Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Side 67

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Side 67
c. HELLNAR Lendingin er inn meS sléttum klöppum, sem eru að vestanverðu, og þar lent í sandi. Lendingin snýr til suðurs og er góS meS hálfföllnum sjó. LeiSarmerki eru engin. d. MALARRIF Lendingin liggur suSur frá landi. Leiðarmerki eru: Stór hella, sem stendur uppi á malarkambi, og á hún að bera um hjalltóft, sem er 10 m. ofar; eftir þessum merkj- um er haldið, þar til tóftin hverfur inn undir kambinn, þá er lieygt lil vinstri og lent við sléttan malarkamb. Lending þessi er talin slæm, skárst þegar lásjávað er. e. DRITVÍK Stefna lendingarinnar er suðvestur frá landi. Leiðarmerki eru: Leiðarhóll um Dritvíkurklett. Merkin eru óglögg. Leiðarhóll er skammt fyrir ofan víkina, en Drit- vikurklettur er fyrir framan Dritvíkurpall. Eftir þessum merkjum er hahlið, þar til beygt er inn á víkina. Leiðin er hrein, lendingin er ágæt, nema um stórstraumsfjöru. f. BERUVÍK Stefna lendingarinnar er í vestur frá landi. Leiðarmerkin eru: Svonefndur Skriðuhnúkiir, sem er uppi i fjalli, og á hann að hera í vörðu, sem stendur á sjávar- kambi. Frá vörðunni upp að hnúknum eru 3 km. Leiðin er skerjótt og lendingin er talin slæm, bezt með hálfföllnum sjó. g. ÖNDVERDARNES Stefna lendingarinnar er i suðvéstur. Leiðarmerki eru engin. í lendingunni er grjót og klappir. Grynningar eru utantil þegar lágsjáað er, bezt að lenda með hálf- föllnum sjó. 21. NESHREPPUR UTAN ENNIS a. KROSSAVÍK Stefna lendingarinnar er í vestur. Lendingin er um 750 m. i vestur frá Sandi. Leiðarmerkin eru 2 Ijós, grænt og hvitt. Græna ljósiS er á staur upp undan miðri lendingunni, hvíta ljósið á járnstöng á suðurenda norðurhafnargarðsins. Þeim skal halda saman þar til komið er í hafnarmynniS, en á þessari leið er Miðvíkurboði, sem getur verið hættulegur og leiðin því vandfarin ókunnugum. í lendingunni er sandur, og er hún talin góð um hálffallinn sjó og ágæt um flóð. Fyrir framan lend- inguna er sandrif, lítt fært um stórstraumsfjöru þegar vont er i sjó. b. SANDUR Lendingin er undir háum bökkum við þorpið og stefnir í S. Miðið er austur- endi Búrfells (Matarfells) i Bakkabæ, sem stendur um 15 m. frá bakkabrún. í lend- ingunni er sandur. Gerðaboði er vinstra megin, en Miðvíknrboði hægra megin, þegar farið er upp í leguna. Þegar lent er, eru Úrar vinstra megin, en höfði hægra megin. Lendingin er oftast talín góð, nema um stórstraumsflæði. c. KEFLAVÍK Stefna lendingarinnar er í suður, grjótlending, lítið notuð. Leiðarmerki eru engin. d. RIF Lendingin er um 50 m. í SA frá Rifsbænum og stefnir i suður. Lendingarmerkin eru hesthús norðarlega á Rifstúninu i hjall við lendinguna (merkin óglögg). Oft not- uð sem neyðarlending. Lendingin er góð, sérstaklega um flóð, en vandratað fyrir ókunnuga. Blindsker á hægri hönd, þegar fariS er inn, og eyrar á vinstri. 22. Ólafsvíkurhreppur. 9

x

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi
https://timarit.is/publication/1730

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.