Fréttablaðið - 15.12.2022, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 15.12.2022, Blaðsíða 26
6 kynningarblað 15. desember 2022 FIMMTUDAGURGJAFABRÉF Ef einhver kaupir gjafabréf er sölu­ aðilinn kominn með peninga í hendurnar og þá á ekki að skipta máli hvenær bréfið er síðan notað. Almenna reglan ætti að vera að gjafabréf mætti nota hvenær sem er. Brynhildur Björnsdóttir brynhildur @frettabladid.is Gjafabréf eru vinsæl gjöf frá fyrirtækjum til starfsfólks sem með því fyrirkomulagi getur valið sínar gjafir sjálft úr þeim varningi sem gjafa- bréfið nær yfir. Breki Karlsson, formaður Neyt- endasamtakanna, varar þó við því að gildistími gjafabréfa sé stundum óþarflega stuttur og segir öryggi neytenda best tryggt með því að leysa gjafabréfið inn sem fyrst. „Oftast er kvartað yfir því að seljandi leyfi viðskiptavininum ekki að nýta gjafabréf sem er útrunnið. Slíkir viðskiptahættir verða að teljast mjög sérstakir enda hefur seljandi ekki orðið fyrir neinum skaða, þvert á móti. Búið er að greiða fyrir ákveðna vöru eða þjónustu og í raun má því segja að kaupandinn veiti seljandanum vaxtalaust lán. Við fáum aðal- lega spurningar frá neytendum varðandi gjafabréf en sem betur fer eru það líka einhverjir verslunar- eigendur og söluaðilar sem leita til okkar til að hafa allt klappað og klárt varðandi gjafabréfin og við fögnum því,“ segir Breki sem bætir við að engar reglur eða lög gildi um gjafabréf. „Til eru eldgamlar verklagsreglur sem viðskiptaráðuneytið þáver- andi gaf út árið 2000 en þær eru valkvæðar sem þýðir að það þarf ekki að fylgja þeim. Það eru engin lög sem gilda um gjafabréfin og væri mjög erfitt að setja slík lög því það er samningsfrelsi í landinu og fólk getur samið eins og það vill.“ Samkvæmt leiðbeinandi reglum um skilarétt á gildistími gjafabréfa að vera fjögur ár. Breki segir að gjafabréf séu í raun ígildi peninga og því ætti gildistími þeirra ekki að renna út, frekar en peningaseðla. „Ef einhver kaupir gjafabréf er söluaðilinn kominn með peninga í hendurnar og þá á ekki að skipta máli hvenær bréfið er síðan notað. Almenna reglan ætti að vera að gjafabréf mætti nota hvenær sem er.“ Hann segir að oftast sé hægt að leysa úr ágreiningsmálum varðandi gildistíma. „Enda gera flestir seljendur sér grein fyrir mikilvægi þess að veita góða þjónustu. Lendi fólk í því að vera meinað að nota gjafabréf á þeirri forsendu að það sé útrunnið vilja Neytendasamtökin gjarnan vita af því.“ Vanda valið og pappírinn Breki segir gildistímann ekki vera það eina sem fólk hefur áhyggjur af varðandi gjafabréf. „Fólk er kannski að gefa gjafa- bréf í fyrirtækjum sem síðan hætta rekstri og þá er það tapað fé. Þá er hægt að stofna almenna kröfu fyrir gjafabréfið en það er ekki vænlegt til árangurs. Þannig að við hvetjum fólk til að velja vandlega frá hverjum það gefur gjafabréf og þá helst frá fyrirtækjum sem veita rúman rétt.“ Hann segir fólk oft ekki kanna smáa letrið þegar gjafabréf eru keypt sem komi síðan þiggjand- anum í koll síðar. „Sum fyrirtæki setja fyrirvara við að nota gjafabréf á útsölum sem er skrýtið þegar haft er í huga að gjafabréf eru í raun bara pen- ingar sem þegar er búið að festa hjá fyrirtækinu. Í ár hefur verið ansi mikið um fyrirspurnir vegna gjafa- bréfa á gististöðum sem kemur væntanlega til vegna faraldursins þegar fólk fékk kannski gjafabréf sem það síðan gat ekki nýtt. Margir af þeim stöðum sem kvartað var yfir voru með alls konar varnagla þegar síðan átti að fara að bóka um að bréfið gilti bara á ákveðnum tímum eða í ákveðnum herbergj- um svo fólki var gert erfitt fyrir að nýta það. Ef það eru takmarkanir fyrir notkun gjafabréfa þarf það að koma skýrt fram á gjafabréfinu svo ekki sé hægt að koma með alls konar skilmála eftir á.“ Þá segir hann form gjafa- bréfanna líka skipta máli. „Stundum er kvartað yfir að gjafabréf eru prentuð á pappír sem eyðist með bleki sem máist út svo þá er mjög erfitt að sjá gildistím- ann. Viðskiptavinir ættu að gera þá kröfu að gjafabréfin séu prentuð á vandaðan pappír með bleki sem ekki eyðist svo allar upplýsingar um hvernig má verja þeim séu skýrar.“ Reglur í smíðum Neytendasamtökin vinna nú að því að semja reglur varðandi gjafabréf. „Við getum ekki krafist þess að farið verði eftir þeim en þær verða þá allavega til og þeir sem kaupa gjafabréf geta þá notað þær til viðmiðunar til hagsbóta þeim sem bréfin eiga að fá. Og við mælum með að þeir sem kaupa gjafabréf hafi hag þess sem á að fá bréfið í huga við kaupin og í sam- skiptum sínum við seljendur.“ n Gæta þarf vel að smáa letrinu Breki Karlsson segir gjafabréf í raun ígildi peninga og því ættu þau ekki að renna út frekar en peningaseðlar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR ð ð ð ð ð ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.