Fréttablaðið - 05.11.2022, Side 102

Fréttablaðið - 05.11.2022, Side 102
Bæjarlind 4 / Sími: 510 7900 / www.fastlind.is FRUMSÝNING Laugardaginn 5. nóvember kl. 13 - 16 ALLAR UPPLÝSINGAR VEITA NÝTT! NÝ STIGAHÚS Á SKRÁ 201 KÓPAVOGUR SILFURSMÁRI 4 - 6 Hrafn Löggiltur fasteignasali 845 9888 hrafn@fastlind.is Lára Löggiltur fasteignasali 899 3355 lara@fastlind.is Erla Löggiltur fasteignasali 692 0149 erla@fastlind.is Diðrik Löggiltur fasteignasali 647 8052 diddi@fastlind.is Kristján Löggiltur fasteignasali 696 1122 kristjan@fastlind.is Fullbúnar íbúðir með parketi Innbyggður ísskápur og uppþvottavél Vandaðar innréttingar frá AXIS Gólfhiti á baðherbergjum Lokuð bílageymsla Margar íbúðir með gestasalernum Nokkrar íbúðir með svalalokun Hleðslustöðvar á völdum útistæðum lóðar Úrval íbúða á 6 - 7 hæð með þaksvölum Verð frá 51,9m 864 Lag Elísabetar Ormslev, Heart Beats, heyrist í nýjustu seríunni af Love is Blind sem sýnd er á Netflix. Hún segist í skýjunum og að um stórt tækifæri sé að ræða. Elísabet stefnir á að gefa út nýja plötu á næsta ári. birnadrofn@frettabladid.is „Þetta er ótrúlega mikil hvatning og ég er í skýjunum með þetta,“ segir Elísabet Ormslev tónlistarkona, en lag hennar Heart Beats heyrist í nýjustu þáttaröðinni af Love is Blind sem sýnd er á Netflix. „Þetta lag fékk ekkert neinn sturl- aðan meðbyr þegar það kom út, var ekki á neinum vinsældalistum eða neitt en allt í einu kom þessi beiðni að utan og það er bara geggjað,“ segir Elísabet. Love is Blind er raunveruleika- stefnumótaþáttur þar sem fimm- tán konur og fimmtán karlar fara á blind stefnumót í tíu daga. Þau tala saman en sjá ekki hvert annað. Markmiðið með stefnumótunum er að þátttakendur verði ástfangnir og giftist. Ef borið er upp bónorð þá fá þau að hittast. Þættirnir hafa notið mikilla vin- sælda víðs vegar um heim og eru meðal vinsælustu þátta Netf lix. Ein og hálf milljón manna horfði á fyrstu fimm þætti fyrstu seríu í vikunni sem hún kom út og 1,3 milljónir horfðu á næstu fjóra þætti. Í gær hafði verið horft 1,9 millj- ón sinnum á þátt um endurfundi keppenda í fyrstu seríu á YouTube og í apríl 2020 greindi Netflix frá Hjartsláttur Elísabetar í Love is Blind Elísabet vinnur nú að nýrri plötu sem stefnt er á að komi út á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI því að horft hefði verið á þættina á 30 milljónum heimila. Ljóst er því að fjöldi fólks mun heyra lag Elísabetar í Love is Blind. Hún segir að um stórt og mikið tækifæri sé að ræða. „Maður veit auðvitað ekkert hvað gerist en þetta opnar kannski á þann möguleika að koma tónlistinni í frekara sjón- varpsefni,“ segir hún. „Í þessum þáttum og öðrum svipuðum þáttum er svo mikið af tónlist, það er alltaf eitthvert lag að rúlla og þetta er stærsti þátturinn á Netflix svo þetta er bara frábært,“ bætir hún við. Spurð að því hvað sé fram undan segist Elísabet vera að vinna að nýrri plötu. „Þetta er efni sem ég er að semja sjálf og allt er á íslensku,“ segir hún. „Ég er búin að semja fullt og er að taka upp, stefni á að gefa út plötu á næsta ári.“ n ninarichter@frettabladid.is Jana Maren Óskarsdóttir er annar eigandi verslunarinnar Hringekj- unnar, þar sem viðskiptavinir geta selt notuð föt í fallegu umhverfi. Auk þess að bjóða upp á sölubása fyrir viðskiptavini er Hringekjan einnig með verkefnið Hring eftir hring, þar sem listafólk glæðir eldri föt nýju lífi. „Í gær settum við í loftið verk- efni með Jóni Sæmundi,“ segir Jana Maren. Hún segir að textíll- inn sem notaður er í verkefnið sé það sem til fellur afgangs. „Það eru ósóttar vörur og alls konar, sem við erum að reyna að nýta eins og við getum, áður en við förum með það í hjálparstarf. Seinasta árið erum við búin að safna níu jökkum og Jón Sæmundur hefur tekið þá að sér og málað myndir aftan á jakkana.“ Í gær fóru fyrstu jakkarnir frá Jóni Sæmundi í sölu. „Á næstu dögum og vikum detta inn fleiri jakkar,“ segir Jana. Hugmyndin kom til er Jana var stödd á sýningu hjá Jóni Sæmundi og sá jakka, og spurði hann í fram- haldinu út í mögulegt samstarf. „Við sjáum fyrir okkur mis- munandi samstarf með listafólki þar sem hver og einn nýtir textíl sem til fellur hvert sinn. Líka til að búa til „wearable art“, sem er ein- stakur hlutur og list og gefur f lík- inni nýjan tilgang,“ segir Jana. „Í framhaldi af þessu höfum við verið með aðra listamenn á undan og svo ætlum við að halda þessu áfram.“ Jana kveðst hafa unnið við sölu á notuðum fatnaði meira og minna síðan hún var sextán ára gömul. „Ég hef alltaf verið hrifin af gömlu. Mín búslóð er rosamikið svona gamalt og endurnýtt dót og ég hef alltaf verið þeim megin í lífinu. Hringekju-verkefnið kom þann- ig til að við sem misstum vinnuna í Covid vildum búa eitthvað til, úr einhverju sem maður kann úr ein- hverju sem var til í landinu,“ segir hún. „Svo þekktum við mikið af lista- fólki og tónlistarfólki sem við vild- um draga inn í þetta samfélag sem við vorum búin að búa okkur til.“ Hringekjan stendur fyrir reglu- legum viðburðum og fær reglulega til sín plötusnúða. Hægt er að fylgj- ast með á vefsíðu Hringekjunnar, á hringekjan.is. n Jakkar hring eftir hring Jana Maren Óskarsdóttir Verkefninu Hring eftir Hring verður haldið áfram. MYND/AÐSEND 56 Lífið 5. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 5. nóvember 2022 LAUGARDAGUR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.