Fréttablaðið - 13.12.2022, Page 12
benediktboas@frettabladid.is
Áhorfendur hafa sett svip sinn á
heimsmeistaramótið eins og ávallt.
Jafnvel þó að áfengi sé bannað í
Katar hafa áhorfendur frá öllum
heimshornum sýnt að það er alveg
hægt að njóta fótboltans án áfengis.
Stuðið hefur verið mikið innan vall-
ar en líka uppi í stúku. Þar er partí
alla daga, sem sum enda þó í sorg og
sút. Það geta víst ekki allir unnið. n
Uppi í stúku og
utan vallar
Ensku ljónin upplifðu vonbrigði um helgina þegar lið þeirra féll úr leik í 8 liða úrslitum gegn Frakklandi. Gælunafn
enska landsliðsins er einmitt Ljónin þrjú og hér má sjá þau – í fullum skrúða.
Pólverjar duttu út úr keppninni. Gælunafn pólska landsliðsins er Biało-czer-
woni og það hefur þennan fugl í skjaldarmerki sínu. Þessi vígalegi stuðnings-
maður málaði fuglinn á sig og skemmti sér vel þrátt fyrir úrslitin.
Þjóðverjar komust ekki upp úr riðlinum þrátt fyrir að vera með frábært lið. Stuðningsmenn þeirra settu sinn lit á
riðlakeppnina en rifu hvatningarorðin í tvennt þegar staðan varð ljós. Þeir voru að fara að pakka niður í töskur.
Brasilíumenn
hugsa fallega til
goðsagnarinnar
Pelé sem hefur
legið á sjúkra-
húsi í Brasilíu
undanfarna
daga.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Fyrrverandi ungfrú Króatía, Ivana Knoll, vakti heimsathygli fyrir frjálslegan klæðnað. Hún var stopp-
uð víða og þurfti að pósa með bolnum en gaf sér ávallt tíma – með slaufu í hárinu og í magabol.
Áfengi er
ekki leyfi-
legt á HM
og áhorf-
endur þurfa
því að sötra
áfengislausan
Budweiser til að
sötra söngvatnið
góða. Þessi japanska
stuðningskona gerði
hvað hún gat til að koma
sér í gírinn og setti upp tákn-
rænan fyndinn hatt.
Brassar voru líf-
legir utan vallar
en halda nú
heim á leið, eftir
óvænt tap gegn
Króatíu. Þessi
herramaður var
með hárgreiðslu
í lagi.
Frakkar
hafa verið í
banastuði
innan sem
utan vallar.
Hér er einn
sem nær
topptvennu.
Annars vegar
gleraug-
unum og
hins vegar
fyndnum
hatti.
12 Íþróttir 13. desember 2022 ÞRIÐJUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 13. desember 2022 ÞRIÐJUDAGUR