Fréttablaðið - 05.11.2022, Side 84
Margir af
helstu
frum-
kvöðlum
heims eru
með
ADHD.
Það þarf að
vera fram-
úrstefnu-
legur í
hugsun til
að brydda
upp á
nýjungum.
Þingkonan Hafdís Hrönn
Hafsteinsdóttir er ein af fjöl-
mörgum Íslendingum sem
hafa greinst með ADHD.
Hún segir að mikilvægt sé að
tala ekki niður til þeirra sem
glíma við ADHD.
Þegar fólk heyrir mig tala
um að ég sé með ADHD
er fólk alltaf að tala um
að það sjáist ekki á mér. Ef
þú þekkir mig vel þá sérðu
það,“ segir Hafdís Hrönn Hafsteins-
dóttir, þingkona Framsóknar, létt í
lund.
Hún tók til máls á sérstakri
ADHD-ráðstefnu sem var haldin
á dögunum. Athyglisbrestur og
ofvirkni, kallað ADHD í daglegu
tali, er taugaþroskaröskun sem
getur haft víðtæk áhrif á daglegt líf.
„Maður er búinn að læra inn á
hvernig það má nýta þetta til góðs,
og hvenær maður á að þekkja eigin
mörk. Maður lærir hvernig það má
stýra þessum styrkleikum til að nýt-
ast manni,“ segir Hafdís og bætir við
að þetta sé langtímaverkefni.
„Þetta er langhlaup. Ég á það enn
þá til að brjóta mig niður fyrir að
vera ekki nógu góð í tímastjórnun.“
Flutti úr landi með dags fyrirvara
Hafdís, sem fékk greiningu rétt eftir
tvítugt, er fædd á Ísafirði en fluttist
ung til Reykjavíkur.
„Ég fékk greininguna 21 árs. Fram
að því hafði ég átt erfitt með að festa
hlutina og var svolítið sveimhuga.
Skýrasta dæmið um það er þegar
ég ákvað að f lytja til Noregs með
sólarhrings fyrirvara. Mamma bjó
úti og ég fékk þá hugdettu að það
væri ótrúlega sniðugt að prófa að
búa erlendis. Ég pakkaði í töskur
og flutti degi síðar,“ segir Hafdís og
bætir við að það hafi verið hárrétt
ákvörðun á þeim tímapunkti.
„Ég sé ekki eftir þessari ákvörð-
un. Það er oft sem maður hugsar
til baka: Ég hefði mátt hugsa þetta
betur, en þetta er ekki ein af þeim. “
Hafdís kannast við stefið að
ADHD hafi sett í strik í reikninginn
í skólagöngu.
„Þetta hafði mikil áhrif á skóla-
ferilinn. Það komu tímar sem það
tók á að reyna að halda sér við efnið,
en um leið var maður góður í öðru.
Tungumálakunnátta er eitthvað
sem ég var fljót að tileinka mér, en
hlutir sem kröfðust yfirlegu voru
erfiðari.“
Úr lögfræði á þing
Eftir að hafa fengið greiningu náði
Hafdís betri tökum á skólaferlinum
og var komin með meistaragráðu í
lögfræði nokkrum árum síðar.
„Ég fór strax á lyf sem tók eðli-
lega smá tíma að stilla af og fann
mikinn mun. Ég reyndi að sækja
mér fræðslu samhliða um hvernig
væri hægt að vinna með þetta og ná
betri tökum og náði að samtvinna
þetta,“ segir hún og minnist þess að
í miðju háskólanámi hafi hún hætt á
lyfjum þegar hún var barnshafandi
og ekki misst úr slag.
„Þetta var mikil keyrsla, og til við-
bótar eignaðist ég barn á öðru ári í
laganáminu. Þegar ég lít til baka þá
skil ég ekki hvernig þetta hafðist
allt saman. Þegar ég var ólétt fann
ég að ég þurfti ekki á lyfjunum að
halda því líkaminn var að framleiða
hormónana sem heilann vantaði og
námið gekk betur en nokkru sinni
fyrr. Líkaminn sýndi þar hvers hann
er megnugur.“
Talið berst að starfi Hafdísar.
Þingfundir geta verið tímafrekir en
ADHD
getur verið
styrkleiki
Kristinn Páll
Teitsson
kristinnpall
@frettabladid.is
hún segist vera meðvituð um leiðir
til að takast á við það.
„Það eru alveg enn þá hlutir
þarna, hvatvísi og ég verð utan við
mig. Ég get átt erfitt með að sitja
kyrr á löngum fundum, en maður
lærir um leið inn á það og man að
standa upp og hreyfa sig. Það virkar
betur fyrir mig að einbeita mér
þegar ég er á hreyfingu. Á löngum
fundum á maður það til að fara að
fikta í einhverju,“ segir hún kímin.
„Þegar maður er í vinnu sem
krefst einbeitingar getur heilinn
haft ákveðin takmörk. Það er oft
talað um að taka 50 mínútur af
vinnu og tíu mínútur í hlé. Þá búir
þú til aðstæður þar sem framleiðnin
sé í hámarki.“
Ekki rétt að kalla þetta veikleika
Á ráðstefnunni voru kynntar niður-
stöður þar sem fjallað var um að
ungar stúlkur ættu það til að vera
greindar með kvíða frekar en ADHD.
Strákar væru mun oftar greindir en
hlutfallið ætti að vera jafnt.
„Ég fann alltaf fyrir ákveðnum
frammistöðukvíða. Það er hræðsla
um að missa af einhverju eða
bregðast einhverjum. Í mínu tilfelli
er tímastjórnun afskaplega kvíða-
valdandi, en á sama tíma getur
þetta verið ofurkraftur ef þú nærð
að beisla þetta og nýta í lífinu sem
þinn helsta kost. Þá ertu með eitt-
hvað í höndunum sem getur auðgað
samfélagið. Margir af helstu frum-
kvöðlum heims eru með ADHD.
Það þarf að vera framúrstefnu-
legur í hugsun til að brydda upp á
nýjungum,“ segir Hafdís og heldur
áfram:
„Umræðan í samfélaginu er enn
á þann hátt að fólk vill lítið ræða
þetta og telur að þetta sé jafnvel
veikleiki, sem það er alls ekki. Það
eru fáir einstaklingar jafn útsjónar-
samir og frjóir í hugsun og þeir sem
eru að eiga við þessa áskoranir dag-
lega. Þá þarf að leita annarra leiða til
að láta hlutina ganga upp og skoða
hlutina frá öðru sjónarhorni.
Þess vegna er svo mikilvægt að
horfa ekki á þetta frá neikvæðu
sjónarhorni og taka fordómana úr
þessu. Það er algengt grín að segja:
Ertu með ADHD? Og hlæja. Ég hef
gert þetta sjálf, en það er líka frá-
bært stundum að svara játandi
þegar spurningin kemur.“
Málefni sem stendur nærri
Á ráðstefnunni var talað um dulinn
kostnað þess að það séu fjölmargir
í samfélaginu sem eigi eftir að fá
greiningu. Áætlað var að um 30–60
þúsund einstaklingar séu með
ADHD á Íslandi og að það væri erfitt
að ná að sinna öllum.
Hafdís sem hefur um árabil tekið
þátt í stjórnmálum á ýmsan máta
tók sæti á þingi í fyrsta sinn á síð-
asta ári. Þar hefur hún ákveðinn
grunn í að vinna í tengslum við
málefnið sem hefur aukið vægi
fyrir hana.
„Þetta málefni stendur nálægt
manni. Ég kalla þetta ofurkrafta og
segi að ef þú beinir þessu í rétta átt
og lærir að þekkja inn á þig þá ertu
með eitthvað í höndunum sem eng-
inn getur fest fingur á hvað er hægt
að gera með,“ segir hún og talar um
mikilvægi þess að nálgast málefnið
rétt í tilfellum barna.
„Það er alltaf talað um að mæta
krökkunum okkar þar sem styrk-
leikarnir þeirra og áhugasvið liggur
til að reyna að nýta styrkleika
þeirra til fulls. Það er kostnaður
sem fylgir því, en það mun borga
sig margfalt þegar búið að veita
þeim aðstoð og mynda sterkari ein-
staklinga,“ segir þingkonan, spurð
um aðgerðir stjórnvalda í þessum
málum.
„Bannað að eyðileggja, bók Gunn-
ars Helgasonar sem tekur sögur af
ADHD og setur í barnabók. Hún er
of boðslega mikilvæg fyrir krakka
sem eru að eiga við ADHD til að
geta speglað þessar upplifanir. Það
er mjög mikilvægt fyrir krakkana að
heyra jákvæðar sögur.“ n
Hafdís var í
þriðja sæti á
framboðslista
Framsóknar í
Suðurkjördæmi
og er á sínu
fyrsta kjör-
tímabili sem
þingmaður.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
38 Helgin 5. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ