Fréttablaðið - 01.12.2022, Qupperneq 20
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur
@frettabladid.is
Þær eru besta tískugrínið á
þessari öld: asnalegar, töff og
því ljótari því betra! Hér skal
fjallað um ljótu jólapeysuna
sem hefur fest sig í sessi sem
tískufyrirbæri sem fer allan
hringinn og rúmlega það.
Fyrstu fjöldaframleiddu jóla-
peysurnar litu dagsins ljós á sjötta
áratugnum í Bandaríkjunum (hvar
annars staðar?) þegar jólahátíðin
varð sífellt markaðsvæddari. Þær
nutu hóflegra vinsælda þar til á
níunda áratugnum þegar „ljóta-
peysan“ varð að hugtaki í sjálfri sér
með tilkomu sjónvarpsþáttanna
um Cosby-fjölskylduna og náði
hámarki í kvikmyndinni National
Lampoons Christmas Vacation
þar sem Griswold-fjölskyldan
skartaði þeim í jólaboði. Tíundi
áratugurinn var hins vegar ekki
tilbúinn fyrir þetta tískufyrirbæri
og jólapeysan lá nánast í dvala þar
til tveir kanadískir vinir ákváðu
fyrir jólin 2002 að safna fé fyrir
vin sinn sem var með krabbamein.
Söfnunin fór fram í partíi þar
sem allir gestir voru hvattir til að
mæta í ljótustu jólapeysu sem þeir
gætu fundið. Mætingin var góð og
siðurinn breiddist út smám saman
og varð fljótlega að stórviðburðum
þar sem mörg
þúsund manns
koma saman
og skemmta
sér í ljótustu
jólapeysum
sem hægt er að
finna, jafnvel
er haldin keppni
um ljótustu ljótu peysuna og
oftar en ekki safnað fyrir gott
málefni í leiðinni. Árið 2011
hafði ljóta jólapeysan fest sig
svo rækilega í menningunni
að tískurisinn Dolce&Gabb-
ana setti á markað peysur
undir yfirskriftinni: svo ljótar
að þær eru fallegar! Og hægt
var að fá ljóta jólapeysu á 600
Bandaríkjadali í versluninni
Nordstrom.
Óbærilega ljótar og ótrúlega skemmtilegar
Degi ljótra jólapeysa er fagnað þriðja föstudag í desember og ekki seinna vænna að byrja að
undirbúa vinnustaðagleðina eða heimapartíið.
Talið er að 23 prósent Banda-
ríkjamanna muni fjárfesta í ljótri
jólapeysu fyrir þessi jól, sem
til stendur að nota í veislu með
vinum, á vinnustaðagleði eða í
myndatöku með fjölskyldunni.
9 prósent fara í sitt fyrsta ljótu
jólapeysu partí fyrir þessi jól og
hlakka mikið til. Ef enginn er
búinn að bjóða þér þá er upplagt
að grípa tækifærið og blása til
síns fögnuðar af eigin rammleik.
Tíu ljótar jólapeysur skemmta sér
betur en ein.
Vefsíðan Uglychristmassweat-
ers.com hefur gert það gott og selt
ófrýnilegar jólapeysur fyrir meira
en fimm milljónir Bandaríkjadala
undanfarin þrjú ár. Fyrirtækið
gefur fólki kost á að hanna sínar
eigin ljótu peysur, er með mikinn
fjölda af misljótum peysum á lager
og einnig nokkrar sem áhrifavald-
ar hafa hannað fyrir fyrirtækið.
Sumar eru svo ljótar að þær eru í
þrívídd! Margar fataverslanir passa
upp á að hafa ljótar jólapeysur til
sölu í desember þar sem dæmin
sanna að fólk tekur ljóta ofskreytta
jólafatnaðinn sinn mjög alvarlega.
Opinber dagur ljótu jóla-
peysunnar er þriðji föstudagur í
desember sem í ár er sá sextándi
og því ekki seinna vænna en að
hefja undirbúning, hvort sem fólk
hyggst prjóna sjálft, leita að allra
ljótustu peysunni í búðum eða á
netinu eða leggja einhverja sak-
lausa rauða og græna peysu undir
alls kyns jólaofgnótt.
En hvað er það við ljótu jóla-
peysuna sem er svo heillandi?
Spekingar hafa komið með ýmsar
skýringar en kannski er bara gott
og gaman að fá að vera í ljótum og
fyndnum fötum að minnsta kosti
einu sinni á ári. n
Jóla-
peysurnar geta
tekið á sig ýmsar
myndir og ungir sem
aldnir hafa jafn-
gaman af þeim.
Hugmyndaflugið á sér fá takmörk
þegar kemur að því að fagna ljót-
leika jólapeysanna. Gulur litur og
þrívídd er engin fyrirstaða.
sandragudrun@frettabladid.is
Alþjóðlegt bókasafn fyrir rann-
sóknir í tísku (ILFR), sem staðsett
er á Þjóðminjasafni Oslóar og var
stofnað árið 2020, var loks opnað
fyrir almenningi í fyrradag en af
því tilefni var haldin tveggja daga
opnunarhátíð safnsins. Bókasafnið
er geymsla sérhæfðra tískurann-
sókna og samtímaútgáfu um tísku.
Metnaður er lagður í að safnið
verði stærsta og umfangsmesta
skjalageymsla heims fyrir útgefið
tískuefni og önnur skjöl sem tengj-
ast tískuiðnaðinum. Það verður
ókeypis og aðgengilegt úrræði fyrir
fagfólk í tískuiðnaðinum, fræði-
menn, nemendur og áhugafólk.
Ört vaxandi safn
Safnkosturinn fer ört vaxandi.
Frá stofnun hefur það tekið við
umtalsverðum framlögum, þar á
meðal efni frá franska tískuhúsinu
Hermès, alþjóðlega tímarita-
dreifingaraðilanum KD Presse,
japanska tískuhúsinu Comme des
Garçons og hönnunarstofunni
M/M (Paris). Mikið af efninu í
skjalasafni ILFR er stafrænt og
aðgengilegt á heimasíðu ILFR.
Í dag er opnuð sýning á safninu
sem stendur til og með 1. mars
á næsta ári. Sýningin saman-
stendur af úrvali fréttatilkynninga
og kynningartexta frá fjórtán
goðsögnum í tískuheiminum í
gegnum tíðina. Áhersla er á hið
mikilvæga samstarf á milli vöru-
merkja og textahöfunda í tísku-
iðnaðinum, sem eru ekki síður
mikilvægir til að kynna tískuna en
tískusýningarnar sjálfar.
Hannað af þeim bestu
Innrétting bókasafnsins hefur verið
þróuð í samvinnu við arkitektinn
og prófessorinn Vesma McQuillan
og nemendur við háskólann í Krist-
janíu. Hillurnar eru hannaðar af
ítalska hönnunardúettinum Form-
afantasma. Gluggatjöldin koma
frá Kvadrat Textiles. Borðin eru
sérsmíðuð úr endurunnu MDF-efni
og sýningarskáparnir endurnýttir
frá Þjóðminjasafninu.
Eflaust hafa margir tískuaðdá-
endur og áhugafólk beðið spennt
eftir opnun safnsins og fyrir
áhugasöm er tilvalið að skella sé
í aðventuferð til Oslóar og skoða
safnið. n
Tískubókasafn opnað í Osló
Tískusafnið er á Þjóðminjasafninu í
Osló. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Ljótar jólapeysur voru upprunalega bara jólapeysur en við skiljum af hverju
forskeytið stafar. MYNDIR/GETTY
4 kynningarblað A L LT 1. desember 2022 FIMMTUDAGUR