Fréttablaðið - 15.12.2022, Blaðsíða 44
Festist í Eyjum
í þrjár nætur
Rami Harven Gallego kom
til Íslands tvisvar á þessu ári.
Seinna skiptið tók hann meðal
annars brúðkaupsmyndir
af ókunnugum. Hann segir
Ísland magnaðan stað og segir
stórkostlega ferðasögu.
odduraevar@frettabladid.is
„Seinni ferðin mín til Íslands þetta
árið var stórkostleg!“ segir ljósmynd-
arinn Rami Harven Gallego sem
ferðaðist hringinn í kringum Ísland
á dögunum með hópi ókunnugra og
tók meðal annars brúðkaupsmyndir.
Fréttablaðið ræddi við Rami
í aðdraganda ferðarinnar og þá
sagðist hann vongóður um að finna
brúðhjón sem væru til í að sitja fyrir
á mögnuðum brúðkaupsmyndum í
íslenskri náttúru. „Við lentum í svo
margvíslegum ævintýrum. Ég fór
með vini mínum Stefáni, við elskum
útivist og að taka myndir af nátt-
úrunni.“
Rami segir nokkur augnablik hafa
staðið upp úr í Íslandsferðinni. „Við
festumst í Vestmannaeyjum í þrjár
nætur út af óveðri. Svo neyddumst
við til að breyta ferðaplönum út
af vegalokunum í kjölfar óveðurs
og sváfum í bílunum okkar á tjald-
stæðum,“ segir Rami.
Hann segir þá félaga hafa elt
norðurljósin 90 prósent tímans í
ferðalaginu sínu án árangurs. „Þar til
í blálokin þá sáum við þau loksins,“
segir Rami sem bætir því við að þau
hafi verið mögnuð.
Þá hafi það komið vel á óvart að
sjá hreindýr á miðjum vegi. „Það
gekk nánast á okkur á miðjum vegi á
meðan við keyrðum einhvers staðar
fyrir suðaustan.“
Rami segist hafa kynnst góðu
fólki á ferðalaginu. „Ég er uppruna-
lega frá Filippseyjum og er vanari
heitu hitabeltisloftslagi og strönd-
um,“ segir Rami hlæjandi. Hann
segist heillast af stöðum þar sem
er kalt í lofti og því hafi hann búið
í Kanada undanfarin ár.
„En ég er alveg ástfanginn af
Íslandi. Það var ekki spurning að
mig langaði aftur þegar ég fór fyrr
í haust svo ég keypti mér bara miða
strax,“ segir Rami sem bætir því við
að það séu þrjár ástæður fyrir því að
hann elski Ísland.
„Eitt: Ég er ljósmyndari og lands-
lag Íslands er klárlega paradís lista-
mannsins. Miðnætursólin í sumar
og norðurljósin á veturna. Magn-
aðir jöklar og eldfjöll sem þú finnur
bara á Íslandi. Númer tvö er klárlega
lífsreynslan. Þessi tilfinning sem þú
færð þegar þú stendur á fjallstoppi
eða upplifir sól, rigningu og snjó allt
á einum degi. Það er þessi tilfinn-
ing að þú sért að krossa eitthvað af
bucket-listanum.“
Rami segir hið þriðja vera
íslensku þjóðina. „Íslendingar eru
svo gestrisnir og einstaklega hlýir.
Það er líka stórt samfélag aðfluttra
Filippseyinga sem tók okkur opnum
örmum og aðstoðaði okkur á ferða-
laginu.“ n
Nokkrar af
myndunum sem
Rami tók á ferð
sinni um landið.
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið 10–19 alla daga til jóla | www.forlagid.is
Um 30 uppskriftir að sjölum
og barnateppum – sem eru
eins báðum megin
Falleg gjöf handa
prjónaranum
Bæði einfaldar uppskriftir
fyrir byrjendur sem og
flóknari fyrir vana prjónara
Seldist upp hjá útgefanda. Endurprentun komin í verslanir.
32 Lífið 15. desember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 15. desember 2022 FIMMTUDAGUR