Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Blaðsíða 58
stefnan SSV. Stefnu þessari er haldið þar til að tré, 6 m. hátt, er stendur uppi í tún-
inu, ber reykháfinn á vestri íbúðarhúsinu í Akurhúsum, er þá breytt um stefnu, og
haldiS SV og inn í vör.
c. KRÓKSÓS
Króksós er mitt á milli Útskála og Gerða. í ósnum er sandur og möl. Ósinn er
mjór, og verður að fara hárrétt; að norðanverðu við hann er rif, en að sunnanverðu
er flúð, og er betra, þegar farið er inn ósinn i norðanstormi og kviku, að fara sem
næst rifstanganum, því straumur og kvika vilja kasta skipinu suður á flúðina. I.eiðar-
merki eru tvö tré, er eiga að hera saman, þegar farið er inn ósinn, neðra tréð er 4 m.
á hæð, og stendur 10 m. frá sjó, efra tréð er 10 m., og millibil 275 m. Stefna er VSV.
Króksós er talin allgóð lending, en fyrir ókunnuga er hann varhugaverður i slæmu
veðri.
d. GERÐAR
Vörin er fyrir neðan Gerðal>ori>ið. í vörinni er möl, grjót og klappir. Á leiðinni
eru engin sker né grynningar, bezt að lenda með hálfföllnum sjó. Gerðavör er talin
í meðallagi góð. Leiðarmerki eru 2 tré sem eiga að bera saman, neðra tréð er 8 m. á
hæð, og fellur sjór í kringum það um stórstraumsflóð. Efri tréð stendur á húsi fyrir
ofan vörina, og er 4 m. á liæð. Millibil milli merkja er 50 m. Stefna er V.
e. VARAÓS
Varaós er mitt á milli jarðanna Vara og Kothúsa. í vörinni er möl og grjót. Leið-
armerki eru 2 tré með ljósum (viti nr. 7), trén eru 4 m. á hæð. Neðra tréð er með
rauðu Ijósi, og stendúr niður við sjó fast við stórstraums flæðarmál, efra tréð er með
grænu Ijósi, milli er 21 m., stefnan er V. Þegar komið er inn í ósinn, er um tvær lend-
ingar að ræða. Til vinstri er Kothúsavör, en Varavör verður h. u. b. stafnfram. Á
milli varanna er kambur, og verður að gæta að því með háum sjó, að halda í miðja
opna vör. Varaós er talinn aðalþrautalending i Garði.
f. MEIÐASTAÐIR
Vörin er fyrir neðan Meiðastaði. I vörinni er sandur og möl; hindranir eru engar
á leiðinni. Leiðarmerki eru þessi: Eystri gaflinn á fiskhúsinu, sem stendur niður við
sjó, á að bera um eystri kvistgluggan á íbúðarhúsinu. Fiskhúsið er 10 m. frá sjó, og
175 m. á milli húsanna. Stefna er V.
g. GUFUSKÁLAR
Lendingin er fyrir neðan bæinn Gufuskálar, sem er h. u. b. mitt á milli Garðs og
Leiru. Leiðarmerki eru engin. Stefna leiðarinnar er V., en inn í vörina NV. í lending-
unni er möl og klappir. Á leiðinni eru engir boðar né blindsker. Lending þessi er
talin ágæt, en bezt með hálfföllnum sjó.
h. BAKKAKOT
Vörin er mitt á milli Bakkakots og Litlahólms. í vörinni er möl og sandur, engir
boðar né sker á leiðinni. Leiðarmerki eru engin uppistandandi. Gæti verið þrauta-
lending í austanátt og landnyrðingi.
i. HRÚÐURNES
Vörin (Hólmasund) er skammt fyrir norðan bæinn Hrúðuriies. í vörinni er inöl
og klappir. Hindranir eru engar á leiðinni. Lendingin er í meðallagi góð, bezt um
flóð. Leiðarmerki eru tvö. tré, sem eiga að bera saman. Neðra tréð stendur 5 m. frá
sjó og er 0 m. á hæð, en efra tréð 8 m. Millibil er 400 m. Stefnan er SV.