Fréttablaðið - 13.12.2022, Síða 28
Margir halda að Harry
og Meghan hafi hætt til
að fá frið en það virðist
ekki vera.
Heimildarþáttaröð þeirra Harrys og Meghan
Markle um lífið eftir konungsfjölskylduna er loksins
komin út. Tvær milljónir hafa þegar horft á þættina
og tvöfalt fleiri horfðu á Harry og Meghan en drama-
þættina The Crown. Parið hefur verið duglegt að
afla sér tekna eftir að hafa kvatt fjárhagslegt öryggi
krúnunnar, enda þarf að fjármagna öryggisgæslu
og alls konar. Þar er hægt að nefna fyrirhugaða bók
Harrys, hlaðvarpsþætti Meghan og Netflix-seríuna.
Fréttablaðið tók saman hvað hertogahjónin gætu
gert næst til að halda áfram að draga björg í bú.
odduraevar@frettabladid.is
Keypt knattspyrnufélag
Hollywood-stjörnurnar Ryan Reynolds og Rob
McElhenney sýndu það með kaupunum á einu
elsta félagi í heimi, knattspyrnufélaginu Wrex-
ham í Wales, og samnefndum raunveruleika-
þáttum, að það er hægt að verða enn vinsælli
með því að kaupa sér knattspyrnufélag, en bara
ef hjartað er á réttum stað. Harry og Meghan
gætu farið svipaða leið. Nóg af klúbbum í Sussex
eru í boði, til að mynda Brighton & Hove Albion
og Crawley Town. Svo gæti parið farið nákvæm-
lega sömu leið og þeir félagar og fjárfest í Notts
County, einum elsta klúbbi í heimi.
Stofnað hótelkeðju
Hertogahjónin eru þekkt fyrir
að vera þau sjálf og ræða stór
mál eins og hnattræna hlýnun
á hispurslausan hátt. Þau eru
líka þekkt fyrir lúxuslífsstíl og
glæsilega Los Angeles-villu.
Hvað myndi maður ekki gera til
þess að geta lifað eins og her-
togahjón í eins og eina nótt?
Hótelkeðja með nafni hertoga-
hjónanna af Sussex myndi hala
inn tekjur. Haaala inn!
Búið til tölvuleik
Hvernig bregstu við því þegar pabbi þinn,
konungur Bretlands, kemur betur fram við
bróður þinn heldur en þig, bara af því að hann
er ríkisarfinn? Þú getur komist að því í tölvuleik
í nafni hjónanna sem myndi svipa til leikja eins
og The Sims, Age of Empires og Call of Duty.
Tölvuleikurinn yrði að sjálfsögðu sería, þar sem
nýr leikur yrði gefinn út á hverju einasta ári með
nýju þema. Fyrstu persónu skotleikur þar sem
þú leikur Harry og þarft að bjarga Meghan og
börnunum frá bráðum lífsháska. Möguleikarnir
eru endalausir.
Fimm hlutir sem Harry og
Meghan geta gert næst
Stjórnmálin
Þrálátur orðrómur hefur verið
uppi í árabil um að Meghan
hyggist bjóða sig fram til
forseta Bandaríkjanna á ein-
hverjum tímapunkti. Donald
Trump hefur sýnt það og
sannað að það getur verið
ansi arðbært verkefni sem
getur skilað tekjum í kassann.
Meghan hefur verið dugleg að
senda þingmönnum tóninn,
jafnvel hringja í þá ef henni
finnst þeir ekki standa sig
í stykkinu. Harry yrði full-
kominn stuðningur í þessu
verkefni, eins og alltaf.
Opnað brimbrettaströnd
Harry Bretaprins er einkar
hrifinn af sól. Þetta sést
auðvitað best á þeirri
ákvörðun hans og Meghan
að flýja rigningasamt Bret-
land fyrir sólríkar strendur
Kaliforníu. Parið þarf á
innkomu að halda og hvers
vegna að flækja hlutina?
Harry kann á brimbretti
þökk sé Meghan, sem keypti
kennslustundir handa
honum. Hvað myndirðu
borga mikið fyrir brim-
brettakennslu hjá prinsi?
Einmitt. Mikið.
Ekki réttur tími fyrir þættina
Guðný Ósk
Laxdal
„Mér fannst
fyrstu þrír þætt-
irnir vera frekar
óáhugaverðir,“
segir Guðný Ósk,
aðspurð hvað
henni finnist um
heimildarþætti
Harry og Meghan á Netflix. Guðný
heldur úti Instagram-síðunni
RoyalIcelander og er manna
fróðust um konungsfjölskylduna
hér á landi, en hún var auk þess
gesturinn í Crownvarpinu, við-
hafnarhlaðvarpi Fréttablaðsins
um The Crown.
„Mér finnst þetta ekki vera rétti
tíminn til að vera að segja þessa
sögu, en samt sem áður krúttlegt
að sjá fjölskyldumyndir og það
getur enginn tekið það af þeim að
ástarsaga þeirra er falleg og full af
rómantík. Þau hafa bæði fórnað
sínum fyrri lífsstíl til að vera
saman. Við eigum samt eftir að sjá
seinni hlutann af heimildarþátt-
unum, og ég held að þeir þættir
muni verða áhugaverðari.
Fyrstu þættirnir snérust meira
um að fá áhorfendur til að falla
fyrir þeim og vera með þeim í liði.
Margir halda að Harry og Meghan
hafi hætt til að fá meiri frið en það
virðist ekki vera. Það er frekar að
þau vilji hafa meiri stjórn á hvernig
er fjallað um þau. En því miður þá
myndi ég ekki segja að það hafi
tekist og myndi frekar segja að
það væri fjallað verr um þau núna.
Þau eru meira gagnrýnd en
þegar þau voru starfandi meðlimir
konungsfjölskyldunnar. Sem er
mjög sorglegt. Ég samt trúi því að
þau séu að segja sína hlið og sína
upplifun, og það eiga allir rétt á
því. En finnst leiðinlegt þegar það
er frekar augljóst að þau eru að
ýkja sögur, eða segja rangt frá, og
enn þá leiðinlegra þegar þau tala
illa um aðra fjölskyldumeðlimi
svona opinberlega.“ n
n Sérfræðingurinn
Þorvaldur yrkir um æskuna,
ungdóminn og fullorðinsárin
í kjarn yrtum en margbrotnum
texta.
„... ljóðabók sem þú týnir þér
í um stundarsakir, rekst þar
oftar en ekki á sjálfan þig ...“
A R N Ó R H J A R T A R S O N / S T U N D I N
„... skemmtilegur og ljúfur lestur sem
gleður og vekur til umhugsunar og ég
vona að bókin rati til sem flestra.“
S N Æ D Í S B J Ö R N S D Ó T T I R / M B L
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið 10–19 alla daga til jóla | www.forlagid.is
20 Lífið 13. desember 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 13. desember 2022 ÞRIÐJUDAGUR