Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Page 67
c. HELLNAR
Lendingin er inn meS sléttum klöppum, sem eru að vestanverðu, og þar lent í
sandi. Lendingin snýr til suðurs og er góS meS hálfföllnum sjó. LeiSarmerki eru
engin.
d. MALARRIF
Lendingin liggur suSur frá landi. Leiðarmerki eru: Stór hella, sem stendur uppi
á malarkambi, og á hún að bera um hjalltóft, sem er 10 m. ofar; eftir þessum merkj-
um er haldið, þar til tóftin hverfur inn undir kambinn, þá er lieygt lil vinstri og
lent við sléttan malarkamb. Lending þessi er talin slæm, skárst þegar lásjávað er.
e. DRITVÍK
Stefna lendingarinnar er suðvestur frá landi. Leiðarmerki eru: Leiðarhóll um
Dritvíkurklett. Merkin eru óglögg. Leiðarhóll er skammt fyrir ofan víkina, en Drit-
vikurklettur er fyrir framan Dritvíkurpall. Eftir þessum merkjum er hahlið, þar til
beygt er inn á víkina. Leiðin er hrein, lendingin er ágæt, nema um stórstraumsfjöru.
f. BERUVÍK
Stefna lendingarinnar er í vestur frá landi. Leiðarmerkin eru: Svonefndur
Skriðuhnúkiir, sem er uppi i fjalli, og á hann að hera í vörðu, sem stendur á sjávar-
kambi. Frá vörðunni upp að hnúknum eru 3 km. Leiðin er skerjótt og lendingin er
talin slæm, bezt með hálfföllnum sjó.
g. ÖNDVERDARNES
Stefna lendingarinnar er i suðvéstur. Leiðarmerki eru engin. í lendingunni er
grjót og klappir. Grynningar eru utantil þegar lágsjáað er, bezt að lenda með hálf-
föllnum sjó.
21. NESHREPPUR UTAN ENNIS
a. KROSSAVÍK
Stefna lendingarinnar er í vestur. Lendingin er um 750 m. i vestur frá Sandi.
Leiðarmerkin eru 2 Ijós, grænt og hvitt. Græna ljósiS er á staur upp undan miðri
lendingunni, hvíta ljósið á járnstöng á suðurenda norðurhafnargarðsins. Þeim skal
halda saman þar til komið er í hafnarmynniS, en á þessari leið er Miðvíkurboði,
sem getur verið hættulegur og leiðin því vandfarin ókunnugum. í lendingunni er
sandur, og er hún talin góð um hálffallinn sjó og ágæt um flóð. Fyrir framan lend-
inguna er sandrif, lítt fært um stórstraumsfjöru þegar vont er i sjó.
b. SANDUR
Lendingin er undir háum bökkum við þorpið og stefnir í S. Miðið er austur-
endi Búrfells (Matarfells) i Bakkabæ, sem stendur um 15 m. frá bakkabrún. í lend-
ingunni er sandur. Gerðaboði er vinstra megin, en Miðvíknrboði hægra megin, þegar
farið er upp í leguna. Þegar lent er, eru Úrar vinstra megin, en höfði hægra megin.
Lendingin er oftast talín góð, nema um stórstraumsflæði.
c. KEFLAVÍK
Stefna lendingarinnar er í suður, grjótlending, lítið notuð. Leiðarmerki eru
engin.
d. RIF
Lendingin er um 50 m. í SA frá Rifsbænum og stefnir i suður. Lendingarmerkin
eru hesthús norðarlega á Rifstúninu i hjall við lendinguna (merkin óglögg). Oft not-
uð sem neyðarlending. Lendingin er góð, sérstaklega um flóð, en vandratað fyrir
ókunnuga. Blindsker á hægri hönd, þegar fariS er inn, og eyrar á vinstri.
22. Ólafsvíkurhreppur.
9