Fréttablaðið - 01.12.2022, Síða 26

Fréttablaðið - 01.12.2022, Síða 26
Stígvélaði kötturinn kemst að því sér til mikillar skelfingar, þegar hann vaknar hjá lækni eftir að hafa orðið undir risastórri bjöllu í átökum við skrímsli, að þetta er í áttunda skipti sem hann glatar lífi sínu. Hann á bara eitt líf eftir. Hann hefur sólundað lífum sínum í alls kyns fífldirfsku, allt frá því að þvælast inn í hlaup hjá nautahópi til þess að fletjast út undir japönskum súmóglímu­ manni. Í fyrstu lætur Stígvélaði köttur­ inn þetta sem vind um eyru þjóta en eftir að hann tapar slagsmálum við úlf sem hann er sannfærður um að sé mannaveiðari ákveður hann að leggja skikkjuna á hilluna og verða húsköttur hjá Mama Luna. Líður svo tíminn og Stígvélaði kötturinn er kominn með skegg og farinn að vingast við nafn­ lausan hund. Þeirra samtal tekur þó skjótan endi þegar glæpagengið Gullbrá og birnirnir þrír birtast í leit að honum. Eftir að gengið finnur gröf hans verður Gullbrá og björnunum það á að upplýsa Stígvélaða köttinn um óskastjörnu. Kortið sem vísar leið­ ina að óskastjörnunni er í höndum Stóra Jack Horner sem hyggst nýta óskastjörnuna til að sölsa undir sig allan galdramátt í heiminum. Þegar Stígvélaði kötturinn reynir að stela kortinu hittir hann óvænt á ný Kitty Softpaws sem vill fá kortið fyrir sig. Ásamt Perrito tekst þeim að komast undan Gullbrá og Jack og stefna á Myrkaskóg þar sem óska­ stjarnan er. Þau komast að því að leiðin að stjörnunni fer eftir því hver heldur á kortinu. Leiðirnar fyrir þann stígvélaða og Kitty eru ógn­ vænlegar en leiðin hjá Perrito er auðveld svo þau leyfa honum að hafa kortið. Á leiðinni klippir Kitty skeggið af kettinum. Perrito eltir prik og lendir í klónum á Jack. Stígvélaði kötturinn og Kitty ná að frelsa hann en kötturinn fer að sjá ofsjónir um úlfinn sem er enn á hælum hans og hleypur á brott sem verður til þess að þau glata kortinu í hendur Gullbráar. Hefst nú æsispennandi atburða­ rás sem ekki má segja frá vegna þess að það eyðileggur fyrir þeim sem vilja sjá myndina. n Laugarásbíó, Smárabíó, Sambíóin Álfabakka, Kringlunni, Egilshöll, Keflavík og Akureyri og Háskólabíó Í leit að nýjum lífum Fróðleikur: n Aðstandendur myndarinnar segja að spagettívestrinn The Good, the Bad and the Ugly (1966) hafi orðið þeim innblástur við gerð myndarinnar. n Í enskri útgáfu myndarinnar talar Ray Winstone fyrir einn bjarnanna. n Framleiðendur myndarinnar ákváðu að hverfa frá „raunveru- leika“-grafíkinni, sem notuð var við gerð Shrek og upphaflegu myndarinnar um Stígvélaða köttinn til að ljá ævintýrum þessarar myndar stórfenglegri ævintýraljóma. Frumsýnd 26. desember 2022 Aðalhlutverk: Valur Freyr Einarsson, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Árni Beinteinn Árnason, Björgvin Franz Gíslason og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir Handrit: Paul Fisher Leikstjórn: Joel Crawford og Januel Mercado Íslenskt tal Frumsýnd 2. desember 2022 Aðalhlutverk: David Harbour, Beverly D‘Angelo, John Leguizamo, Cam Gigandet, Edi Patterson, Brendan Fletcher og Alex Hassell Handrit: Pat Casey og Josh Miller Leikstjórn: Tommy Wirkola Enskt tal með íslenskum texta Stígvélaði kötturinn lendir í miklum ævintýrum og hremm- ingum, ásamt hundinum Perrito og gömlu kærust- unni Kitty Softpaws þegar þau reyna að finna óskastjörnu. Hugsaðu Die Hard, en hér er það jóla- sveinninn sem er á ferð en ekki lögga frá New York. Hópur þrautþjálfaðra og harð­ svíraðra málaliða brýst inn á reisu­ legan herragarð Lighthouse­fjöl­ skyldunnar á aðfangadagskvöld og tekur alla fjölskylduna í gíslingu. Ætlunin er að ræna miklum fjár­ munum úr sérstakri fjárhirslu sem er á setrinu. Glæpagengið hafði hins vegar ekki gert ráð fyrir einu. Jólasveinn­ inn kemur nefnilega í árvissa heimsókn sína til Lighthouse­fjöl­ skyldunnar og lætur svo sannar­ lega fyrir sér finna. Lighthouse­ fjölskyldan er nefnilega á góða listanum hans en glæpahyskið á listanum yfir þá sem hafa verið óþekkir. Í ljós kemur að jólasveinum er fleira til lista lagt en að gefa gjafir, borða smákökur, þamba mjólk, hlæja djúpum hlátri og slá sér á lær. Hann náttúrlega laumar sér inn á hvert heimili einu sinni á ári og slíkir læra vitaskuld nokkur trix. Violent night er dálítið eins og Die Hard, nema hér er það ekki John McClane, lögga frá New York, sem kljáist einn við ofurefli harðsvíraðra glæpamanna heldur jólasveinninn. Glæpamennirnir eru vel vopnum búnir en jóla­ sveinninn hefur eitt og annað uppi í erminni. Hann býr yfir töfrum sem óþokkarnir eiga fá svör við. Þá kemur á óvart hversu öflug vopn hægt er að útbúa úr sakleysislegu jólaskrauti. David Harbour leikur jóla­ sveininn í formi sem við höfum ekki séð hann í áður. Flestir að­ dáendur jólamynda muna vel eftir Beverly D’Angelo í hlutverki Ellen Griswold í sígildu jólamyndinni Christmas Vacation. Hér leikur hún Gertrude Lighthouse, ætt­ móður Lighthouse­fjölskyldunnar, í mynd sem, eins og fyrr segir, svipar meira til jólamyndarinnar Die Hard frekar en Christmas Vacation. n Laugarásbíó, Smárabíó og Sam- bíóin Álfabakka, Egilshöll, Keflavík og Akureyri Jólasveinninn bregður sér í spor John McClane 6 kynningarblað 1. desember 2022 FIMMTUDAGURKVIKMYNDIR MÁNAÐARINS

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.