Fréttablaðið - 01.12.2022, Page 8
96%
Evrópubúa í þéttbýli
eru sögð berskjölduð
fyrir meira magni af
svifryki en æskilegt
þykir.
Eftir samráð við flug-
rekendur var ákveðið
að tap ársins 2020
skyldi dreifast á fimm
ára tímabil frá 2022 til
2026.
Kjartan Briem,
framkvæmda-
stjóri Isavia ANS.
bth@frettabladid.is
EFNAHAGSMÁL „Ég tel ekki heppi-
legt að Íslandsbanki hafi tekið þátt
í sölunni,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir,
menningar- og menntamálaráð-
herra, í umræðu um útboðið á
bréfum Íslandsbanka hjá stjórn-
skipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis
í gær.
„Hann átti að standa utan við
þetta,“ sagði Lilja um bankann.
Lilja sagði þekkt erlendis er hlutir
væru seldir að viðkomandi banki
tæki ekki þátt í viðskiptunum.
Mikið var rætt um pólitíska
ábyrgð á fundi nefndarinnar og
hvort f jármálaráðherra, Bjarni
Benediktsson, hefði átt að hafa
afskipti af því þegar ljóst varð að
faðir hans var meðal kaupenda.
Fram kom hjá Katrínu Jakobs-
dóttur forsætisráðherra að mjög
óheppilegt hefði verið að náinn ætt-
ingi fjármálaráðherra væri meðal
kaupenda.
Þá var gagnrýnt að skilgreining
á fagfjárfestum hafi ekki verið sem
skyldi. Sumir keyptu smáan hlut og
seldu fljótlega með hagnaði.
Einnig var rætt um gagnrýni Lilju
í ráðherranefnd um efnahagsmál
þegar fyrirkomulag sölunnar var
rætt. Lilja lagðist gegn þeirri leið
sem valin var og ræddi á fundinum
í gær að almennt útboð hefði verið
heppilegra.
Katrín sagðist hafa orðið fyrir
miklum vonbrigðum með Banka-
sýsluna í málinu. Ekki síst þegar
Bankasýslan lagðist gegn því að
birtur yrði opinberlega nafnalisti
kaupenda. Fyrst þá varð almenningi
ljóst að faðir fjármálaráðherra væri
meðal kaupenda. n
Lilja gagnrýndi að Íslandsbanki hefði sjálfur tekið þátt í sölu
ser@frettabladid.is
DÝRALÍF Umhverfisráðherra hefur
enn ekki svarað formanni náttúru-
verndarsamtakanna Jarðarvina um
hvort hann hafi farið á hreindýra-
veiðar í haust. Fyrirspurnin var send
ráðherra um miðjan september og
svar hefur enn ekki borist, hálfum
þriðja mánuði síðar.
Formaður Jarðarvina, Ole Anton
Bieltvedt, telur eðlilegt að ráðherra
í málaf lokki dýraverndar svari
spurningum á borð við þær hvort
hann hafi sjálfur veitt hreindýr, og
ef svo er, kýr eða tarfa, og hvenær
veiðin hafi farið fram.
Rökstuðningur hans er í þá veru
að hreindýraveiðar séu umdeildar,
en til að mynda hafi Fagráð um
velferð dýra mælst til þess við ráð-
herra að hreinkýr séu ekki veiddar
á meðan þær séu mylkar, sem svo
ráðherra hafi leyft.
Því sé eðlilegt að ráðherra geri
almenningi grein fyrir því hvort
hann nýti sjálfur leyfið til veiða eða
ekki, og er þar vísað til upplýsinga-
laga.
Svars var óskað innan sjö daga frá
því erindið barst ráðherra. En sem
fyrr segir hefur ekkert svar borist frá
því í september. n
Spyr um hreindýraveiðar ráðherrans
kristinnpall@frettabladid.is
EVRÓPUSAMBANDIÐ Umhverfis-
stofnun Evrópu áætlar að um 238
þúsund manns í Evrópu hafi látið
lífið fyrr en áætlað var (e. premat-
ure deaths) vegna slæmra loftgæða.
Þrátt fyrir það horfir til betri vegar
í þessum málefnum.
Í skýrslu stofnunarinnar kemur
fram að 96 prósent Evrópubúa sem
búi í þéttbýli séu berskjölduð fyrir
meira magni af svifryki en æskilegt
þykir. Þá hafi loftmengun áhrif á líf-
ríki náttúrunnar. n
Kvartmilljón látin vegna mengunar
Ole Anton Bielt-
vedt, formaður
Jarðarvina
Fagráð um velferð dýra mælist til þess að mylkar hreindýrskýr séu ekki
veiddar, en ráðherra hefur ekki orðið við því. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Frá fundi nefndarinnar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Samtök flugfélaga saka
Íslendinga og Dani um
græðgi vegna verðhækkana
á flugumferðarsvæðinu
yfir Norður-Atlantshafi.
Framkvæmdastjóri Isavia
ANS segir hækkun bundna í
alþjóðasamninga.
kristinnhaukur@frettabladid.is
FLUG Alþjóðasamtök flugfélaga saka
Íslendinga og Dani um gróðahyggju,
byggða á einokunarstöðu þeirra á
Norður-Atlantshafinu, þegar kemur
að f lugumferðargjöldum. Gjöldin
fyrir flug milli Norður-Ameríku og
Evrópu verða hækkuð um áramótin.
Í yfirlýsingu IATA er sagt að
hækkunin nemi 30 prósentum að
meðaltali og að f lugfélögin verði
að setja þennan kostnað út í f lug-
miðann. Sagt er að verðhækkunin
sé óréttlát og ósanngjörn og hafi
áhrif á mörg flug. Hvetja samtökin
stjórnvöld í löndunum tveimur til
að endurskoða málið.
Kjartan Briem, framkvæmda-
stjóri Isavia ANS, segir að hækkunin
sé ekki svona mikil. En Isavia ANS,
dótturfélag Isavia, sinnir f lugleið-
söguþjónustu yfir Norður-Atlants-
hafinu. Gjaldið fyrir meðalflug árið
2022, sem er um 1.373 kílómetra
langt, sé 53.248 krónur en hækki í
56.136 krónur um áramótin. Það
gerir 5,4 prósenta hækkun.
Þetta sé tvískipt gjald. Annars
vegar leiðsögugjald sem fer eftir
flognum kílómetrum og hins vegar
gjald fyrir fjarskipta- og veður-
þjónustu, sem er einskiptis fyrir
hvert flug.
„Gjald fyrir alþjóðlega f lug-
leiðsöguþjónustu í íslenska f lug-
stjórnarsvæðinu byggir á endur-
heimt kostnaðar við að veita hana,
samkvæmt samningi Íslands við 24
önnur ríki,“ segir Kjartan. Rekstur
samningsins sé í höndum ICAO,
alþjóðaf lugmálastofnunarinnar
innan Sameinuðu þjóðanna.
Aðspurður hvers vegna verið
sé að hækka gjaldið segir Kjartan
það vera vegna taps fyrri ára og
séu afleiðingar heimsfaraldursins
helsta ástæðan fyrir því. Samkvæmt
samningnum skal endurheimta
þetta tap í gegnum gjöld næstu ára.
„Eftir samráð við f lugrekendur
var ákveðið að tap ársins 2020
skyldi dreifast á fimm ára tímabil
frá 2022 til 2026,“ segir Kjartan, en
tekur það fram að umfang flugum-
ferðar hafi sveiflast mikið síðustu
árin. Flugumferðargjald sé reiknað
út frá áætlaðri umferð.
Samningur Dana við ríkin 24 er
sambærilegur við þann íslenska,
en hann er fyrir flugstjórnarsvæðið
yfir Grænlandi. Síðan er samningur
í gildi milli Íslands og Danmerkur
um að Ísland sinni f lugleiðsögu á
stórum hluta Grænlandssvæðisins,
og telst það þá hluti af íslenska flug-
stjórnarsvæðinu. Árlegir fundir eru
haldnir með Dönum og flugrekend-
um um þjónustu og verðlagningu á
svæðinu.
„Gjaldskrá íslenska flugumferðar-
gjaldsins byggir eingöngu á kostn-
aði Íslands við að veita þjónustuna
og því er ekki samráð við Dani um
það,“ segir Kjartan.
Spurður um mótmæli IATA og
hvort þau verði tekin til greina segir
Kjartan að Isavia ANS sé reglulega í
samskiptum við IATA um þjónustu
og verðlagningu og svo verði einnig
í þessu tilviki. Ísland sé hins vegar
skuldbundið af þeim samningum
sem um ræðir um fyrirkomulag
verðlagningar. n
Hækkunin aðeins 5 prósent
GrænlandKanada
Ísland
Skotland
Noregur
Svalbarði
Írland
Íslenska
flugstjórnarsvæðið
Flugmenn
reiða sig mjög
á leiðsögn frá
flugumferðar-
stjórum á jörðu
niðri.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
lovisa@frettabladid.is
BANDARÍKIN Demókratar hafa kosið
Hakeem Jeffries til að taka við af
Nancy Pelosi sem leiðtogi flokksins
á þingi á næsta ári. Jeffries verður þá
fyrsti svarti maðurinn til að leiða
annan stóru f lokkanna á þingi í
Bandaríkjunum.
Repúblikanar eru með meirihluta
á þingi og hann verður því í stjórn-
arandstöðu fyrstu tvö kjörtímabil
sín sem leiðtogi. n
Hakeem Jeffries tekur við af Pelosi
Hakeem Jeffries,
verðandi leiðtogi
Demókrata
6 Fréttir 1. desember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ