Fréttablaðið - 13.12.2022, Side 14
Magga segir það
dýrmætt fyrir
félagsskapinn
og halda sér
gangandi, að
koma í vinnuna
og sauma
rúmföt.
MYNDIR/AÐSENDAR
Stærsta sérverslun landsins með
rúmföt er vafalaust Rúmföt.is við
Nýbýlaveg 28 í Kópavoginum. „Við
erum eina búðin á landinu sem
selur hágæða rúmföt frá Ítalíu.
Þetta er lúxusvara sem margir
kaupa til að setja á rúmin sín um
jólin. Því hvað er notalegra en
að skríða undir hágæða damask
úr langþráða egypskri bómull í
svartasta skammdeginu?“ segir
Hildur Þórðardóttir verslunar-
stjóri Rúmföt.is.
Reksturinn varð til
í þvottahúsinu
Það má segja að búðin hafi byrjað í
horninu í afgreiðslu Þvottahúss A.
Smith. „Þegar Fatabúðin og Verið
lögðu upp laupana myndaðist stórt
skarð og framboðið af vönduðum
rúmfötum var vægast sagt frekar
lélegt. Margir Íslendingar eiga
sín sparirúmföt sem voru keypt í
Verinu eða Fatabúðinni á sínum
tíma, en eftir að þessar búðir
hættu starfsemi var orðið erfitt að
nálgast góð rúmföt. Fólk borgaði
háar fjárhæðir fyrir rúmföt sem
urðu svo að einu krumpu stykki
eftir aðeins einn þvott. Þetta var
kannski íslensk hönnun, en gæðin
á efnunum voru afspyrnuléleg.
Við sáum þetta þegar við þvoðum
þessar vörur fyrir viðskiptavini
okkar og blöskraði hreinlega. Við
fórum því á stúfana og hófum sjálf
innflutning á rúmfötum í margfalt
betri gæðum. Fólk er nú óþreyt-
andi við að þakka okkur fyrir að
hafa opnað aftur alvöru rúmfata-
búð á Íslandi,“ segir Hildur.
900 þráða bómullarsatín
Fyrir um það bil einu ári hófu
Rúmföt.is einnig að selja rúmföt úr
900 þráða bómullarsatíni, að sögn
Hildar. „Því fleiri þræðir, því meiri
mýkt og satínáferð. Ef fólki verður
of heitt á nóttunni er gott að snúa
þeim við og þá er efnið svalt og
kælandi. Við prófum alltaf að þvo
rúmfötin okkar til að sjá hvernig
þau þola þvott og þessi voru mýkst
og gæðalegust eftir marga þvotta.“
Íslensk framleiðsla
„Við kaupum mikið af dýr-
indis efnum frá Ítalíu sem Magga
saumakona breytir síðan í listaverk
Verslunin er
með ein-
stakt úrval af
fallegum og
notalegum rúm-
fötum. Þessi eru
frá Ítalíu.
Ítölsku lúxus
rúmfötin eru
alger draumur.
Rúmföt.is eru með gæða dúnsængur frá Þýskalandi.
Þessi yrðu dá-
samleg á rúmið
yfir hátíðirnar.
300 þráða satín með gullfallegu mynstri.
600 þráða rúmfötin frá Rúmföt.is eru alger eðall.
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
sem margir Íslendingar þekkja,“
segir Hildur.
Magga, eða Margrét Guðlaugs-
dóttir eins og hún heitir fullu
nafni, er með sextíu ára reynslu
og hefur saumað rúmföt fyrir tugi
þúsunda Íslendinga. „Ég fæ að
stjórna tíma mínum sjálf. Sauma
kannski í fjóra tíma hér og fer svo
heim og legg mig. Ég held ég myndi
bara leggjast í kör ef ég hefði ekki
félagsskapinn og verkefnin hér í
vinnunni. Það er svo dýrmætt að
halda sér gangandi og ekki síður
að halda heilanum virkum,“ segir
Margrét.
Hildur segir efnin sem þau
kaupa vera úr sérvalinni egypskri
bómull, frá 600 þráða og allt upp
í 1.400 þráða. „Ein rúmfötin eru
til dæmis úr Giza 87, sem er ein
besta bómullartegund í heimi og
vex bara á örlitlu svæði við ána
Níl í Egyptalandi. Þetta er ýmist
damask eða satín. Damask þýðir
að mynstrið er ofið í efnið og satín
þýðir glansandi áferð.“
Hún segir enn vera til fólk sem
heldur að satín sé nafn á einhverju
políester-gervidrasli. „Við erum
endalaust að leiðrétta það. Það er
raunar ekkert silki í silkidamaski,
heldur er þráðurinn fíngerður svo
efnið verður silkikenndara. Þetta
eru náttúrulega ákveðin fræði og
það er bara gaman að fræða fólk
og leyfa því að finna muninn á
ólíkum efnum.“
Enn þá til gæðarúmföt
í hillunum
Að sögn Hildar er Margrét búin
að vera allt árið að sauma fyrir
jólavertíðina og núna síðustu
dagana fyrir jól eru hillurnar með
settunum hennar venjulega orðnar
tómar. „En það er alveg enn þá
eitthvað til og svo vorum við líka
að fá sendingu frá Ítalíu af ótrúlega
flottum rúmfötum, þó ég segi sjálf
frá. Það er því vel hægt að næla sér
í góð rúmföt fyrir þessi jólin, hvort
sem það er á hjónasængina eða í
jólapakkann handa kærum vini,“
segir Hildur. n
Rúmföt.is er á Nýbýlavegi 28 í
Kópavoginum og opnunartími
fram að jólum er virka daga kl. 12-
18 og laugardaga kl. 11-16. Nánar á
rumfot.is.
2 kynningarblað A L LT 13. desember 2022 ÞRIÐJUDAGUR