prospect þar
sem þeir hvöttu Demókrata á
landsvísu til að breyta um stefnu
og einblína á efnahagsmálin.
Í h a ld s m iði l l i n n Wa sh i ng -
ton Examiner gerði létt grín að
nýfundnum áhyggjum Demókrata
í leiðara blaðsins á fimmtudaginn
með því að minna Demókrata á
f leyg orð James Carville árið 1992:
„It’s the economy, stupid.“
Biden, Trump og Obama
Þingkosningar á miðju fyrsta kjör-
tímabili nýs forseta eru alltaf ein-
kunnaspjald fyrir störf hans en
sögulega hefur flokkur sitjandi for-
seta tapað þeim kosningum.
Andi Joes Biden svífur vissulega
yfir vötnum í þessum kosningum
en það er ljóst að skuggi Donalds
Trump liggur yfir öllu landinu.
Forsetinn fyrrverandi hefur farið
víða um land á síðustu dögum og
stutt dyggilega við frambjóðendur
Repúblikana en fjölmargir stuðn-
ingsmenn hans gerðu vel í próf-
kjörum flokksins.
Biden er sögulega óvinsæll um
þessar mundir og hefur hann því
haldið sig í temmilegri fjarlægð.
Demókratar hafa þess í stað leitað
til Baracks Obama, fyrrverandi for-
seta Bandaríkjanna, sem hefur verið
tíður gestur á kosningaviðburðum.
Fátt segir meira um óvinsældir
Bidens en að hann muni eyða kosn-
ingakvöldinu sjálfu í Maryland sem
er nokkuð öruggt vígi Demókrata.
Einungis 42,4 prósent Bandaríkja-
manna eru ánægð með störf for-
setans um þessar mundir en til
samanburðar var stuðningur við
Trump um 47 prósent á þessu tíma-
bili árið 2018.
Þrátt fyrir að allt stefni í að
Repúbl ikanar muni ná meirihluta
í fulltrúadeildinni eru nokkur kjör-
dæmi sem gætu gefið merki um
hversu stór sá sigur yrði. Ef 2. eða
7. kjördæmi Virginíu-ríkis fellur í
hlut Repúblikana eru Demókratar í
vandræðum. Þetta ætti að verða ljóst
snemma kvölds.
Hins vegar verða augu allra á öld-
ungadeildinni á kosningakvöldinu.
Fótboltastjarna með fortíð
Ef eitthvert ríki Bandaríkjanna er
táknmynd „bláu bylgjunnar“ sem
reið yfir landið árið 2020 er það
Georgía. Biden vann þar óvænt árið
2020, en ríkið hefur sögulega verið í
höndum Repúblikana. Demókratar
unnu einnig bæði öldungadeildar-
þingsæti ríkisins en annað þeirra
vannst í sérstökum kosningum
síðasta haust.
Sigur Demókrata í þingkosning-
unum markaðist að mestu leyti
af leti í kjósendum Repúblikana-
flokksins sem höfðu ekki fyrir því
að mæta á kjörstað.
Repúblikanaflokkurinn þurfti því
að finna öflugan frambjóðanda
Barack Obama,
fyrrverandi
forseti Banda-
ríkjanna, á kosn-
ingaviðburði í
Georgíu ásamt
Stacey Abrams
(t.v.) sem býður
sig fram til
ríkisstjóra og
Raphael War-
nock, þing-
frambjóðanda
Demókrata.
Fréttablaðið/
Getty
Hneykslismál hafa sett strik í reikninginn hjá framboði Herschel Walker.
Magnús Heimir
Jónasson
mhj
@frettabladid.is
34 Helgin 5. nóvember 2022 LAUGARDAGURFréttAblAðið