Fréttablaðið - 01.12.2022, Side 22

Fréttablaðið - 01.12.2022, Side 22
Það tók tækni- teymið hjá Weta Digital eitt og hálft ár af þrotlausri vinnu að þróa tæknina fyrir Avatar: The Way of Water. Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Meira en áratugur er liðinn frá sögusviði Avatar. Myndin Avatar: The Way of Water segir sögu Sully- fjölskyldunnar (Jake, Neytiri og barnanna fimm) og vandræðanna sem þeim fylgja. Myndin fjallar um það hve langt þau eru tilbúin að ganga til að tryggja öryggi hvert annars, bar- dagana sem þau heyja til að lifa af og harminn sem þau bera með sér. Þrátt fyrir að Avatar: The Way of Water sé framhald Avatar stendur hún algerlega sjálfstætt. Fyrirhug- aðar eru fleiri framhaldsmyndir á komandi árum og ætlunin er að þær verði allar sjálfstætt framhald þannig að ekki sé nauðsynlegt að horfa á þær í ákveðinni röð. Mikið veltur þó á þessari mynd vegna þess að James Cameron, leikstjóri myndarinnar, hefur lýst því yfir að verði miðasala á Avatar: The Way of Water dræm verði hætt við framleiðslu á Avatar 4 og Avatar 5. Avatar 3 mun hins vegar líta dagsins ljós hvernig sem gengur að fá fólk í bíó til að sjá Avatar: The Way of Water, enda voru myndirnar að stórum hluta framleiddar samhliða. Sem fyrr er hlutverk Jake Sully í höndum Sam Worthington. Sully er nýr leiðtogi Omaticaya-ætt- bálksins eftir að meðvitund hans var flutt yfir í holdgerving hans (avatar) í lok fyrstu myndarinnar. Zoe Saldana er Neytiri, maki Jake. Avatar: The Way of Water er hlaðin hvers kyns tæknibrellum og nýrri kvikmyndatækni. Mikið af myndinni gerist í vatni og kvik- myndað var í raun og veru undir vatnsyfirborði og leikararnir með skynjara fyrir hreyfingar sem yfirfærðir voru á avatarana. Þetta hefur aldrei verið reynt áður og það tók tækniteymið hjá Weta Digital eitt og hálft ár af þrotlausri vinnu að þróa tæknina fyrir þetta. Sem fyrr segir er The Way of Water fyrsta framhaldsmyndin af fjórum sem eru ráðgerðar og þrátt fyrir aðvörun Camerons um að ekkert verði af myndum fjögur og fimm gangi The Way of Water ekki nógu vel, herma heimildir að þegar sé búið að gefa grænt ljós á fram- leiðslu allrar myndaraðarinnar. The Way of Water er í þrívídd. Á tímabili var orðrómur í gangi um að þetta gæti jafnvel orðið fyrsta myndin í þrívídd sem ekki þyrfti þrívíddargleraugu til að njóta. David Cameron gaf þessum orð- rómi undir fótinn en nú er komið á daginn að sú tækni, sem gerir kvikmyndaáhorfendum kleift að njóta þrívíddar á hvíta tjaldinu án sérstakra gleraugna er enn ekki komin til sögunnar. Í Way of Water er Jake Sully, sem í mannlegum líkama sínum var bundinn við hjólastól, orðinn Na’vi. Hann hefur nýtt sér avatar-tæknina til að verða meðlimur Omaticaya-ættbálksins til frambúðar. Sem fyrr segir er hann orðinn leiðtogi ættbálksins og nú þarf hann að leiða sitt bláa fólk í baráttu upp á líf og dauða gegn ágjörnum landnemum sem þekktir eru sem RDA (Resources Development Administration) sem ásælast dýrmætar Unobtanium- auðlindir plánetunnar. Nýir ættbálkar eru kynntir til sögunnar í The Way of Water. Má þar nefna sægarpana í Metkayina- ættbálknum sem er um margt frá- brugðinn Omaticaya-ættbálknum, enda vanur sjónum en ekki regn- skóginum. Avatar: The Way of Water er ávísun á sannkallaða kvikmynda- veislu, enn stórfenglegri en við fengum með Avatar fyrir meira en áratug. Nú verðum við á kunn- ugri slóðum en í fyrstu myndinni – sjórinn stendur okkur Íslending- um nær en regnskógurinn. n Sambíóin um allt land, Smárabíó, Laugarásbíó og Háskólabíó Upp á líf og dauða – og nú í kafi Frumsýnd 16. desember 2022 Aðalhlutverk: Zoe Saldana, Kate Winslet, Sam Worthington og Sigour- ney Weaver Handrit: James Cameron, Rick Jaffa og Amanda Silver Leikstjórn: James Cameron Fróðleikur n Samtals kosta Avatar-framhaldsmyndirnar fjórar meira en einn milljarð Bandaríkjadala í framleiðslu. n Sony hannaði og framleiddi sérstaka myndavél sem Cameron bað um fyrir gerð þessarar myndar og þeirrar næstu. Vélin er kölluð Feneyja-myndavélin (Venice Camera). n Kate Winslett leikur sjálf í öllum neðansjávar-áhættuatriðunum sínum í myndinni. n James Horner, sem samdi tónlistina fyrir Avatar, átti að semja tón- listina fyrir þessa mynd. Hann fórst hins vegar í umferðarslysi 2015 og Simon Franglen hljóp í skarðið. 2 kynningarblað 1. desember 2022 FIMMTUDAGURKVIKMYNDIR MÁNAÐARINS

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.