Fréttablaðið - 22.11.2022, Page 1
2 5 5 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s Þ R I Ð J U D A G U R 2 2 . N Ó V E M B E R 2 0 2 2
Villi sigrast
á ofnæminu
Ekki besta
bók Arnaldar
Lífið ➤ 18Menning ➤ 15
Samkvæmt nýrri könnun
telja nú fleiri að Ísland veiti of
mörgum flóttamönnum hæli
en of fáum. Afstaða kvenna
og landsbyggðarfólks hefur
harðnað meira en karla og
höfuðborgarbúa.
kristinnhaukur@frettabladid.is
ÚTLENDINGAMÁL 33 prósent svar-
enda í nýrri könnun Prósents telja
Ísland veita of mörgum f lótta-
mönnum hæli. Fyrir tæpu hálfu ári
var hlutfallið 22,5 prósent. Að sama
skapi hefur hlutfall þeirra sem telja
Ísland taka við of fáum lækkað úr
40,4 prósentum í 31.
Þrátt fyrir þessa miklu sveiflu er
nokkurn veginn sama hlutfall svar-
enda sem er sátt við stefnu stjórn-
valda, það er telja að Ísland veiti
hæfilega mörgum hæli hér á landi.
Hlutfallið er 36 prósent en var 37,1 í
júní þegar Prósent gerði sams konar
könnun.
Kjósendur Miðflokksins skera sig
úr þegar kemur að harðri afstöðu
til f lóttamanna. 77 prósent þeirra
telja Ísland taka við of mörgum en
aðeins 2 prósent of fáum. Þar á eftir
koma kjósendur Flokks fólksins, en
58 prósent þeirra telja of mörgum
flóttamönnum veitt hæli.
48 prósent Sjálfstæðismanna telja
nú Ísland taka við of mörgum en 9
prósent of fáum. Þetta er umtals-
vert harðari afstaða en í júní þegar
34 prósent Sjálfstæðismanna töldu
Ísland taka við of mörgum en 19
prósent of fáum.
Afstaðan hefur harðnað meira
hjá Framsóknarmönnum. Í júní
töldu 20 prósent þeirra Ísland taka
við of mörgum flóttamönnum en
22 prósent of fáum. Nú er hlutfallið
41 og 13 prósent.
Harðnandi afstaða sést einnig hjá
öðrum flokkum. 24 prósent kjós-
enda Viðreisnar telja Ísland veita
of mörgum hæli, 15 prósent Sam-
fylkingarfólks, 13 prósent Pírata,
12 prósent Vinstri grænna og 11
prósent Sósíalista. Afstaðan hjá
þessum kjósendahópum er hins
vegar enn jákvæðari í garð komu
flóttafólks, mest hjá Pírötum en 59
prósent þeirra telja Ísland veita of
fáum hæli.
Ekki er mikill munur á afstöðu
kynjanna, en afstaða kvenna hefur
þó harðnað meira en karla. Öfugt
við í júní eru nú f leiri konur sem
telja Ísland veita of mörgum hæli,
það er 34 prósent á móti 32 pró-
sentum karla. Konur eru reyndar
enn í meirihluta þeirra sem telja of
fáum hleypt inn í landið en f leiri
karlar telja fjöldann hæfilegan.
Þegar litið er til aldurshópa
hefur afstaðan harðnað mest hjá
45 til 54 ára. 38 prósent þeirra telja
Ísland taka við of mörgum en hlut-
fallið var 20 prósent í júní. Afstaðan
hefur einnig harðnað meira á lands-
byggðinni, úr 29 prósentum í 43.
Könnunin var netkönnun fram-
kvæmd 14. til 17. nóvember. Úrtakið
var 2.600 og svarhlutfallið 51,3 pró-
sent. n
Afstaða til komu
erlends flóttafólks
harðnar verulega
Afstaða til þess fjölda sem
Ísland veitir hæli
n Hæfilega
mörgum
n Of fáum
n Of mörgum 36%
33%
31%
48 prósent Sjálfstæðis-
manna og 41 prósent
Framsóknarmanna
telja Ísland veita of
mörgum flóttamönn-
um hæli.
Fæst einnig fjórhjóladrifinn
Laugavegi 174, 105 Rvk. www.hekla.is/skodasalur
Škoda Enyaq
Coupé RS iV.
Sportlegur og alrafmagnaður
Framkvæmdir standa við Hallgrímskirkju og er ekki ólíklegt að þessi verkamaður rati inn í fjölskyldualbúm ferða-
manna á Íslandi enda kirkjan einn helsti áfangastaður þeirra sem koma til landsins. Ljóst er að starfið er ekki fyrir
lofthrædda þar sem kirkjan er með hæstu mannvirkjum landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK