Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.11.2022, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 22.11.2022, Qupperneq 36
Jesús sagði: biblian.is „Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og fyrir yður mun upp lokið verða.“ Matt. 7.7 Svissneski pródúserinn Kurt Uenala hefur unnið með Depeche Mode, Erasure, The Kills, Moby, Yelle og fleirum. Hann er búsettur hér á landi ásamt íslenskri eiginkonu sinni og barni, og gefur út nýja plötu í næsta mánuði með Dave Gahan úr Depeche Mode. ninarichter@frettabladid.is Í húsnæði Sankti Jósefsspítala í Hafnarfirði er hljóðver sem Kurt Uenala á og rekur. Sannkölluð örlagasaga leiddi Grammy-til- nefnda pródúserinn, forritarann og lagahöfundinn Kurt til Íslands, þegar ástin bankaði að dyrum fyrir nokkrum árum. Áður bjó Kurt í New York og vann þar með mörg- um af þekktustu tónlistarmönnum heims auk þess að sinna sólóverk- efninu Null & Void. „Ég byrjaði að vinna með þeim árið 2005,“ segir Kurt um samstarf hans og Dave Gahan, söngvara Depeche Mode. „Við ferðuðumst mikið og rákum saman stúdíó í New York þangað til ég flutti til Íslands,“ segir hann. Með glósubók við gluggann Kurt lýsir því að hann og Dave Gahan hafi verið fastir heima hvor í sínu landinu í heimsfaraldrinum, en spjallað á hálfsmánaðar fresti. Þá var Kurt f luttur til Íslands og Dave búsettur í New York. „Ég fór að rifja upp að þegar við vorum að ferðast saman, þá sat hann einn með glósubók í kjöltunni og horfði út um gluggann.“ Kurt segist ekki hafa viljað hnýsast á þeim tíma, en Kurt Uenala rekur hljóðver í Hafnarfirði. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK á endanum hafi forvitnin bugað hann. „Hann sagðist vera að rita hugmyndir og bara svona það sem honum datt í hug, ekkert mark- visst.“ Í heimsfaraldrinum kom Kurt svo í hug að biðja Dave að senda sér einhverja texta, upplesna. „Ég elska svona talaða kaf la í tónlist. Oft þegar ég horfi á kvikmyndir enda ég á að hlusta bara á hljóðrásina og fylgist þannig með og það er mjög ánægjulegt þegar hljóðmyndin er góð,“ segir hann um fræið sem varð að samstarfsverkefninu. Dave tók upp fyrstu lesnu kaf l- ana í bílnum sínum, fyrir utan heimili sitt á Long Island. „Ég spil- aði það í stúdíóinu og lék syntha- tónlist yfir. Ég tók upp helling af efni og klippti það svo bara niður í framhaldinu,“ segir Kurt. „Mér finnst það betra verklag en að vera að hlaupa fram og til baka í tölv- una, sem rífur mann úr f læðinu. Maður er heldur ekki í neinum vandræðum með stærðir á hörðum diskum í dag, þannig að maður nýtir bara tækifærið.“ Kurt útskýrir að þannig hafi fyrsta lagið orðið til. „Ég sendi það svo til baka og Dave elskaði það. Þetta var samt frekar ómarkviss framleiðsla, við stefndum ekkert endilega á útgáfu en gerðum þetta bara svona þegar við höfðum tíma,“ segir hann. Afraksturinn er fimm laga plata sem kemur út þann 16. desember. Fyrsta lagið er nú þegar komið út. Kannski algjör vonbrigði Kurt segir þá Dave vera mjög með- vitaða um að kannski vilji ekki margir hlusta á söngvara Depeche Mode tala inn á upptöku, í stað þess að syngja. „Kannski finnst fólki það algjör vonbrigði,“ segir hann og hlær. „En mér finnst röddin hans hitta einhverja taug innra með mér og kannski hittir hún taug hjá öðrum líka, þó að hann sé að tala en ekki að syngja. Þetta er ekki hljóðbók heldur svona milli tveggja heima,“ segir hann. Efnistökin segir Kurt snúast um hugleiðingar Dave í heimsfaraldr- inum. „Þessir textar voru skrifaðir í upphafi heimsfaraldurs og síðustu Um ástina á Íslandi og plötu með Dave Gahan tvö ár. New York var mjög dystópísk og það var samkomubann á götum sem alltaf höfðu verið pakkaðar af fólki. Hann lýsti þessu eins og kvikmyndasetti, þegar enginn var á götunum nema dúfurnar og rott- urnar.“ Textar hins sextuga Dave fjalli einnig um fáránleika lífsins og eitthvað um eftirsjána. „Hann er orðinn eldri og fólk í kringum hann farið að deyja, hann skrifaði líka um það.“ Aðdáandi Sykurmolanna Kurt kom fyrst til Íslands árið 2006 sem ferðamaður. Hann segist alltaf hafa hrifist af Íslandi og verið ein- staklega mikill aðdáandi Sykur- molanna. „Sykurmolarnir höfðu gríðarleg áhrif á mig. Ég startaði hér elektrónísku tónlistarverkefni og ári seinna var ég kominn aftur til Íslands að spila fyrir útvarpsþáttinn Partýzone sem þá var,“ segir Kurt. „Ég kom hingað tólf sinnum áður en ég flutti hingað.“ New York-borg varð í huga Kurt erfiður, dimmur og breyttur staður eftir að Donald Trump tók við for- setaembætti Bandaríkjanna í janúar 2017. „Það breytti borginni rosalega og listaheimurinn fór að snúast í auknum mæli um biðraðir og rauð f lauelsreipi og fólk sem meinaði öðrum aðgang ef þeim leist ekki á andlitið á þeim. Manhattan og Williamsburg urðu leikvöllur fyrir ríka fólkið og nemendurna í New York-háskóla sem áttu ríka foreldra. Ég hafði þegar gert svo margt í New York og mig langaði að byrja upp á nýtt einhvers staðar, og ég ákvað að fara til Berlínar,“ segir Kurt. Síðasta daginn í New York Hann ákvað að fara til Seyðis- fjarðar áður en af f lutningunum til Þýskalands yrði, og sótti um í lista- mannadvöl þar sem hann ætlaði að vinna að verkefni með laser-ljós og tónlist. „Síðasta daginn í New York fæ ég skilaboð frá íslenskri vinkonu minni sem ég kynntist fjórum árum áður. Við höfðum alltaf talað um að hittast aftur en tímasetningin var aldrei nógu góð. Hún vann sem f lugfreyja og sagði mér að hún væri stödd í New York í eina nótt, og spurði hvort mig langaði að hittast í kaffi,“ segir hann. „Þetta var framtíðareigin- kona mín og við eyddum nóttinni saman. Tímasetningin var eins og í bíómynd.“ Í dag rekur Kurt hljóðver í Sankti Jósefsspítala í Hafnarfirði, sinnir tónlistartengdum verkefnum og kennir hljóðvinnslu og hljóð- hönnun við Listaháskóla Íslands. „Ég er að vinna með John Grant að nýju plötunni hans núna. Hann er svona synthabrjálæðingur eins og ég,“ segir Kurt Uenala. n Dave Gahan úr Depeche Mode les upp hugleiðingar sínar á nýju plötunni. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY 16 Lífið 22. nóvember 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 22. nóvember 2022 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.