Fréttablaðið - 15.12.2022, Blaðsíða 22
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Kolbeinn Kolbeinsson, kolbeinn@torg.is, s. 5505456 ,
Gjafabréf hafa löngum verið vinsæl
jólagjöf og einstaklega heppileg
fyrir fyrirtæki þegar starfsfólk
hleypur á hundruðum. En ekki
eru öll gjafabréf eins gerð og þeim
fylgir oft sá fylgifiskur að gleymast
í einhverri skúffunni og daga þar
uppi.
Flest gjafabréf þarf svo að prenta
út eða útbúa sem plastkort sem
er í raun óþarfa sóun á pappír og
plasti. YAY er svarið við öllum
þeim vandamálum sem oft fylgja
gjafabréfum. „YAY er allt í senn
gjafabréfakerfi, snjallforrit og
vefsvæði hannað eftir íslensku
hugviti. Snjallforritið er í símanum
þínum og þér ávallt innan handar,“
segir Sigríður Inga Svarfdal Þor-
kelsdóttir, sölu- og markaðsstjóri
YAY. „Enn fremur minnir YAY
eigandann á tilveru gjafabréfsins
með reglulegu millibili. Við
verðum þriggja ára núna um jólin
og erum afar stolt af því sem við
höfum náð að afreka síðustu ár,“
segir Sigríður.
Gjafir sem henta þér
YAY hefur algerlega umbylt því
hvernig það er að fá, gefa og nota
gjafabréf. „Það er fátt leiðinlegra en
að finna gamalt og útrunnið gjafa-
bréf grafið ofan í skúffu sem hefði
getað nýst, ef maður hefði bara
munað eftir því. YAY er afar einfalt
í notkun, hvort sem þú notar appið
eða vefsvæðið til að kaupa gjöfina.
Þú einfaldlega velur hvað þú vilt
gefa, bætir við persónulegri kveðju
og sendir gjöfina beint í símann
hjá viðtakanda. Viðtakandi fær
skilaboð í símann um að honum
hafi borist gjöf, opnar pakkann og
fær kveðjuna. Þegar þar að kemur
notar hann svo appið til að greiða
með gjafabréfinu.“
Samstarfsaðilar YAY eru að
nálgast 250 talsins um land allt og
því eru möguleikarnir nær enda-
lausir. „Langvinsælustu gjafirnar
í YAY eru Opin YAY gjafabréf.
Notandi nýtir það einfaldlega
hjá þeim samstarfsaðila YAY sem
honum hentar, allt í einu eða smá
í hvert sinn. Einnig er hægt að gefa
gjafabréf frá ákveðnum sam-
starfsaðila ef fólk kýs það frekar. Í
báðum tilfellum velur gefandinn
upphæðina í gjafabréfinu. Ef þú
færð gjafabréf á ákveðnum stað,
sem mögulega hentar þér ekki,
þá getur þú gefið gjöfina áfram í
snjallforritinu, pakkað henni inn í
stafrænan pappír og sent á annan
aðila eða selt það á endursölu-
markaðnum og keypt þér það sem
þú óskar þér í staðinn. Gjafabréfin
hjá YAY gilda almennt í fjögur ár
og við minnum notendur reglu-
lega á gjafabréfin svo það gleymist
ekki að nota þau.“
Einfalt, fljótlegt og persónulegt
Sigríður segir persónulegu
kveðjuna eitt af því sem gerir
YAY gjafir svo ótrúlega skemmti-
legar. „Það er mjög gaman þegar
myndbandsmöguleikinn er nýttur
með gjöfinni, það hlýjar manni
um hjartað þegar yfirmaðurinn,
bæjarstjórinn eða forstjórinn gefur
sér tíma, setur á sig jólasveinahúf-
una eða umvefur sig með fallegum
jólaljósum og tekur upp mynd-
band til síns fólk, þakkar fyrir árið
og óskar þeim gleðilegrar hátíðar.
Svo er líka hægt að hafa texta eða
mynd með, bara það sem hentar
hverju sinni.
YAY er skemmtilegt, það eru allir
svo glaðir yfir að fá gjöf og það er
gaman frá upphafi til enda. Það er
skemmtilegt að kaupa YAY gjöf því
það er gott að vita til þess að við-
takandinn mun pottþétt hafa not
fyrir hana. Það er gaman að hafa
möguleika á að bæta við skemmti-
legu myndbandi við gjöfina, til að
gera hana enn persónulegri. Það er
gaman að fá YAY gjöf, „opna pakk-
ann“ í appinu og skoða svo hvað er
í boði. Svo er gaman að nota gjafa-
bréfin, því það er svo einfalt.“
Eitt sem hentar öllum
YAY er með stórsniðuga fyrirtækja-
þjónustu sem hefur verið afar
vinsæl hjá stofnunum og fyrirtækj-
um sem vilja gleðja og umbuna
starfsfólki sínu og viðskipta-
vinum. „Hægt er að senda út fjölda
gjafabréfa eða inneigna í YAY á
örfáum sekúndum og sparar þessi
þjónusta stjórnendum gríðarlegan
tíma, án þess að gjöfin verði minna
persónuleg. Okkar viðskiptavinir
eru allt frá fyrirtækjum með fáeina
starfsmenn upp í stofnanir og
fyrirtæki þar sem starfsfólk skiptir
þúsundum, oft í mörgum löndum.
Einnig hafa erlend fyrirtæki með
starfsstöðvar hérlendis nýtt sér
þjónustu okkar.“
Hér áður fyrr eyddu stór fyrir-
tæki með margar starfsstöðvar oft
mörgum dögum í að velja gjafir
handa starfsfólki sínu, pakka þeim
inn og koma þeim á rétta staði. En
það gefur auga leið að einn hlutur
getur ómögulega hentað öllum.
„Með því að velja YAY þá getur
þú verið viss um að allir fái eitt-
hvað fallegt og það sem allir hafa
not fyrir, því viðtakandinn velur
gjöfina sjálfur.
Kaupandi greiðir ekkert auka-
lega fyrir gjafirnar. Aðgangur að
Fyrirtækjaþjónustu YAY er gjald-
frjáls, það bætist enginn auka-
kostnaður við gjafabréfin og við
erum alltaf til staðar til að aðstoða.
Þannig fæst mikil hagræðing í
jólagjafainnkaupin og mögulega
nýtist sú hagræðing í veglegri gjöf
fyrir starfsfólkið, ef svo ber undir.“
Umhverfisþátturinn heillar
Umhverfisþátturinn hefur líka
gríðarlega mikið að segja hjá
notendum YAY, ekki síst hjá fyrir-
tækjum og stofnunum. „Gjafabréf
YAY eru að öllu leyti stafræn og
þeim fylgir ekkert óþarfa rusl.
Mörg fyrirtæki og stofnanir, líkt og
Hafnarfjarðarbær, kjósa stafrænar
leiðir í gjöfum einmitt til að gera
það sem í þeirra valdi stendur til
að vera umhverfisvænni og sem
skref í sinni stafrænu vegferð. Til
samanburðar má nefna að ef
öll YAY gjafabréf í fyrra
hefðu verið gefin út
í plastkortum þá
samsvarar það 2,5
tonnum af plasti.
Þá teljum við ekki
með umbúðirnar
sem hefðu verið
utan um kortin
sem og orkuna
sem hefði farið í að
sendast með og dreifa
gjöfunum á rétta staði.
Við erum stolt af því að vera
umhverfisvæn og skemmtileg leið
til þess að gleðja aðra.“
Landspítalinn gefur starfsfólki
sínu YAY jólagjöf í annað sinn í ár.
„Ávinningur spítalans er augljós,
því nú fá allir þeirra rúmlega 6.000
starfsmenn það sem þeir óska sér
um jólin og það fer ekki óþarfa
tími eða orka frá þeirra mikilvæga
starfi til að dreifa eða nálgast gjöf-
ina á annan hátt. Fleiri stórfyrir-
tæki og stofnanir kjósa YAY fyrir
sitt fólk og þar má nefna til dæmis
Hafnarfjarðarbæ, Kópavogsbæ,
Lögreglustjórann á höfuðborgar-
svæðinu og fjölmargar stofnanir
og fyrirtæki. Við skulum þó ekki
nefna þau öll því gjöfin á eftir að
koma starfsfólkinu á óvart.“
YAY um allan heim
Viðtökurnar við YAY-lausninni
hafa farið fram úr björtustu
vonum. „Við þökkum kærlega við-
tökurnar og erum spennt að takast
á við ný ævintýri. Það er gaman að
sjá að verslanir og þjónustuaðilar
hafa samband við YAY reglulega
til að bætast í hóp samstarfsaðila,
því þeir sjá klárlega ávinning í því
að vera með. Sama gildir um við-
skiptavini okkar.
YAY leysir vanda sem fyrirtæki
og stofnanir um allan heim glíma
við en þess má geta að YAY hefur
skrifað undir samning við fyrir-
tæki í Kanada sem mun opna YAY
innan skamms. Fleiri lönd
verða síðan YAY-lönd á
næsta ári og við erum
spennt að sjá fleiri
#YAYmoments um
víða veröld,“ segir
Sigríður. n
Hafðu samband
við okkur á info@
yay.is. um fyrir-
tækjaþjónustuna og
hvernig þú getur orðið
samstarfsaðili YAY. Þú finnur
YAY appið í App store og Google
Play.
Sigríður Inga
segir fyrirtæki
og stofnanir
vera afar ánægð
með YAY gafa-
bréfalausnina.
Það er gaman að
gefa og þiggja
YAY gjafabréf og
þau nýtast mun
betur en út-
prentuð gjafa-
bréf eða inneign
í plastkortum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Hægt er að senda út
fjölda gjafabréfa í
YAY á örfáum sekúndum
og sparar þessi þjónusta
stjórnendum gríðar-
legan tíma.
2 kynningarblað 15. desember 2022 FIMMTUDAGURGJAFABRÉF