Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Blaðsíða 76
landi. Báðar þessar leiðir eru norðan frá. Þriðja leiðin er að innan og austanfrá.
Leiðarmerkin á henni eru: Tanginn norðan við lendinguna, á að bera í Fíiluvíkiir-
bakka, eða sem næst NV, þar til Hólminn ber í miðjan Þórðarhöfða, en gæta skal að
því, að fara þarf ca. 300 m. frá Hólmannm að innan, er þá beygt í NV, og siðan upp
í lendingu. í lendingunni er sandur, og er betra að lenda um fjöru; hún er talin vel
nothæf.
c. HÓLAIÍOT
Leiðarmerki eru engin, en stefna i lendinguna er VaN. Boði er ca. 100 m. fyrir
norðan sund. Hér um bil 25 m. fyrir norðan lendinguna rennur á. Varast þarf þrjá
steina, sem eru að norðanverðu við lendinguna; hún er talin miður góð, bezt með
hálfföllnum sjó.
d. FAGRANES
Stefna lendingarinnar er VSV. Bezt að stefna sunnantil á sjóbúðina og lenda að
sunnanverðu við stóran stein. í lendingunni er stórgrýti, hún er bezt nni flóð, en er
talin slæm lending.
e. SKARÐSKRÓKUR
Stefna upp i lendinguna er SV. Beint á svonefnt Bátagil. Leiðarmerki eru eng-
in; lendingin er talin miður góð.
f. INNSTALAND
Stefnan imi í lendinguna er vestur, þar til komið er fyrir grunnflös þá, sem er
að sunnanverðu, er þá beygt til SV á land. Þar sem lent er, er sandur og möl.
68. Sauðárkrókshreppur.
69. Viðvíkurhreppur.
70. Hofshreppur.
71. FELLSHREPPUR
a. LÓNSKOTSMÖL
Stefna lendingarinnar er SA til S. Engin leiðarmerki. í lendingunni er möl og
stórgrýti.
b. ÁRÓSAMÖL
Stefna leiðarinnar er suður. Leiðarmerki eru engin. í lendingunni er möl og
stórgrýti.
c. MÝRNAVÍK
Stefna lendingarinnar er suður. Engin leiðarmerki. f lendingunni er stórgerð
möl. Á leiðinni eru boðar til beggja handa. Bezt að lenda með hálfföllnum sjó. Lend-
ingin er talin miður góð.
72. HAGANESHREPPUR
a. MÓSVÍK
Að vestanverðu við Mósvík nyrzt er svokallað Músanes, en að sunnanverðu ,
Móskógarklauf, en að vestan er Haganesvík. I lendingunni er möl, en báðum megin
eru sléttar klappir. Stór steinn er í lendingunni, sem varast þarf, sérstaklega þegar
vont er, en þá er ráðlegast að leita til Haganesvilmr.