Fréttablaðið - 15.12.2022, Blaðsíða 1
2 7 2 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F I M M T U D A G U R 1 5 . D E S E M B E R 2 0 2 2
Segir N4-málið
líta illa út
Ættarsaga sem
teygir sig víða
Fréttir ➤ 6 Menning ➤ 30
Allt til jóla
Skannaskund
Opið allan
sólarhringinn
Í Nettó Mjódd
og Granda
Þetta er mjög stór
þáttur í útgjöldum
heimilanna og Seðla-
bankanum á að koma
þetta við.
Runólfur
Ólafsson,
framkvæmda-
stjóri FÍB
Tryggingafélögin hafa hækkað
iðgjöld sín á bílatryggingum
til einstaklinga umfram
almennar verðlagshækkanir.
Bæði lögboðnum og frjálsum.
Formaður FÍB segir að Seðla-
bankinn eigi að fylgjast með.
kristinnhaukur@frettabladid.is
NEYTENDUR Iðgjöld bílatrygginga
heimilanna hækkuðu um 1.840
milljónir króna umfram verðlags-
hækkanir á fimm árum, árin 2016
til 2021. Um 1.093 milljónir af lög-
boðnum tryggingum og 747 millj-
ónir af frjálsum tryggingum.
Tölur um hækkanir koma fram
í svari Bjarna Benediktssonar fjár-
málaráðherra við fyrirspurn Ágústs
Bjarna Garðarssonar, þingmanns
Framsóknarf lokksins, um hækk-
anir á tryggingagjöldum.
Voru heildariðgjöld af lögboðn-
um ökutækjatryggingum einstakl-
inga 14.171 milljón árið 2016. Hefðu
þær átt að vera 20.749 milljónir árið
2021 miðað við verðlagshækkanir
og 11,8 prósenta fjölgun skírteina.
Iðgjöldin voru hins vegar 21.842
milljónir. Svipað á við um frjálsu
tryggingarnar.
Runólfur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Félags íslenska bifreiðareig-
enda, segir hækkanirnar til marks
um græðgi. „Við höfum reynt að
vekja athygli á þeim fákeppnistil-
burðum sem virðast vera í gangi á
þessum markaði,“ segir hann.
Bendir Runólfur á að samkvæmt
samanburði sem félagið gerði við
hin Norðurlöndin séu Íslendingar
að greiða miklu hærri iðgjöld af
ökutækjum. „Í sumum tilvikum er
íslenski neytandinn að borga 100
prósentum hærra iðgjald en neyt-
endur í viðmiðunarlöndunum.“
Hvað þetta ástand varðar beinir
félagið spjótum sínum að Seðla-
banka Íslands, það er Fjármálaeftir-
litinu.
„Við höfum biðlað til þess að
Fjármálaeftirlit Seðlabankans geri
úttekt á þessum markaði með það
fyrir augum að ekki sé verið að
bjóða neytendum upp á óeðlilega
viðskiptahætti. Okkar mat er að
óeðlilega há iðgjöld séu óeðlilegir
viðskiptahættir,“ segir Runólfur.
Seðlabankinn svaraði fyrirspurn
félagsins fyrir um ári síðan. Kom þar
fram að lagakrafa um að Fjármála-
eftirlitið ætti að hafa eftirlit með
iðgjaldagrunni tryggingafélaganna
hefði verið lögð af árið 2016. Þar
með væri það ekki í verkahring Fjár-
málaeftirlitsins, heldur einungis að
hafa eftirlit með því að félögin væru
nægilega fjárhagslega burðug til
þess að geta mætt áföllum.
Runólfur segir Fjármálaeftir-
lit Seðlabankans hins vegar hafa
neytendatengt hlutverk. Það er að
neytendum séu ekki boðnir afar-
kostir, því að hluti trygginganna sé
lögboðinn. Eðlilegt sé að þær séu
undir verðlagssjá opinberra aðila.
„Þetta á að vega mjög þungt, sér-
staklega innan vébanda Seðlabank-
ans sem er að reyna að passa að verð-
lag fari ekki hér úr böndum,“ segir
Runólfur. „Þetta er mjög stór þáttur
í útgjöldum heimilanna og Seðla-
bankanum á að koma þetta við.“ n
Tryggingar bíla
hækkað umfram
verðlagshækkanir
Þetta fagra fley hafsins sveif í lausu lofti yfir Sundahöfn og höfðum manna þar í gær í öruggum greipum hafnarkrana.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK