Fréttablaðið - 05.11.2022, Side 104
Ég vona að það verði
met í umsókn fatlaðra
sem sækja um í Lista-
háskólann á næsta ári.
Þórir Gunnarsson gengur
undir listamannsnafninu
Listapúkinn. Hann er einn
tólf listamanna sem eiga
verk í nýju almanaki Þroska-
hjálpar. Hann segir það skipta
sig miklu máli og vonar að
fatlað fólk fái fleiri tækifæri til
listsköpunar.
lovisaa@frettabladid.is
Í vikunni kom út nýtt almanak
Þroskahjálpar fyrir árið 2023.
Tólf fatlaðir listamenn eiga verk á
almanakinu og í tilkynningu frá
Þroskahjálp um verkefnið segir
að fatlaðir listamenn hafi skapað
kraftmikla og fjölbreytta list, en
sýnileiki listar þeirra sé í takti
við fábreytt tækifæri til þátttöku
og listmenntunar. Það skipti því
miklu máli að verk þeirra séu í
almanakinu.
Einn listamannanna er Þórir
Gunnarsson sem skapar list undir
nafninu Listapúkinn. Verk hans eru
innblásin af hversdagsleikanum, en
Þórir er mikill baráttumaður fyrir
réttindum fatlaðs fólks og hefur
talað opinberlega fyrir því að fatlað
fólk geti sótt nám í Listaháskóla
Íslands.
Þórir var bæjarlistamaður Mos-
fellsbæjar árið 2021 og hélt á meðan
á því stóð listsýningu, auk þess að
taka þátt í herferð Þroskahjálpar
og vekja athygli á málefnum fatlaðs
fólks í Listaháskólanum.
„Verkin mín eru alls konar. Ég geri
fólk, ég geri dýr, ég geri manneskjur
og mæður að gefa brjóst,“ segir Þórir
um verk sín, en á myndinni í alman-
akinu eru þrír hestar. Mynd hans
er í marsmánuði en hann á sjálfur
afmæli í apríl.
Þórir segir að það sé mikilvægt
að fá svona tækifæri og það skipti
hann miklu máli. Þórir tók í sumar
þátt í herferð Þroskahjálpar „Hvað
er planið?“ þar sem varpað var
sérstöku ljósi á stöðu fatlaðra ung-
menna þegar kemur að tækifærum
til náms.
„Ég hef séð miklar breytingar
eftir þetta átak. Að fatlað fólk sé að
fá fleiri tækifæri. Ég er þá að tala um
2023 og að það verði breytingar þá,
eftir þetta átak.“
Heldurðu að það verði öðruvísi
fyrir fatlað fólk á næsta ári?
„Já, ég held það og ég vona það svo
innilega sjálfur. Ég vona að það verði
met í umsókn fatlaðra sem sækja
um í Listaháskólann á næsta ári,
sama hvort það er í tónlist, leiklist
eða myndlist,“ segir Þórir.
Hægt er að skoða verk Þóris og
kaupa þau á bæði Facebook-síðu
hans og Instagram undir nafninu
Listapúkinn.
Spurður um listamannsnafnið
segir Þórir að hann hafi bara fundið
upp á því.
Það er einhver smá stríðni í því?
„Já, það er smá púki í mér, eins
og þeir segja. Það kemur listapúki
í mig.“
Hægt er að kaupa almanakið á
heimasíðu Þroskahjálpar, throska-
hjalp.is. n
Skiptir fatlað fólk miklu máli að vera með
Þórir Gunnars-
son myndlista-
maður vonar
innilega að
fatlað fólk fái
fleiri tækifæri á
næsta ári.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
birnadrofn@frettabladid.is
Barnastund Sinfóníuhljómsveitar
Íslands verður haldin klukkan hálf
tólf í Hörpu í dag. Hún er sérstök að
því leyti að um er að ræða íslensk-
pólska barnastund.
Leikin verða pólsk og íslensk
barnalög og aðrar klassískar perlur,
fyrir yngstu aðdáendur sinfóníunn-
ar. Maxímús Músíkús kemur við og
heilsar upp á börnin. Barnastundin
verður kynnt bæði á íslensku og
pólsku af trúðunum Aðalheiði og
Chichotek, en stundin er haldin í
samstarfi við pólska sendiráðið á
Íslandi.
Bar nast u ndir Sinfóníu nnar
hafa notið mikilla vinsælda og er
aðgangur ókeypis. Áhorfendum er
bent á að taka með sér púða til að
sitja á. n
Pólsk-íslensk
barnastund
birnadrofn@frettabladid.is
Bók Auðar Övu Ólafsdóttur, Ungfrú
Ísland, hlaut spænsku bókmennta-
verðlaunin San Clemente Rosalía á
fimmtudaginn.
Verðlaunin eru veitt af ungu fólki
í framhaldsskólum á Spáni, í sam-
vinnu við stofnunina Rosalía de
Castro í Santiago de Compostela,
sem kennd er við samnefnt skáld. Þá
taka nemendur í framhaldsskólum
á Englandi, í Frakklandi og Þýska-
landi einnig þátt í vali á verðlauna-
hafa.
Meðal erlendra rithöfunda sem
hlotið hafa verðlaunin eru Julian
Barnes, Murakami, Kundera og Paul
Auster. Allar skáldsögur Auðar Övu
hafa verið þýddar á erlend tungu-
mál og hafa sex þeirra hlotið til-
nefningar til virtra erlendra verð-
launa. n
Auður Ava
hlýtur verðlaun
Auður Ava rithöfundur.
58 Lífið 5. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ