Fréttablaðið - 22.11.2022, Side 6

Fréttablaðið - 22.11.2022, Side 6
Fundur í samráðsvettvangi um jafnrétti kynjanna verður haldinn mánu- daginn 5. desember klukkan 9:00 – 12:00 í Hannesarholti. Þema fundarins að þessu sinni verður stefnumótun í jafnréttismálum sem endurspeglast í nýrri þingsályktun um framkvæmdaáætlun í jafn- réttismálum fyrir árin 2024 – 2027. Samráðsvettvangur um jafnréttismál - Jafnréttisráð starfar skv. 24. grein laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Rétt til þátt- töku á fundum samráðsvettvangs eiga fulltrúar frá samtökum sem vinna að jafnrétti kynjanna, fulltrúar frá aðilum vinnumarkaðarins og fræða- samfélags. Þá eiga fulltrúar sveitarfélaga og samtaka þeirra einnig rétt til þátttöku. Hlutverk samráðsvettvangsins er að vera ráðherra til ráð- gjafar við faglega stefnumótun í málum sem tengjast jafnrétti kynjanna. Lögaðilar sem starfa að jafnrétti kynjanna samkvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna önnur en þau sem tilgreind eru hér að ofan geta óskað eftir þátttöku en gerð er sú krafa að um sé að ræða lögaðila með stjórn og skráða kennitölu. Umsóknir um þátttöku sendist á skrifstofu jafnréttis- og mannréttinda- mála í forsætisráðuneytinu á netfangið for@for.is fyrir 1. desember nk. merkt Samráðsvettvangur. Samráðsvettvangur um jafnrétti kynjanna – Jafnréttisráð Valur Grettisson hættir um mánaðamótin sem ritstjóri The Reykjavík Grapevine. Hann hefur gegnt stöðunni frá árinu 2017. Hin kanadíska Katherine Fulton tekur við ritstjórninni. Bandarískur hlaðvarpsframleiðandi hefur keypt hlut í fyrirtækinu. ninarichter@frettabladid.is FJÖLMIÐLAR „Það eru umtalsverðar breytingar að eiga sér stað hjá The Reykjavík Grapevine,“ segir Valur Grettisson, fráfarandi ritstjóri fjöl- miðilsins. Blaðakonan Andie Sop- hia Fontaine sem hefur unnið við blaðið með hléum frá 2003 lætur einnig af störfum. Hún lýsir upp- sögninni sem óvæntri en segist virða ákvörðun eigenda og óskar þeim velfarnaðar í framhaldinu. Valur segir samkomulag milli sín og eigenda um að stíga til hliðar. „Blaðið er að taka aðra stefnu og endurnýja sig. Það er ekki óeðlilegt,“ segir hann og bætir við að fimm ára líftími í starfi sé með besta móti fyrir ritstjóra á Íslandi. „Ég kem inn í Grapevine á tíma þegar nokkur hneykslismál höfðu komið upp, en svo voru mjög góðir ritstjórar þarna inni á milli sem voru skammlífir þó,“ segir Valur. „Þá var kominn tími til að lyfta Grapevine upp úr því að vera þetta 101 götublað upp í svona aðeins borgaralegra menningarblað, eins og ég fór með það.“ Að sögn Vals verður ný stefna miðilsins tekin „í sterkari menn- ingarlegar áttir og að minnka eitt- hvað í fréttum og öðru eins“. Valur náði óvæntum og gríðarleg- um árangri á nýmiðlum Grapevine í heimsfaraldrinum. „Ég asnaðist til þess að verða að YouTube-stjörnu,“ segir hann og hlær. „Við vorum með tvær milljónir notenda á einum mánuði, í allnokkra mánuði. Það var ofboðslega mikið áhorf á okkur og mest tengt eldgosinu á sínum tíma. Við höfum haldið því að miklu leyti og erum með 60 þúsund áskrif- endur,“ segir hann. Að auki stofnaði Valur svokallað newscast, fréttaþátt á netinu. „Sem ég held að enginn viti hvað er, en sem er með meira áhorf en Fréttir RÚV.“ Valur segist ekki stefna á að stofna sinn eigin fjölmiðil á næstunni eða fara í samkeppni við Grapevine. Ritstörf komi hins vegar til greina. „Maður á eiginlega ekki að segja frá þessu, það minnkar samviskubitið hjá yfirmönnum. En í hvert skipti sem ég er rekinn reyni ég að skrifa,“ segir hann. „Maður hefur verið rekinn og ráðinn svo oft í gegnum blaðamennskuna. En ég fæ ágætis tíma til þess að finna mér eitthvað annað að gera. Það langan að ég get örugglega skrifað heila skáldsögu á sama tíma.“ Jón Trausti Sigurðarson, einn stofnenda og eigenda miðilsins, hefur tekið við starfi framkvæmda- stjóra. „Hilmar Steinn Grétarsson var að hætta og selja sig út. Kaup- andinn er bandarískur podcastari sem heitir Marcus Parks sem gefur út hlaðvarpsþættina The Last Pod- cast On The Left og No Dogs In Space,“ segir Jón Trausti. Fjórir aðil- ar fara með eignarhald miðilsins. Nýr ritstjóri Grapevine er hin kan- adíska Katherine Fulton sem meðal annars hefur unnið fyrir Toronto Star og hefur starfað við Grapevine með hléum í rúman áratug. n Bandaríkjamaður kaupir í Grapevine Valur Grettisson er fráfarandi ritstjóri Grapevine og hefur gegnt stöðunni frá árinu 2017. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Í hvert skipti sem ég er rekinn reyni ég að skrifa. Valur Grettisson gar@frettabladid.is INDÓNESÍA Tala látinna á eyjunni Jövu í Indónesíu eftir jarðskjálfta af styrkleikanum 5,6 sem varð þar klukkan 13.21 að staðartíma í gær var komin í 162 síðdegis í gær. Að sögn Verdens Gang voru 326 alvarlega slasaðir eftir skjálftann og 13 þúsund manns misstu heim- ili sitt. Meðal hinna látnu hafi verið 40 börn. Ekki sé hægt að veita öllum læknishjálp því starfsfólk skorti á sjúkrahúsum. n Fjölmargir látnir eftir jarðskjálfta Þrettán þúsund misstu heimilið. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY kristinnhaukur@frettabladid.is DÓMSMÁL Máli mæðgnanna í schäfer-hundaræktinni Gjósku gegn fimm einstaklingum sem sitja í stjórn Hundaræktunar- félags Íslands (HRFÍ) var vísað frá í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Var mæðgunum, Örnu Rúnarsdóttur og Rúnu Helgadóttur, gert að greiða stjórnarmönnum 200 þúsund krón- ur í málskostnað. Er þetta í annað skiptið sem málið kemur fyrir héraðsdóm en fyrra máli var vísað frá þar sem ekki þótti afgerandi hvort verið væri að stefna félaginu eða stjórn þess. Gjósku var vísað úr HRFÍ eftir að siðanefnd úrskurðaði að röng ræktunartík hefði verið skráð í goti. Fréttablaðið greindi frá því þann 25. október að mikill hiti hefði verið í málinu þegar lögmennirnir Jón Egilsson, fyrir Gjósku, og Jónas Fr. Jónsson, fyrir HRFÍ, tókust á. Jónas sagði slíka ágalla á málatilbúnað- inum að ekki væri hægt að grípa til varna. Dómkrafan væri ódómtæk, krafan vanreifuð og engin sönn- unargögn lögð fram. Því ætti að vísa málinu frá. Jón sagði úrskurð siðanefndar rangan og málið ætti að fá efnislega meðferð. Arna gæti ekki stundað atvinnu sína sem hundaræktandi. Æran og fjármunir væru undir. n Héraðsdómur vísar aftur frá máli schäfer-mæðgnanna Málið hefur skekið hundaheiminn. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY HRFÍ vísaði Gjósku úr félaginu vegna rang­ skráningar á goti. bth@frettabladid.is AKUREYRI Óvenjuleg hreyfing hefur verið á oddvitum stjórnmálaflokka í bæjarstjórn Akureyrar frá kosn- ingum. Brynjólfur Ingvarsson geðlæknir sem leiddi Lista flokksins hefur sagt skilið við flokkinn vegna óánægju og ásakana og starfar nú sem óháð- ur. Gunnar Líndal, oddviti L-list- ans, hefur einnig ákveðið að láta af störfum sem bæjarfulltrúi vegna annríkis við önnur störf. Halla Björk Reynisdóttir, bæjar- fulltrúi L-listans, sem er gamal- reynd í pólitíkinni, bendir á að þessi tvö mál séu gjörólík. „Bæjarfulltrúar hafa sagt sig frá störfum áður, ekki reyndar hjá okkur þannig að þetta er nýtt fyrir L-listann," segir Halla Björk. „Aðstæður hjá Gunnari breyttust þannig að hann sér sér ekki fært að sinna sínu verkefni.“ Hún segir að þótt Gunnar stigi til hliðar færist aðrir upp. „Þetta breytir engu um okkar starf, maður kemur í manns starf, hann verður áfram með okkur í f lokksstarfi.“ n Hreyfing á oddvitum Akureyrar Halla Björk Reynisdóttir bæjarfulltrúi. Tveir hafa horfið úr starfi pólitíkurinnar á Akureyri. FRÉTTABLAÐIÐ/ AUÐUNN 6 Fréttir 22. nóvember 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.