Fréttablaðið - 05.11.2022, Side 98
Fyrir mér
snýst
myndlistin
dálítið
bara um
það að
hafa augun
opin fyrir
umhverf
inu og
inspírer
andi efni
viði.
Auður Lóa Guðna
dóttir er myndlistar
maður sem leikur sér
á landamærum hins
hlutlæga og huglæga.
tsh@frettabladid.is
Myndlistarmaðurinn Auður Lóa
Guðnadóttir opnar einkasýninguna
Be Mine í gallerí Þulu í dag klukkan
16.00. Sýningin stendur frá 5. til 26.
nóvember.
Auður Lóa Guðnadóttir (f. 1993) er
myndlistarmaður, sem leikur sér á
landamærum hins hlutlæga og hug-
læga, skúlptúrs og teikningar, listar
og veruleika. Hún vinnur markvisst
með hversdagsfyrirbæri, fígúratíft,
og myndmál sem hún sækir í forna
jafnt og nýliðna sögu.
Auður Lóa útskrifaðist af mynd-
listadeild Listaháskóla Íslands 2015.
Síðan þá hefur hún starfað sjálfstætt
og í samstarfi við aðra listamenn, og
tekið þátt í sýningum eins og Leik-
fimi í Safnasafninu, Djúpþrýstingi í
Nýlistasafninu og Allt á sama tíma
í Hafnarborg.
Auður Lóa hlaut hvatningar-
verðlaun Myndlistarráðs 2018 fyrir
sýninguna Díana, að eilífu. Vorið
2021 opnaði hún sína fyrstu stóru
einkasýningu í D-sal Listasafns
Reykjavíkur en hún bar titilinn Já /
Nei og 2022 var einkasýning hennar
í Listasafni Akureyrar opnuð undir
yfirskriftinni Forvera. n
Auður Lóa sýnir í Gallerí Þulu
Auður Lóa útskrifaðist frá Lista
háskóla Íslands 2015 og hefur verið
virk í sýningahaldi undanfarin ár.
MYND/AÐSEND
Guðjón Ketilsson sýnir verk
frá löngum og fjölbreyttum
ferli sínum á yfirlitssýning-
unni Jæja á Kjarvalsstöðum.
Hann segist leita innblásturs
fyrir verk sín í nærumhverfi.
Um þessar mundir stendur yfir yfir-
litssýning á verkum myndlistar-
mannsins Guðjóns Ketilssonar í
Listasafni Reykjavíkur á Kjarvals-
stöðum. Sýningin ber heitið Jæja
og samanstendur af fjölbreyttum
verkum sem spanna rúmlega fjöru-
tíu ára feril Guðjóns.
Guðjón sækir gjarnan innblástur
og efnivið fyrir listaverk úr nærum-
hverfi sínu en hann hefur verið
búsettur í Norðurmýrinni nálægt
Kjarvalsstöðum árum saman.
„Fyrir mér snýst myndlistin dálít-
ið bara um það að hafa augun opin
fyrir umhverfinu og inspírerandi
efniviði. Sem dæmi má nefna að ég
hef notað húsgögn mikið og hluti
sem ég finn bara á götunni sem ein-
hverjar smásögur,“ segir hann.
Tilbúin verkfæri
Skúlptúrar spila stór hlutverk á
sýningunni Jæja en á einum vegg
sýningarsalarins á Kjarvalsstöðum
hangir fjöldi verkfæra sem Guðjón
hefur smíðað eftir sínu nefi.
„Þetta er minn tilbúningur. Ég
gerði mikið af svona litlum skúlp-
túrum einhvern tíma fyrir aldamót.
Ég hef alltaf haft áhuga á byggða-
söfnum, skoðað gömul amboð og
eitthvað svona sem ég hef kannski
ekki hugmynd um hvaðan koma og
get litið á sem óhlutbundna skúlp-
túra,“ segir hann.
Verkfærin hafa ekkert eiginlegt
notagildi en að sögn Guðjóns geta
áhorfendur ákveðið hver fyrir sig
hvaða hlutverki verkfærin gegna.
„Ég fór að gera þessi litlu verk sem
hafa þann blæ yfir sér að vera marg-
nota verkfæri og ýta í raun og veru
undir ímyndunarafl áhorfandans,
þannig að áhorfandinn geti í raun
leyft verkfærinu að kenna sér á sig.“
Jæja áhugavert orð
Í sama rými og verkfærin má sjá
stóra stimpilrúllu sem prentar orðið
Jæja aftur og aftur á sandrönd sem
Guðjón hefur komið fyrir upp við
vegg.
„Maður getur ýmist notað það
í sand eða snjó. Getur gengið með
það ströndina og skilið eftir spurn-
ingarmerki hjá vegfarendum,“ segir
Guðjón.
Stundum er talað um orðið Jæja
sem ákveðinn þjóðarspegil Íslend-
inga, því hægt er að grípa til þess
við nánast öll tækifæri og breyta
merkingu þess eftir því hvenær og
hvernig það er sagt.
„Þetta er áhugavert orð einfald-
lega af því að þú getur sett það í sam-
hengi við hvað sem er í daglegu tali.
Það þýðir í raun og veru allt mögu-
legt og um leið kannski ekki neitt.
Á þann hátt passar það vel sem titill
sýningarinnar,“ segir Guðjón.
Staðgenglar mannslíkamans
Hvernig fer maður að því að velja
verk inn á svo stóra sýningu sem nær
yfir svo breitt tímabil?
„Ég hef nú verið svo heppinn að
vera með mjög góðan sýningar-
stjóra, Markús Þór Andrésson,
og það er mjög gott að fá annað
sjónarhorn á verkin og ferilinn, af
því þetta er langur ferill, rúmlega
fjörutíu ár, og ég hefði alveg getað
fyllt báða salina hérna og meira til.
En það þarf að velja og það er bara
verkefni að stilla upp sýningunni
þannig að verkin vinni vel saman.“
Einn þráður sem gengur í gegnum
sýninguna er mannslíkaminn og
framlenging hans í gegnum fatnað
og verkfæri. Þar má til dæmis sjá
hárnákvæmar teikningar Guðjóns
af líkamspörtum og skúlptúra af
fatnaði og skóm.
„Mannslíkaminn er nálægur en
ekki til staðar. Þetta eru í raun og
veru allt staðgenglar fyrir manns-
Hefur augun
opin fyrir
umhverfinu
Guðjón Ketils
son segir sýn
inguna veita sér
annað sjónar
horn á verkin
og ferilinn og
kveðst hæglega
hafa getað fyllt
báða salina á
Kjarvalsstöðum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Á sýningunni Jæja má meðal annars sjá ýmis tilbúin verkfæri sem Guðjón
segir hafa ekkert eiginlegt notagildi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Þorvaldur S.
Helgason
tsh
@frettabladid.is
líkamann. Við vorum að tala um
verkfærin og verkfæri eru náttúrlega
bara framlenging af líkamanum.
Klæðin koma aftur og aftur við sögu
og það er nú eitt af því sem er svo-
lítið skemmtilegt þegar maður setur
upp sýningu með gömlum verkum
og nýjum að maður sér að sömu
itemin koma upp aftur og aftur.“
Trúarlegar tilvísanir
Þrátt fyrir að f lest viðfangsefnin í
verkum Guðjóns séu veraldleg má
finna trúarlegar vísanir í verkum
hans, til dæmis skúlptúra sem eru
byggðir á klæðaburði Maríu meyjar
og Jesú Krists.
„Ég lít á þetta sem hluta af mynd-
listarsögunni og listasögunni. Ég er
ekki þar með að afneita því að þetta
eru vísanir í trúarleg verk, þetta eru
brot úr frægum trúarlegum mál-
verkum. Hér til dæmis er æviskeið
Maríu guðsmóður úr ýmsum mál-
verkum, barokk og endurreisnar-
tímans. Maríumyndir eru jú eitt
algengasta viðfangsefni listasög-
unnar,“ segir Guðjón.
Sýningin Jæja er hluti af sýninga-
röð Listasafns Reykjavíkur á Kjar-
valsstöðum, þar sem farið er yfir
feril lykilpersóna í íslensku listalífi.
Spurður um hvernig tilfinningin
sé að sjá verk sín í þessu samhengi
segir Guðjón það fyrst og fremst
vera skemmtilegt.
„Frá því þetta byrjaði sem hug-
mynd fyrir um það bil ári síðan, þá
er þetta búið að vera mjög skemmti-
legt ferli. Mig langar bara að hrósa
Listasafni Reykjavíkur fyrir fag-
mannlega og f lotta vinnu,“ segir
hann. n
100% náttúruleg
hvannarrót
60 HYLKI FÆÐUBÓTAREFNI
hvannarrót
Leyndarmál
hvannarrótar
Loft í maga?
Glímir þú við
meltingartruflanir?
Næturbrölt
Eru tíð þvaglát
að trufla þig?
Fæst í næsta apóteki, heilsuvöru-
verslun, Hagkaupum og Nettó.
52 Menning 5. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 5. nóvember 2022 LAUGARDAGUR