Fréttablaðið - 05.11.2022, Side 82
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vil
lu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
ét
t t
il l
eið
ré
tti
ng
a á
sl
íku
. A
th
. a
ð
ve
rð
ge
tu
r b
re
ys
t á
n
fyr
irv
ar
a.
595 1000 www.heimsferdir.is
Tenerife
Flug aðra leið til
19.950
Flug aðra leið frá
Flugsæti
16. nóvember
Heimild: RealClearPolitics, Reuters Myndir: Getty © GRAPHIC NEWS
Arizona:
Mark Kelly, þingmaður
Demókrata okksins, leiðir
naumlega gegn Blake
Masters, frambjóðanda
Repúblikana okksins.
Georgía:
Þingmaðurinn Raphael
Warnock berst við NFL-
stjörnuna Herschel
Walker um að halda
þingsæti sínu.
Nevada:
Fyrrverandi
dómsmálaráðherra ríkisins
sækir hart að sitjandi
þingmanni demókrata
Catherine Cortez Masto.
Ohio:
Demókratinn Tim Ryan
heldur naumri forystu gegn
JD Vance í baráttunni um
laust þingsæti sem áður
var í höndum repúblikana.
Pennsylvanía:
Stjörnulæknirinn Mehmet
Oz og vararíkisstjóri
Pennsylvaníu, John
Fetterman, eru í hörðum
slag um laust þingsæti.
Wisconsin:
Vararíkisstjóri Wisconsin,
Mandela Barnes, leitast
eir að fella sitjandi
þingmann repúblikana,
Ron Johnson.
Lykilríki í baráttunni um öldungadeildina
Repúblikanar þurfa aðeins að vinna eitt þingsæti til að
ná meirihluta í öldungadeild Bandaríkjaþings
Kosið er um
35 þingsæti í ár.
Alls eru 14 sæti
demókrata laus
og 21 þingsæti
repúblikana.
Demókratar Repúblikanar
Örugg Líklegt Hallast að Jafnar líkur Hallast að Líklegt Örugg
Líklegar niðurstöður
AK
AR
LA
AZ
CO
IL
WI
NC
PA
NY
KYKS
SC
GA
OH
OK*
AL
ID
UT
NV
OR
CA
WA
SD
ND
IA
IN
MO
FL
CT
NH
MD
VT
HI
fyrir komandi þingkosningar.
Slíkur frambjóðandi fannst í
Herschel Walker sem er nokkurs
konar þjóðhetja í Georgíu vegna
ferils síns í ameríska háskólafótbolt
anum en hann spilaði fyrir Háskól
ann í Georgíu.
Walker tilkynnti framboð sitt í
ágúst 2020 undir formerkjum þess að
vera bara „lítill strákur frá litlum bæ í
Georgíu sem hefur fengið að upplifa
ameríska drauminn“.
Repúblikanar flykktust að honum
vegna frægðar hans en flokkurinn
hefði betur varið örlitlum tíma í að
skoða fortíð hans.
Snemma í framboðinu kom í ljós
að Walker beitti fyrrverandi eigin
konu sína, Cindy Grossman, miklu
ofbeldi og beindi meðal annars skot
vopn að gagnauga hennar og hótaði
að myrða hana.
Þrátt fyrir að tala opinberlega gegn
þungunarrofi hefur hann verið sak
aður um að borga fyrir þungunar
rofsaðgerðir hjá tveimur fyrrverandi
ástkonum sínum.
Walker nýtti síðan sviðsljósið til
að tala um mikilvægi kjarnafjöl
skyldunnar og sagði svarta feður
þurfa að stíga upp í föðurhlutverk
inu. Það féll hratt um sjálft sig er í ljós
kom að hann á þrjú börn sem hann
neitar að gangast við, tvo syni og eina
dóttur.
Móðir annars drengsins þurfti
að fara í dómsmál til að fá viður
kenningu á faðerninu og meðlags
greiðslur.
Slík hneykslismál væru endalok
flestra framboða en frægð Walkers
heldur honum á f loti. Þar skiptir
stuðningur Donalds Trump einnig
miklu máli en Walker og Trump eru
vinir til margra ára og stendur sá
síðarnefndi fast við bakið á sínum
manni.
Walker sækir að Raphael Warnock,
sitjandi öldungadeildarþingmanni
ríkisins, eftir að hafa unnið óvæntan
sigur í sérstakri kosningu í fyrra.
Warnock reynir sitt besta til
að halda fjarlægð frá Biden, sem
er ekkert sérlega vinsæll í ríkinu.
Hann minnir kjósendur reglulega
á að hann vinni jafnt með Demó
krötum og Repúblikönum og nefnir
ítrekað að hann og Ted Cruz, þing
maður Repúblikana, hafi tryggt fjár
magn í nýja hraðbraut milli Texas og
Georgíu.
Þá er vert að taka fram að Chase
Oliver, frambjóðandi frjálshyggju
flokksins í Georgíu, er að mælast
með 3 prósenta fylgi. Frambjóð
endur þurfa að ná 50 prósenta
meirihluta til að sigra í ríkinu og
eru því allar líkur á að þörf verði á
sérstakri kosningu milli Warnocks
og Walkers. Slík kosning færi fram
6. desember.
Afneitunarsinnar í Arizona
Geimfarinn fyrrverandi og þing
maðurinn Mark Kelly sækist eftir
endurkjöri í Arizona en ríkið hefur
óvænt orðið sveif luríki á síðustu
árum. Í pólitík er Kelly þekktastur
fyrir að vera eiginmaður Gabrielle
Giffords sem var skotin í höfuðið
árið 2011 er hún var sitjandi þing
maður. Giffords lifði af en þurfti að
segja af sér þingmennsku og hefur
Kelly talað opinberlega (og kosið)
gegn vopnaburði almennings .
Áhættufjárfestirinn Blake Mast
ers sækist eftir þingsæti Kellys en
Masters er sagður vera lærisveinn
auðjöfursins Peters Thiel, sem var
einn af fyrstu fjárfestum Facebook.
Thiel hefur árum saman styrkt
f rambjóðendu r Repúblikana
f lokksins með fjárframlögum en
hann blandar sér meira í baráttuna
í ár.
Thiel er þekktur fyrir vægast sagt
sérstakar skoðanir og fylgir Mast
ers honum fast á eftir. Sem dæmi er
hann sannfærður um að tækniris
arnir í Kaliforníu og alríkislögregla
Bandaríkjanna hafi lagt sitt lóð á
vogarskálarnar til að stela kosning
unum af Trump árið 2020. Masters
fylgir þar eftir fjölmörgum Repúbli
könum sem sækjast eftir embætti í
Arizona og neita að viðurkenna
kosningaúrslit ársins 2020.
Stjörnulæknir og heilablóðfall
Ef Demókratar tapa þingsæti eiga
þeir möguleika á að sækja sæti í
Pennsylvaníu. Demókratinn John
Fetterman, aðstoðarríkisstjóri, er
þar harðri baráttu við sjónvarps
lækninn Mehmet Oz, betur þekktan
sem Dr. Oz.
Fetterman er eins frjálslyndur og
þeir verða og styður rétt kvenna til
þungunarrofs og lögleiðingu kanna
bis. Hann fékk hins vegar heilablóð
fall fyrir nokkrum mánuðum og
er enn að glíma við eftirköst þess.
Kjósendur sáu skýrt að hann væri
ekki alveg heill heilsu í sjónvarps
kappræðum við Dr. Oz í vikunni.
Það er erfitt að lýsa Dr. Oz öðru
vísi en sem snákaolíusölumanni
en hann viðurkenndi opinberlega
á opnum nefndarfundi í þinginu
fyrir átta árum að nær allar „töfra
vörurnar“ sem hann auglýsti í þætti
sínum væru alls ekki að skila lof
uðum árangri. Málefnalega hefur
hann hengt sig á Donald Trump.
Fetterman leiðir, með 49 prósent
um á móti 44, samkvæmt nýjustu
könnun The New York Times en
tveir þriðju svarenda svöruðu áður
en Fetterman mætti, ólíkur sjálfum
sér, í sjónvarpskappræðurnar. Allra
augu og allt fé f lokkanna verður
í Pennsylvanínu um helgina en í
dag mæta bæði Joe Biden og Barack
Obama til að styðja við bakið á Fet
terman. Á sama tíma verður Trump
á kosningaviðburði fyrir Dr. Oz.
Handvalinn eftirmaður í hættu
Síðasta ríkið sem vert er að fylgjast
með er Nevada en það er einungis
vegna þess að vonarstjarna Harrys
Reid, fyrrverandi leiðtoga Demó
krataflokksins í öldungadeildinni,
berst þar fyrir pólitísku lífi sínu.
Fáir, ef einhverjir, höfðu jafnmikil
tök á heimaríki sínu og Reid hafði
á árum áður.
Þegar kom að próf kjöri Demó
krataflokksins í Nevada árið 2016
neitaði Reid að styðja Hillary
Clinton eða Bernie Sanders opin
berlega, í von um að átökin þeirra
á milli myndu leiða til mikillar
nýskráningar í f lokkinn.
Reid gerði þetta í von um f leiri
f lokksmenn myndu skila Cath
erine Cortez Masto á þing og gekk
það upp. Cortez Masto varð fyrsta
og eina þingkonan í sögu Banda
ríkjanna af rómönskum uppruna.
Demókrataf lokkurinn hefur
hins vegar sundrast í ríkinu eftir
brotthvarf Reids og hafa vinstri
sinnaðri öfl f lokksins togað f lokks
menn í ýmsar áttir.
Fyrrverandi dómsmálaráðherra
Nevada, Adam Laxalt, sækir nú
hart að Masto og hafa báðir f lokkar
f leygt peningum í kosningabarátt
una. Laxalt er barnabarn fyrr
verandi ríkisstjóra Nevada, Paul
Laxalt, sem var góðvinur Ronalds
Reagan fyrrverandi Bandaríkjafor
seta. Laxalt yngri er þó afar ólíkur
afa sínum þegar kemur að mál
efnum og hefur hengt sig á stefnu
Trumps. Hann neitar að viður
kenna kosningaúrslitin 2020 og
talar reglulega gegn frjálslyndum
hugsjónum og „wokeisma“. Sam
kvæmt könnunum hefur Laxalt
örlítið forskot á Masto og gæti því
áratugalöng vinna Reids í Nevada
orðið að engu, en slíkt skýrist ekki
fyrr en á þriðjudaginn. n
Donad Trump,
fyrrverandi
forseti Banda-
ríkjanna, á
kosningavið-
burði með sjón-
varpslækninum
Mehmet Oz,
betur þekktum
sem Dr. Oz.
Fetterman
leiðir með
49% á móti
44% sam-
kvæmt
nýjustu
könnun
The New
York
Times.
36 Helgin 5. nóvember 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið