Fréttablaðið - 01.12.2022, Qupperneq 24
Whitney Houston skaust upp
á stjörnuhimininn um miðjan
níunda áratug síðustu aldar.
Sjaldan eða aldrei hefur stjarna
nokkurs sóló-listamanns skinið
jafn skært.
Röddin, glæsileikinn, frábær
lög og sjö lög Whitney Houston
fóru á toppinn, hvert á fætur öðru,
nokkuð sem enginn annar lista-
maður hefur gert fyrr eða síðar.
Myndin, I Wanna Dance With
Somebody, sækir nafnið í stærsta
smell Whitney Houston – lag
sem hefur hljómað í danshöllum
heimsins allar götur frá því það
heyrðist fyrst, 1987.
Myndin fjallar hins vegar langt
í frá eingöngu um tónlistarferill
Whitney þó að honum séu gerð góð
skil. Áhorfendur eru leiddir um líf
hennar, allt frá því að hún fæðist
inn í miðstéttarfjölskyldu í New
Jersey 1963.
Hún kemur úr tónlistarfjöl-
skyldu. Móðir hennar var bak-
raddasöngkona hjá Elvis Presley
og Dionne Warwick var frænka
hennar. Whitney byrjaði ung að
syngja í kirkjukór og ekki leið á
löngu áður en hún var farin að
syngja einsöng með kórnum.
Um 1980 fór hún á samning sem
fyrirsæta og varð fyrsta þeldökka
konan til að prýða forsíður sumra
helstu tískublaða vestanhafs.
Örlögin ætluðu henni hins vegar
alltaf að verða söngkona enda var
rödd hennar sannkölluð guðsgjöf.
Í myndinni er komið inn á
samband Whitney við föður sinn,
sem gat verið stirt, sérstaklega í
tengslum við peningamál eftir
að henni skaut upp á stjörnu-
himininn.
Þá er stormasömu hjónabandi
hennar við tónlistarmanninn
Bobby Brown gerð skil og baráttu
hennar við áfengi og eiturlyf.
Í myndinni I Wanna Dance With
Somebody eru endurgerð sum
frægustu tónlistaratriði frá ferli
Whitney Houston, meðal annars
þegar hún söng bandaríska þjóð-
sönginn við upphaf úrslitaleiks
bandaríska ruðningsboltans, Super
Bowl XXV, sem leikinn var í Tampa
í Flórída í janúar 1991. n
Smárabíó, Háskólabíó, Laugarás-
bíó og Sambíóin Egilshöll, Álfa-
bakka og Kringlunni
Skærasta stjarnan sem ekki gleymist
Fróðleikur:
n Anthony McClaren skrifaði líka handritið að Bohemian Rhapsody.
n Lagið I Wanna Dance With Somebody fyrir besta flutning popp-
söngkonu á 30. Grammy-verðlaunahátíðinni.
n Í Bandaríkjunum varð lagið fjórða lag Whitney í röð til að fara á
toppinn og meira en milljón eintök seldust af því.
Frumsýnd
26. desember 2022
Aðalhlutverk: Stanley Tucci,
Naomi Ackie, Tamara Tunie,
Clarke Peters, Ashton Sanders
og Nafessa Williams.
Handrit: Anthony McClaren
Leikstjórn: Kasi Lemmons
Enskt tal með
íslenskum texta
Gamanmyndin stórkostlega Dumb
and Dumber, sem fjallar um vinina
sælu, þá Lloyd Christmas og Harry
Dunne, var jólamynd árið 1994 og
sló í gegn.
Mest pirrandi hljóð í heimi
Flest atriðin í Dumb and Dumber
eru spuni að einhverju leyti, en
Farrelly-bræður hafa sagt að um 15
prósent myndarinnar séu spuni.
Fyrst voru atriðin tekin samkvæmt
handriti og svo aftur og þá með
spunaívafi, sem oftar en ekki tókst
alveg ljómandi vel. Eitt slíkt atriði
er þegar félagarnir Lloyd Christ-
mas, leikinn af Jim Carrey, og Harry
Dunne, leikinn af Jeff Daniels, taka
upp puttaferðalang, sem raunar er
leigumorðinginn Mental sem þjáist
af alvarlegum magabólgum og er
því lítið undir það búinn að sitja í
bíl á milli Lloyds og Harrys.
Atriðið í bílnum er leikið sam-
kvæmt handriti þangað til Lloyd
spyr Mental hvort hann vilji heyra
mest pirrandi hljóð í heimi. Lloyd
bíður ekki boðanna heldur hefur
upp raust sína og gefur frá sér
eitthvað það undarlegasta og svo
sannarlega mest pirrandi hljóð sem
heyrst hefur í lengd og bráð, til lítils
yndisauka fyrir Mental, sem virðist
vera við það að missa vitið, svo
mikið reynir ökuferðin á hann.
Kósí hótelherbergi
Þegar vinirnir Lloyd og Harry eru
farnir að nota peningana sem eru í
skjalatöskunni og búnir að galla sig
upp eins þeim er einum lagið, taka
þeir glæsilegt hótelherbergi á leigu
á hóteli einu sem kallast Danbury.
Þar er að finna öll helstu þægindi
og íburðarmikinn glæsileika.
Fáir vita að þetta er sjálft Stanley-
hótelið í Estes Park, Colorado,
hótelið sem gaf meistara Stephen
King innblásturinn að bókinni
The Shining (útg. 1977). Auk
þess heimtaði Jim Carrey að fá
herbergi númer 217, eða Stephen
King-svítuna, þar sem drauga-
gangurinn á að hafa verið. Sagan
segir að hann hafi gefist upp eftir
þrjár klukkustundir, svo rammt
kvað að reimleikunum.
Ekki fastur í öðrum gír árið 1994
Jim Carrey lék aðalhlutverkið í
kvikmyndunum Ace Ventura: Pet
Detective, The Mask og Dumb
and Dumber. Þessar myndir slógu
allar hressilega í gegn og það sem
meira er, þær komu allar út á einu
og sama árinu sem var árið 1994.
Þetta hefur enginn leikið eftir og
þarf ekki að undra.
Fyrsta boð framleiðenda Dumb
and Dumber til Carreys fyrir hlut-
verk Loyds var 350.000 Bandaríkja-
dalir, en þar sem Ace Ventura: Pet
Detective hafði hafið sína sigur-
göngu hafnaði umboðsmaður hans
tilboðinu. Fékk hann að lokum sjö
milljónir dala – tuttugufalt fyrsta
boð.
Komust ekki á listann
Nafnið Dumb and Dumber vakti
ekki áhuga framleiðenda í Holly-
wood og Farrelly-bræðurnir
breyttu því í A Power Tool is Not
a Toy, eða Rafmagnsverkfæri eru
ekki leikföng, og
það virkaði. New
Line Cinema
samþykkti
að framleiða
myndina og
þá breyttu
leikstjórabræð-
urnir nafni
handritsins í
fyrra horf.
Ekki gekk
mikið betur
að finna
aðalleikara
myndarinn-
ar, en Far-
relly-bræð-
urnir voru
með langan
lista yfir
mögulega
leikara.
Þar mátti finna gaman-
leikara á borð við félagana Martin
Short og Steve Martin, leikarana
Nicholas Cage, Rob Lowe og Gary
Oldman, og marga, marga fleiri.
Þeir voru allir uppteknir í öðrum
verkefnum.
Loks var ákveðið að reyna að fá
nýgræðinginn Jim Carrey í hlutverk
Lloyd Christmas og Jeff Daniels í
hlutverk Harry Dunnes, en Daniels
var þekktur leikari en ekki sem
gamanleikari. Nöfn þeirra Carreys
og Daniels voru upphaflega ekki á
listanum.
Eyðimerkurganga bræðranna
Handritið að Dumb and Dumber
hafði verið til í einhverri mynd í
um áratug áður en loksins tókst
að hnýta alla hnúta. Má segja að
myndin hafi verið ástríðuverkefni
Farrelly-bræðranna. Þeir áttu hins
vegar í miklu basli við að finna
framleiðendur.
Í byrjun fengu þeir félaga sinn til
að fjármagna mynd-
ina, en hann
vildi ekki setja
meira en tvær
milljónir dala í
verkefnið. Það var
því ekki fyrr en
New Line Cinema
kom að borðinu
að myndin komst
á koppinn.
Umboðsmaður
Carreys bauð
hann fyrir slikk ef
samningurinn yrði
negldur niður fyrir
föstudaginn þegar
Ace Ventura: Pet
Detective yrði frum-
sýnd. Hann var sann-
færður um að myndin
myndi slá í gegn.
Samningar náðust
þó ekki fyrr en viku eftir frum-
sýningu myndarinnar og var það
dýrkeypt hik fyrir framleiðendur.
Umboðsmaðurinn hafði haft rétt
fyrir sér og það sem meira var: ný
stjarna var fædd. n
Hin óborganlega Dumb and Dumber
Tískuskyn Lloyds og Harrys var
pottþétt hvað hár og föt varðaði.
Leikskólakrakkar vita að maður setur ekki tunguna á frosinn málm.
4 kynningarblað 1. desember 2022 FIMMTUDAGURKVIKMYNDIR MÁNAÐARINS