Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Page 77

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Page 77
73, HOLTSHREPPUR a. HRAUNAKRÓKUR Hraunakrókur er lítii vík fyrir opnu hafi, í Hraunslandi, í norðaustur frá Haga- nesvík. Leiðarmerki eru engin, en að norðanverðu gengur fram lítili tangi, og innan við hann er lendingin. í lendingunni er möl og grjót, þar er talsvert útgrynni, sér- staklega um fjöru, og brimasamt í allri hafátt. 74. SIGLUFJARÐARUMDÆMI a. VÍKURLENDING Lendingin er sunnan og niður undan bænum Vik í Iléðinsfirði. Leiðarmerki eru engin. Þar eru engir hoðar né grynningar, en í lendingunni er stórgrýti. 75. Grímseyjarhreppur. 76. Ólafsfjarðarhreppur. 77. SVARFAÐARDALSHREPPUR a. DALVÍK (Upsamöl) Upsamöl er frá Hólstöng að Brimnesá. í lendingunni er möl, engin sker eða grynningar. Lendingin er slæm i brimi. b. DALVÍK (Lágin) Lendingin er Lágin suður og niður frá Brimnesi. í lendingunni er möl á 50 m. svæði, en báðum megin er stórgrýti. Lendingin er slæm í brimi. c. DALVÍK (Böggvistaðasandur) Böggvisstaðasandur hefst 100 m. innan við Lágina, og liggur i boga fyrir Víkur- botninn á ca. 300 m. svæði. í lendingunni er sandur, engin sker eða grynningar, slæin í brimi. 78. Árskógshreppur. 79. Arnarneshreppur. 80. GLÆSIBÆJARHREPPUR a. SANDGERDISBÓT Lendingin liggur i sveig skammt frá bænum Sandgerðisbót, þar er lent við klöpp fyrir utan svonefnd Höepfnershús. Leiðarmerki eru engin. í lendingunni er sandur. Á leiðinni eru boðar og blindsker. Lendingin er bezt um flóð, þvi með lágum sjó er útgrunnt, vegna þess að (ilerá ber fram sand og aur. Frá Sandgerðisbót ganga nokkr- ir smábátar til fiskróðra haust og vor. Lendingin er ekki nothæf sem neyðarlending. 81. Svalbarðsstrandarhreppur. 82. GRÝTUBAKKAHREPPUR a. NOLLARVÍK Víkin liggur til auslurs, innan við Laufásgrunn. Vikin er heldur grunn, en þar er allgott lagi og ágæt lending.

x

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi
https://timarit.is/publication/1730

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.