Barnadagsblaðið - 22.04.1943, Blaðsíða 6

Barnadagsblaðið - 22.04.1943, Blaðsíða 6
4 BARNADAGSBLAÐIÐ Sr. Bjarni Jónsson, vígslubiskup: Úlfar Þórðarson, læknir: LILJAN OG LJÓSIÐ Hvað á ég að verða? Eitt sinn sagði kunningi minn við mig, er ég hafði hald- ið ræðu: „Ég held, að >ú talir of mikið um sólina og ljósið“. Ég svaraði með orðum skáldsins: „Vér eigum vart of mikla sumarsól“. Svo töluðum við saman um myrkrið og ljósið, neyðina og hjálpina. Okkur kom saman um, að sjálfsagt væri að tala um ljósið, en ekki væri nóg að tala. Þess væri þörf að starfa, að bera Ijós til mannanna, að lýsa þeim, sem sitja í skugganum. Þetta þarf að fylgjast að. Tala og syngja um sólina. En bera einnig sól í bæinn, vekja sól og sumardag. Hjá hinum sama manni á þetta tvennt að fara saman. Ég tek sálmabókiria mér í hönd og gæti þar að sálmum Matth. Jochumssonar. Þeir eru þar 26 að tölu. í þessum 26 sálmum er 40 sinnum minnst á sól og Ijós. Svo vænt þótti honum um ljósið. Aldrei gleymast þessi orð hans: „I sannleik hvar sem sólin skín er sjálfur Guð að leita þín“. Hann talar um þá sól, sem leggur smyrsl á lífsins sár og læknar mein og þerrar tár. Þegar hann hugsar til þeirra, sem um sárt eiga að binda, biður hann: „Ó, kveik þeim ljós, ó, send þeim sól“. Allt er þetta í ætt við hið sanna og heilaga. Munum eftir máttarorðinu, hinum skapandi krafti í orðinu: „Verði ljós!“ Bendum bernskunni og æskunni til hans, sem með fullum sanni gat sagt: „Ég er ljós heimsins, hver sem fylgir mér, mun ekki ganga í myrkrinu, heldur hafa ljós lífsins“. Þess- vegna getur hann einn og með myndugleika sagt við þá, er honum fylgja: „Ljós yðar lýsi mönnunum". Fögnum sól og sumri. Gleðjumst yfir sólarljósinu. En látum oss ekki nægja að gleðjast. Teljum oss jafnljúft að gleðja. Heill því starfi, sem fylgir þeirri stefnuskrá að gleðja, að blása afli í brotinn hálm. Það er fögur sjón að líta barnahópinn í þéttri fylkingu, horfa á skrúðgöngu vorsins, og vita, að þessum börnum á að hjálpa. Það á að hjálpa vorinu, svo að æskan geti fagnað heillaríku sumri. Minnumst orðanna: „Mitt veika líf er lilja, þín líkn er hennar sól“. Víða titrar mörg veik lilja. Stuðlum að því, að liljan fái að styrkjast í ljósinu. Þetta er starf Barnavinafélagsins, sem ber hið fagra heiti Sumargjöf. Vinir barnanna bera sumargjafir til þeirra, sem eiga að styrkjast og þroskast til líkama og sálar. Það er heiðríkja yfir þessu starfi. Ég óska börnunum og vinum barnanna gleðilegs sumars. Bj. J. TIL MINNIS! ,,Barnadagsblaðið“ gaf í fyrra rúmar 11,300,00 kr. „brúttó“. — „Sólskin“ gaf kr. 8,720,00 „brúttó“. Merkin seldust fyrir rúmar 16,600,00 krónur. Fyrir skemmtanir komu inn rúmlega 15 þúsund krónur. Það mun enginn vafi leika á því, að æska nútímans á við miklu betri kjör að búa að öllu leyti en þau, er feður og afar þeirra urðu að láta sér nægja og góð þykja. Á þeim tímum, er afar okkar vel flestra voru börn, lá líkamlegur skortur eins og farg á allri æsku hér á landi, en yfir vofði oft og einatt algert hungur. Til dæmis veit ég um einn mann hér í bæ, rúmlega áttræðan, er man það glöggt, að það kom fyrir, að hann og systkini hans urðu að seðja hungur sitt á skóbótum, hirtum á haugnum, þvegnum og steiktum við eld. Það má alveg furðulegt telja, hvað þess- ir menn gátu þó áorkað bæði andlega og líkamlega, ef þeir náðu þroska. Eitt vandamál hefir þó nútímaæskan við að glíma, sem æska þeirra tíma þekkti lítt eða ekki. En það eru erfiðleik- arnir við og vandinn á að velja sér æfistarf við sitt hæfi. Starf, sem veitir í senn starfsgleði og fullnægingu. Áður fyrr var oftast ekki nema um fáeina möguleika að ræða vegna fábreyttra atvinnu- og lifnaðarhátta og fátækt- ar þjóðarinnar í heild. Með tækni nútímans, sem hefir nærri því steypzt yfir þjóðina, líkt og flóðalda, og valdið stórkost- legu umróti á lífskjörum og möguleikum innan þjóðfélags- ins, hafa einnig skapazt ný vandamál fyrir þá kynslóð, sem nú fer að vaxa upp. Hin aukna tækni, nýjar atvinnugreinar og vísindi hafa miðað að því, að einhæfa mennina meira en nokkru sinni fyrr. Sérgreinar og sérfræðingar hafa orðið til af þessum orsökum, og síðan hafa jafnvel sérgreinarnar klofnað niður í enn smærri sérgreinar, og það aftur leitt af sér sérfræðinga í þrengri og þrengri sérfræðigreinum. Og þó að deila megi um, hvort þessi þróunarstefna sé heppileg, þá þýðir ekki móti að mæla, því að þessi þróun er nú stað- reynd. Við lifum í orðsins fyllstu merkingu á sérfræðinga- öldinni, þó að hún sé ef til vill að hefjast fyrst nú að nokkru ráði. Daglega þurfum við ef til vill á mönnum að halda við ýmisleg verk, sem, ef við íhugum það nánar, eru einmitt sérmenntaðir menn, afkvæmi og fulltrúar tækninnar. Og er ekki styrjöldin, sem nú er háð fyrir augum okkar, á láði á legi og í lofti, ekki einmitt fyrst og fremst átök milli sér- fræðinga hinna ýmsu þjóða, þar sem nýjustu vélbrögðum tækninnar er beitt á sem miskunnarlausastan hátt. Við könn- umst öll við „hermálasérfræðingana", skriðdreka- og fall- byssusérfræðinga og flugvélasmiði. En allir eru þessir menn yfirleitt fákunnandi nema á sínu eigin þrönga sviði. Já, við getum sannarlega ekki komizt hjá því að viðurkenna. öld sérþekkingarinnar. Af þessu leiðir svo, að nú á tímum er það hverju þjóðfélagi lífsskilyrði, ef vel á að fara, að fyrir því sé séð á viðunandi hátt, að hver meðlimur þjóðfélagsins fái markað sér starfssvið, þar sem bezt nýtur hæfileika hans og starfskrafta. Við höfum sjálfsagt öll fengið þessa eld- gömlu spurningu lagða fyrir okkur: „Hvað ætlar þú að verða, þegar þú verður stór?“. Þessi spurning er leifar frá þeim tímum, þegar ekki var um marga möguleika að ræða og þessvegna ekki svo vandsvarað. Nú á tímum spyr æskan sig sjálf: „Hvað hef ég hæfileika til að verða?“ og verður oft svarafátt, enda engin furða, svo margvíslega samsett er þjóðfélag vort. (Framh. á bls. 12).

x

Barnadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Barnadagsblaðið
https://timarit.is/publication/1748

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.