Barnadagsblaðið - 22.04.1943, Blaðsíða 3
BARNADAGSBLAÐIÐ
ÚTGEFANDl: BARNA VIN AFÉLAGIÐ SUMARGJÖF
„BARNADAQSBLAÐIГ KEMUR ÚT FYRSTA SUMARDAG ÁR HVERT - RITSTJÓRl: ÍSAK JÓNSSON
10. tölublað 1. sumardag 1943
Drjú Ijóð og einn lítill fugl
Senn vorar — fyrir þá, sem ennþá unna,
og enginn getur sagt, að það sé lítið,
sem vorið hefur fœrzt í fang, og skrítið
hvað fljótt því tekst að safna í blóm og runna.
Og listamenn með litakassa og bretti
labba sig út í náttúruna að mála.
En ungu blómin drekka dögg og skála
til aýrðar sínum yndislega hnetti.
Ég þekki líka lœk hjá bláum vogi,
lítið og glaðvœrt skáld, sem kauplaust syngur
í vísnabœkur vorsins hugljúf kvœði.
Og spölkorn fyrir utan, upp með Sogi,
er ÓSinshani, lítill heimspekingur,
sem ég þarf helzt að hitta í góðu nœði.
II.
Hvað er að frétta, heillavinur minn? —
Hér hef ég komið forðum mörgu sinni,
og öll mín fyrstu óðinshanakynni
áttu sér stað við grœna bakkann þinn.
Þá bjuggu hérna einstök heiðurshjón,
háttvís og prúð, og það er lítill vafi,
að þetta voru amma þín og afi.
En hvað þið getið verið lík í sjón!
Og gott er ungum fugli að festa tryggð
við feðra sinna vík og geyma í minni
bernskunnar söng, sem foss í fjarlœgð þrumar.
Og megi Drotíinn blessa þína byggð
og börn þín lifa sátt á œttleifð þinni,
fugl eftir fugl og sumar eftir sumar!
III.
Ó, litli fugl, þú lœtur einskis spurt?
Langar þig ekki að heyra, að veröld þín
var eitt sinn líka óskaveröld mín?
En af hverju varð ég að fara burt?
Hér gleyma ungir dagar stund og stað,
og stríðið virðist enn svo íjarlœgt þeim.
Hvað varðar líka óðinshanaheim
um Hitler, Túnis eða Stalingrað?
Og hvernig œtti einn fugl við lygnan fjörð
að festa sér í minni degi lengur
þann heim, sem leggur úlfúð í sinn vana?
Og Drottinn veit, ég vildi að slíkri jörð
sem vorri, yrði breytt, fyrst svona gengur,
í bústað — fyr/r börn og óðinshana!
Tómas Guðmundsson.