Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Blaðsíða 69
29. Saurbæjarhreppur.
30. Geiradalshreppur.
31. Reykhólahreppur.
32. Gufudalshreppur.
33. Múlahreppur.
34. Flateyjarhreppur.
35. Barðastrandarhreppur.
36. RAUÐASANDSHREPPUR
a. KEFLAVÍK
Lendingin Stöð er niður undan bænum Keflavik í stefnu N. Leiðarmerki eru
engin. í lendingunni eru klappir og sandur; hún er slæm í allri hafátt, en góð í
norðan- og austanátt. Þetta er eina lendingin í Rauðasandshreppi fyrir sunnan
Látrabjarg, sem lending getur heitið.
b. HVALLÁTRAR
Um lendinguna s.já sjómerki nr. 40, Látravík.
c. BREIÐAVÍK
Lendingin er vestur og niður undan bænum, stefna hennar er SSV. Leiðar-
merkin standa á hvítum sandi, dökkmáluð, og sjást vel; þau eru tæpir 2 m. á hæð
(steypt). Um stórstraumsflóð fellur sjór upp að neðra merkinu, en hitt er 80 m.
ofar. — Þegar haldið er upp í lendinguna, er boði á bakborða 250 m.-frá landi,
um smástraumsfjöru sést á hann, en að vestanverðu eru flúðir. Lendingin er talin
góð í altri vestan- og suðvestanátt, en betri um flóð, ]jví þá er farið vesturmeð, fyrir
innan skerin, þar er smásævi þó brjóti á skerjum.
Norðan til í fíreiöuvík er lendingin Fjaröarhorn, stefna SA. Lendingin er talin
ágæt í austan og norðan átt, eða þegar sjór er af norðri. Tnnsiglingarmiðið: stór,
hlaðin varða i steypt dökklitað merki á kletti í fjörunni.
d. KOLLSVÍK
Lendingin er norðaustantil í vikinni, hún er alveg ónothæf nema fyrir vel
kunnuga. Leiðin er i einlægum krókum á milli skerja og boða.
e. SELLÁTRANES
Lendingin er spölkorn niður frá bænum, stefna hennar er SV. Leiðarinerkin
eru 2 hvítmáluð viðarmerki, sem sjást af stórskipaleið þegar farið er um fjörðinn.
Neðra merkið er 20 m. fyrir ofan flæðarmál, hitt er 10 m. ofar. í lendingunni er
sandur, hún er bezt með hálfföllnum sjó, er talin góð lending i altri sunnan- og
vestanátt.
f. TUNGA
Lendingin í Tiingu er í Gjögrabót í Örlggshöfn. Leiðarmerki eru engin, en
lent er við sandinn þar sem grjóturðin endar.
37. Patreksfjarðarhreppur.