Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Blaðsíða 77
73, HOLTSHREPPUR
a. HRAUNAKRÓKUR
Hraunakrókur er lítii vík fyrir opnu hafi, í Hraunslandi, í norðaustur frá Haga-
nesvík. Leiðarmerki eru engin, en að norðanverðu gengur fram lítili tangi, og innan
við hann er lendingin. í lendingunni er möl og grjót, þar er talsvert útgrynni, sér-
staklega um fjöru, og brimasamt í allri hafátt.
74. SIGLUFJARÐARUMDÆMI
a. VÍKURLENDING
Lendingin er sunnan og niður undan bænum Vik í Iléðinsfirði. Leiðarmerki
eru engin. Þar eru engir hoðar né grynningar, en í lendingunni er stórgrýti.
75. Grímseyjarhreppur.
76. Ólafsfjarðarhreppur.
77. SVARFAÐARDALSHREPPUR
a. DALVÍK (Upsamöl)
Upsamöl er frá Hólstöng að Brimnesá. í lendingunni er möl, engin sker eða
grynningar. Lendingin er slæm i brimi.
b. DALVÍK (Lágin)
Lendingin er Lágin suður og niður frá Brimnesi. í lendingunni er möl á 50
m. svæði, en báðum megin er stórgrýti. Lendingin er slæm í brimi.
c. DALVÍK (Böggvistaðasandur)
Böggvisstaðasandur hefst 100 m. innan við Lágina, og liggur i boga fyrir Víkur-
botninn á ca. 300 m. svæði. í lendingunni er sandur, engin sker eða grynningar,
slæin í brimi.
78. Árskógshreppur.
79. Arnarneshreppur.
80. GLÆSIBÆJARHREPPUR
a. SANDGERDISBÓT
Lendingin liggur i sveig skammt frá bænum Sandgerðisbót, þar er lent við klöpp
fyrir utan svonefnd Höepfnershús. Leiðarmerki eru engin. í lendingunni er sandur.
Á leiðinni eru boðar og blindsker. Lendingin er bezt um flóð, þvi með lágum sjó er
útgrunnt, vegna þess að (ilerá ber fram sand og aur. Frá Sandgerðisbót ganga nokkr-
ir smábátar til fiskróðra haust og vor. Lendingin er ekki nothæf sem neyðarlending.
81. Svalbarðsstrandarhreppur.
82. GRÝTUBAKKAHREPPUR
a. NOLLARVÍK
Víkin liggur til auslurs, innan við Laufásgrunn. Vikin er heldur grunn, en þar
er allgott lagi og ágæt lending.