Fréttablaðið - 22.11.2022, Síða 38

Fréttablaðið - 22.11.2022, Síða 38
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@ frettabladid.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrir@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolbeinn@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is www.husgagnahollin.is Sími: 558 1100 20- 60% AF ÖLLUM VÖRUM* ALLA VIKUNA FRIDAY BLACK * Gildir ekki af Iittala, Bitz, Skovby né sérpöntunum SMÁVÖRUPANTANIR YFIR 9.900 KR ERU SENDAR FRÍTT TIL JÓLA Í PÓSTBOX OG PAKKAPORT PÓSTSINS Villi Neto heldur uppi stemn- ingunni á góðgerðarstreymi fyrir Kattholt á fimmtudaginn þrátt fyrir bullandi ofnæmi. arnartomas@frettabladid.is Á f immt ud ag sk völd stendu r Hringdu fyrir góðgerðarstreymi þar sem grínistinn Villi Neto mun bregða sér í stafrænan kattarham og spila tölvuleikinn Stray til styrktar Kattholti. Villi var vel á veg kominn með Grandiosa-pitsu þegar Fréttablaðið náði af honum tali. „Hún Melína Kolka hjá Hringdu, sem stendur fyrir streyminu, bar þetta undir mig og ég var strax mjög til,“ segir Villi sem segist elska kisur. „Mér hefur þótt mjög gaman að streyma í þau skipti sem ég hef gert það. Það er samt leiðinlegt að stilla þessu upp sjálfur heima svo það er frábært að hafa svona umstang í kringum mig.“ Ást Villa á kisum er þó harmi blandin. „Ég er með alveg bullandi ofnæmi svo ég get lítið gert fyrir þær nema með því að hjálpa í svona fjáröflun,“ segir Villi dapur í bragði. Þú átt sem sagt auðveldara með pixlaðar kisur? „Já, hundrað prósent!“ Kattholtin tvö Það ætlaði allt um koll að keyra í leikjasamfélaginu þegar Stray kom á markaðinn enda eru kisuhermar einstaklega vanræktur markaður. Leikurinn hefur fengið góða dóma en í honum bregður leikmaðurinn sér í hlutverk villikattar í framtíðar- dystópíu þar sem stafræna byltingin hefur mögulega náð aðeins of langt. „Ég hef haft auga á honum í ein- hvern tíma en hef ekki prófað hann enn þá svo það er gaman að fara í hann alveg blindandi,“ segir Villi klár í slaginn fyrir morgundaginn. „Ég fylgdist með honum á Twitter þegar hann kom þangað fyrst svo ég veit kannski aðeins hvað er í gangi en samt ekki.“ Villi er sjálfur leikjakall en hefur ekki náð að sinna dellunni sem skyldi. „Ég var að kaupa hús svo maður getur ekki beint verið að splæsa í PS5,“ útskýrir hann. „Síðasti leikur- inn sem ég spilaði eitthvað af viti var Red Dead Redemption 2 sem er auð- vitað alveg geggjaður. Ef ég fæ mér Playstation dett ég ábyggilega inn í FIFA og Rocket League – ég elska boltaleiki eins og alveg týpískur gaur.“ Dagskráin á fimmtudaginn hefst klukkan 18 þar sem kynnar kvölds- ins verða með Pub Quiz áður en Villi bregður sér í gervi kattarins. Á eftir honum munu stelpurnar í raf- íþróttaliðinu Kröflu halda streym- inu áfram með partíleikjunum Overcooked og Jackbox. „Það er fyndið að benda á að ég er sjálfur að vinna í Kattholti um helgar, í uppsetningunni á Emil í Kattholti,“ segir Villi og hlær. „Mér finnst annars gaman að sjá fólk styrkja þetta flotta starf sem Katt- holt stendur fyrir og er spenntur fyrir því að fólk mæti í streymið og hafi gaman með mér.“ Streymið verður aðgengilegt á twitch.tv/hringdu. n Villi sigrast á ofnæminu í stafrænum kattarham Ofnæmið stuðar ekki Villa um of á Kattakaffihúsinu þar sem ítrasta hreinlætis er gætt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Stray hlaut góða dóma kattar- og tölvuleikjafólks. arnartomas@frettabladid.is Fyrstu tveir þættirnir af Crown- va r pinu , v iðha f na rhlaðva r pi Fréttablaðsins um dramaþátta- röðina The Crown frá Netflix, eru komnir á Spotify undir merkjum Bíóvarpsins. „Allir virðast vera helteknir af þessum Netflix-þáttum um Elísa- betu heitna drottningu og hennar fólk sem óneitanlega vekja forvitni og endalausar spurningar. Rétt eins og konungsfjölskyldan sjálf sem virðist vera nógu bragðgóð til þess að vera alltaf á milli tannanna á fólki,“ segir Þórarinn Þórarins- son blaðamaður á Fréttablaðinu. „Þannig að við töldum ekki annað hægt en að bryðja þessa fimmtu seríu inn að beini í sérstökum þátt- um með aðstoð góðra og sérfróðra gesta,“ segir Þórarinn sem sér um hlaðvarpsþættina ásamt kollega sínum Oddi Ævari Gunnarssyni. Þegar hér er komið sögu er tíundi áratugurinn runninn upp og fjallað er um atburði sem eru mörgum enn í fersku minni þannig að hvergi skortir umræðuefnin og í fyrsta þætti er farið um víðan völl með enskukennaranum Guðnýju Ósk Laxdal, sem heldur úti Instagram- síðunni RoyalIcelander og er f lest- um hér á landi fróðari um málefni krúnunnar. Þórarinn segir þau meðal annars ræða það sem hann kallar vandaða raunveruleikafölsun þáttanna. „Og síðan upplýsir Guðný Ósk hvaða sérkennilega eldsneyti umhverfis- vænn Aston Martin konungsins gengur fyrir.“ n Dularfullt eldsneyti Karls konungs Imelda Staunton er hin nýja Elísabet. MYND/SKJÁSKOT 18 Lífið 22. nóvember 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.